Feykir - 19.09.2018, Síða 14
Gengið var á flestum afréttum
landsins um síðustu helgi,
sumstaðar í fyrstu leitir,
annars staðar fóru menn í
seinni göngur. Misjafnt er milli
svæða hversu margir
gangnadagarnir eru enda
afréttarlöndin misstór.
Sigþór Smári Sigurðsson á
Kríthóli lagði upp á miðvikudag
ásamt öðrum smölum úr
framsveitum Skagafjarðar.
Gistu þeir í Rústarskála við
Orravatnsrústir, sem liggja í
liðlega 700 m h.y.s. norðaustan
Hofsjökuls. Hinir tignarlegu
Illviðrahnjúkar eru þar sem
risavaxnar vörður og góð
kennileiti. Smalað er norður
heiði og endað á fjórða degi
með safnið í Hlíðarrétt í
Vesturdal.
Sigþór Smári segir smölun
hafa gengið vel en veðrið hafi
mátt vera betra. fimmtudags-
nóttin var köld, dimm frost-
þoka svo ísing lagðist yfir allt.
Þoka var reyndar alla morgna
sem tafði brottför og snjó fengu
smalarnir á föstudaginn.
Aðspurður um hvort hann
sé bóndi á Krithóli, segir hann
svo ekki vera. Mágur hans er
skráður fyrir búskapnum en
það hjálpist allir að í sveitinni.
Meðfylgjandi myndir tók
Sigþór Smári. /PF
Allir hjálpast að í sveitinni
Gengið á Hofsafrétt
Þokunni hefur létt og staðan er góð.
Gott að æja í grænum bala.
Smalahrossin hans Smára stilla sér upp fyrir myndatöku.
Loks kominn til byggða.
14 35/2018