Feykir - 19.09.2018, Side 15
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS:: Lóð.
Feykir spyr...
Hvert er
skemmtilegasta
eða skrítnasta
nafn á hrossi sem
þú hefur heyrt?
Spurt á Facebook
UMSJÓN palli@feykir.is
„Skrítnasta/skemmtilegasta
nafn sem ég hef heyrt
á hrossi er Perla.“
Perla Ruth Albertsdóttir
„Kúbídós. Þetta nafn var
auðvitað frá snillingnum
Stebba heitnum á
Keldulandi.“
Þorlákur Sigurbjörnsson
„Björn bóndi á
Hofsstöðum átti meri
sem hét Hoppaló.“
Rósa María Vésteinsdóttir
„Það er Ferminga-
Skeifnarauður hans
Agnars á Miklabæ.“
Friðrik Þór Jónsson
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Krossgáta
Tilvitnun vikunnar
Það er betra að lifa eitt ár sem tígrisdýr
en hundrað ár sem kind. – Madonna
Su
do
ku
er því næst sett í fjórar skálar og látin
standa í ísskáp þar til hún hefur
stífnað. Borin fram með ferskum
berjum og þeyttum rjóma.
Verði ykkur að góðu!
Við skorum á Ósk Jóhannsdóttur og
Guðmann Valdimarsson.
Ásdís Adda Ólafsdóttir, sjúkraþjálfari, og Sigurgeir Þór Jónasson,
rafmagnsverkfræðingur, eru matgæðingar vikunnar, að þessu
sinni. Þau búa á Blönduósi ásamt sonum sínum tveimur, þeim
Arnóri Frey og Ísari Val en þangað fluttu þau fyrir ári síðan eftir níu
ára búsetu í Danmörku við nám og störf.
„Við ætlum að deila með ykkur uppskrift af humarpizzu sem er
í algjöru uppáhaldi og fljótlegri og góðri súkkulaðimús í eftirrétt,“
segja þau.
AÐALRÉTTUR
Humarpizza
Ef pizzasteinn er til á heimilinu
mælum við eindregið með því að
nota hann.
1 skammtur pizzadeig
rjómaostur
1 dós tómatpúrra
350 g humarhalar
50 g smjör
4-5 fínt saxaðir hvítlauksgeirar
paprika, skorin niður
1 poki af rifnum mozarella osti
fersk basilika
Aðferð: Humarinn er skelflettur og
görnin hreinsuð úr, smjörið brætt og
hvítlauknum bætt út í. Humarhölum
velt upp úr bráðnu hvítlaukssmjörinu.
Næst er pizzadeigið flatt út, rjómaosti
og tómatpúrru blandað saman í
jöfnum hlutföllum og smurt á
pizzabotninn. Mozarella osti stráð
yfir og paprikan sett á pizzuna.
Pizzan sett í ofninn og bökuð þar til
hún á nokkrar mínútur eftir, þá er
humrinum bætt út á og látinn bakast
með síðustu mínúturnar. Ferskri
basiliku stráð yfir pizzuna áður en
hún er borin fram.
EFTIRRÉTTUR
Súkkulaðimús
(fyrir 4)
100 g suðusúkkulaði
2 eggjarauður
2½ dl rjómi
Aðferð: Súkkulaði brætt yfir
vatnsbaði og látið kólna aðeins áður
en eggjarauðum er hrært saman við.
Hrærið þar til blandan er orðin slétt.
Rjómi þeyttur létt og blandað við
súkkulaðiblönduna í litlum
skömmtum með sleikju þar til allt
hefur blandast vel. Súkkulaðimúsin
Humarpizza og
súkkulaðimús
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
Ásdís Adda og Sigurgeir Þór matreiða
Ásdís Adda og Sigurgeir Þór með synina. MYND ÚR EINKASAFNI
Súkkulaðimús. MYND AF NETINU
35/2018 15
Ótrúlegt – en kannski satt..
Íslenski hesturinn var nefndur þarfasti þjónninn í gegnum aldirnar
og ýmislegt við hann kennt, ekki síst graðhestana. Túrhestar,
lestarhestar og hjólhestar eru þekktir og sumir hlægja eða borða
eins og hestar. Graðhestaskyr var þekkt á árum áður og ótrúlegt,
en kannski satt, þá var orðið graðhestatónlist fyrst notað til að lýsa
tónlist Bítlanna í tímaritinu Fálkinn frá árinu 1964. Vísindavefurinn
segir að greinin hafi fjallað um firmakeppni hesta.
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum.
Undir hús mig hafa þarf.
Hef í tímamæli starf.
Lítill partur punds ég er.
Púðrið í því sem skráð er hér.
FEYKIFÍN AFÞREYING