Feykir - 17.10.2018, Blaðsíða 9
hugann og ef það er eitthvað sem
ég hugsa þá er það hvaða fluga
eigi að fara næst undir!
Hverju missirðu helst ekki af
í sjónvarpinu? Humm,,,,, eins
ótrúlegt og það nú er þá eru það
ekki lögregluþættirnir, heldur
finnst mér alveg ferlega gaman
að horfa á Masterchef þættina
með Gordon Ramsey. Og svo er
ég farinn að hlakka mikið til að
sjá Sporðakasta þættina í vetur
sem hann Eggert Skúlason vinur
minn er búinn að vera að mynda
í sumar.
Besta bíómyndin? Þær eru
eiginlega tvær. Mér finnst
Shawshank Redemption algjör
snilld og ég horfi reglulega á
hana. Hún segir eiginlega ekkert
um sekt eða sakleysi heldur
leyfir áhorfandanum að mynda
sér skoðun um það. Svo er það
Sixth Sense. Ég sagði bara vá við
sjálfan mig þegar ég áttaði mig á
uppbyggingu myndarinnar. Þvílík
snilld!
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Þegar ég
var krakki þá leit ég upp til
Strandamannsins sterka, Hreins
Halldórssonar, og var með mynd
af honum á vegg í herberginu
mínu. En verandi mikill Man-
chester United aðdáandi þá var
Bryan Robson mikill uppáhalds-
knattspyrnumaður hjá mér.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir
á þínu heimili? Þú verður eiginlega að spyrja Elínu
að því. Ég dreg allavega björg í
bú. Lax, silung, gæsir, endur og
rjúpur!
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Ha ha ha ha,,,, það
er sko „Hakk með loki“! Steikt
hakk, sveppir og laukur á pönnu
og sett í eldfast mót. Kartöflumús
ofan á og svo gratínostur yfir það.
Sett í ofn í 20 mínútur. Geggjað
gott!
Hættulegasta helgarnammið?
Obbobobbbb... mér fannst og
finnst lakkrís góður... en... má
ekki lengur. Þannig að mér finnst
poppkorn annað slagið vera mjög
gott.
Hvernig er eggið best? Svona
miðlungs harðsoðið á rúgbrauð
með reyktum laxi sem að ég
veiddi sjálfur.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari þínu? Get verið ferlega
gleyminn, þannig að ég er farinn
að punkta hjá mér það sem ég
þarf að gera! Ef ég man eftir því
að punkta hjá mér…
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? Að koma of seint
eitthvert. Ég reyni að vera alltaf
á tíma hvert það sem ég þarf að
fara eða gera. Leiðist að þurfa að
bíða eftir öðrum.
Uppáhalds málsháttur eða
tilvitnun? Ég bíð í „ofnæmi“.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? Mig rámar í það að hafa verið
í hálfgerðu beisli og barnapían
að dröslast með mig haldandi í
tauminn.
Þú vaknar einn morgunn í líkama
frægrar manneskju og þarft að
dúsa þar einn dag. Hver værirðu
til í að vera og hvað myndirðu
gera? Ég væri til í að vera sir
Alex Ferguson og ég myndi nota
daginn til að komast að því hvað
væri eiginlega í gangi innanhúss á
Old Trafford.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur? Mín uppáhalds-
bók fyrr eða síðar er bókin Ég man
þig eftir Yrsu Sigurðardóttur. Ég
man ekki eftir að hafa nokkurn
tíma lesið bók sem var jafn
myndræn. Ég missti mig alveg
langt fram á nótt við lestur.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Já sæll!
Hvaða þremur persónum vildirðu
bjóða í draumakvöldverð? Sir
Alex Ferguson, Sir Bobby Charlton
og Sir Matt Busby. Ég myndi
drekka í mig allan þeirra fróðleik
um knattspyrnu.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? Ég færi
aftur til áranna á Drangsnesi.
Mig langar til að vera aftur orðinn
polli á bryggjunni algjörlega
áhyggjulaus að dorga fyrir
þyrskling og fá kalda mjólk og
köku hjá ömmu fyrir háttinn.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Hvenær kemur sá stóri?
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu... Til Afríku. Mig langar að
sjá villt dýr í sínu rétta umhverfi og
taka mikið af myndum.
Nefndu eitthvað þrennt sem þér
finnst þú mega til að gera áður
en þú gefur upp öndina: Mig
langar að veiða í Alta ánni í Noregi
þar sem risastóru laxarnir synda
um. Ferðast meira, það er aldrei
nóg ferðast. Sjá barnabörnin vaxa
úr grasi.
Hvernig nemandi varstu? Ég
myndi segja að ég hafi verið
afskaplega þægilegur nemandi
þ.e.a.s. fyrir kennarana, það var
ekki mikið vesen á mér.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Ég fermdist
í stórum hóp unglinga í Bústaða-
kirkju og það er minnisstætt
þegar að félagi minn sem sat fyrir
framan mig missti sálmabókina á
gólfið, beygði sig fram og við það
rifnaði kirtilinn á bakinu með háu
hljóði og allir fóru að hlægja.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Það voru aldrei
neinir sérstakir draumar um það.
Jú, einhvern tima ætlaði ég að
verða flugmaður.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki?
Actionman í skriðdreka.
Besti ilmurinn? Ilmurinn af
jólum! Og þá meina ég lyktin af
nýsoðna hangikjötinu eða ham-
borgarhryggnum.
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið? Eightie's,,,
alæta á allt. Man þó eftir þvi
þegar ég var að renna niður
Laugaveginn á Græna Golfinum
mínum með Duran Duran í botni
og alla glugga opna.
Hvernig slakarðu á? Ég verð
að segja að ég slaka best á við
stangveiðar. Standa út í góðri á
og kasta flugu fyrir lónbúann, hvað
er betra. Maður tæmir algjörlega
NAFN: Höskuldur Birkir Erlingsson.
ÁRGANGUR: 1965.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur góðri konu, Elínu Rósu Bjarnadóttur
og eigum við samtals 7 börn og 6 barnabörn.
BÚSETA: Blönduós (Nafli alheimsins).
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALINN: Foreldrar mínir eru Erling
Birkir Ottósson frá Borðeyri í Hrútafirði og Gunnhildur
Höskuldsdóttir frá Drangsnesi við Steingrímsfjörð. Ég er
fæddur og uppalinn í Reykjavík en eyddi stórum hluta æsku
minnar á Drangnesi hjá móðurafa mínum og ömmu. Góðir
tímar sem að ég hugsa til með mikilli ánægju. Það var gott að
vera á Drangsnesi og þar gerðust ævintýrin.
STARF / NÁM: Ég er lærður símsmiður frá Póst,- og símaskólanum
og starfaði þar í sex ár þar til að ég byrjaði í lögreglunni
1986, vikuna eftir leiðtogafund. Ég starfaði í lögreglunni í
Reykjavík í sex ár, á Hólmavík í níu ár og er núna búinn að
vera á Blönduósi í 17 ára og er aðalvarðstjóri þar.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Veiði og aftur veiði. Ég veiði á stöng eins
lengi og hægt er fram eftir hausti, lax og silung. Svo taka við
gæsa, og rjúpnaveiðar.
Höskuldur með einn þokkalegan golla. MYND ÚR EINKASAFNI
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
Höskuldur Birkir
39/2018 9