Feykir - 24.10.2018, Síða 6
VIÐTAL
Páll Friðriksson
að lífið snýst um körfubolta í Skagafirði. Afrakstur
síðasta keppnistímabils hjá meistaraflokki karla hjá
Tindastól var bikarmeistaratitill og annað sætið í
deildinni. Einn af máttarstólpum liðsins er Skagfirð-
ingurinn Viðar Ágústsson og hefur hann gert garðinn
frægan enda einn besti varnarmaður Domino's
deildarinnar. Viðar er í hópi fjögurra systkina sem öll
leika í meistaraflokkum Tindastóls en nú í vetur teflir
félagið fram meistaraflokki kvenna. Kvenna megin eru
þær Rakel Rós og Marín en Ragnar er með bróður
sínum karla megin. Fyrir hina ættfræðiþyrstu
þá eru foreldrar þeirra Viðars, Rakelar, Ragnars og
Marínar þau Guðbjörg Ragnarsdóttir og Ágúst
Andrésson á Sauðárkróki.
Feykir fékk þau systkini í smá leik þar sem þau svara
laufléttum spurningum og kemur þar fram að þau eru
ansi samstillt, öll varnarsinnuð, hafa gaman af hestum
og skemmtilegasta sem þau gerðu í sumar var
fjölskylduferð um Evrópu.
Það er ekki óþekkt að systkini leiki saman í liði en að þau skulu vera fjögur í Meistaraflokkum sama félags er líklega heimsmet, allavega á Íslandi. MYND: PF
Frækin körfuboltasystkin á Sauðárkróki
Marín, Ragnar, Viðar og Rakel leika
öll í meistaraflokkum Tindastóls
Marín Lind
Keppti fyrir hönd Íslands
með U15 landsliðinu
Marín er fædd árið 2003 og
er því í 10. bekk í Árskóla.
Körfuboltinn hefur alltaf
heillað hana mest og þrátt
fyrir að hafa prófað ýmis-
legt annað hefur hún haldið
tryggð við körfuna. „Held
að ástæðan sé aðallega sú
hvað ég er með æðislega
og hvetjandi liðsfélaga með
mér og alltaf mikil stemning
í kringum okkur,“ segir þessi
magnaði bakvörður meist-
araflokks Tindastóls.
Helsti styrkleiki þinn?
-Ég myndi segja að við
systkinin værum öll sterk
varnarmegin og finnst mér
minn styrkleiki vera að keyra
á körfuna.
Hvað þyrftir þú helst að
bæta hjá þér?
-Vinstri höndina.
Skemmtilegasta augnablikið?
-Þegar ég fór til Kaupmanna-
hafnar í sumar að keppa fyrir
hönd Íslands með undir 15
ára landsliðinu.
Neyðarlegasta atvikið?
-Man ekki eftir einhverju
svakalegu núna. Eina sem
mér dettur í hug er að ég
man þegar ég var á einu af
mínum fyrstu fjölliðamótum
og ruglaðist aðeins og skaut
á vitlausa körfu, ég hitti
reyndar ekki en mér fannst
það mjög vandræðalegt.
Helsta afrek fyrir utan
íþróttirnar?
-Ég hef alltaf reynt að nýta
hindranir og erfiðleika í
lífinu sem reynslu og ég held
að það hafi gert mig sterkari
og að þeim einstakling sem
ég er í dag.
Áttu önnur áhugamál en
körfubolta?
– Já, ég hef gaman af frjálsum
og hestamennsku.
Hvað gerðir þú skemmti-
legt í sumar?
-Í maí fórum við fjölskyldan
í utanlandsferð og ferðuð-
umst um Frakkland, Ítalíu og
Spán og svo í júní fór ég til
Kaupmannahafnar í
keppnisferð.
Er mikið rætt um körfu-
bolta á heimilinu?
-Já, þessi umræða kemur oft
upp enda finnst okkur
skemmtilegt að ræða þetta
okkar á milli.
Er metingur á milli ykkar
systkina?
-Nei, hef ekki fundið fyrir því.
Ef þú mættir hoppa upp í
flugvél og velja þér hvaða
lið sem er í heiminum til að
spila með, þá færirðu í?
- Ég hugsa að ég myndi
hoppa aftur út úr vélinni og
halda mig heima í Tindastól.
Hvar heldur þú að þitt lið
endi eftir þetta tímabil?
-Ég spái því að liðið mitt í 10.
flokki kvenna endi á toppn-
um, lentum í öðru sæti í fyrra
en þetta árið ætlum við að
ná Íslandsmeistaratitlinum.
En með meistaraflokknum
stefnum við á úrslitakeppnina.
Eitthvað sem þú vilt koma á
framfæri?
-Myndi segja að ég sé
virkilega heppin að eiga ekki
bara eina, ekki tvær, heldur
þrjár æðislegar fyrirmyndir
sem ég get litið upp til og
kenna mér alltaf meira og
meira með tímanum.
Ragnar
Heldur að Stólarnir
geti náð langt
Ragnar er á öðru ári í
Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra, fæddur árið
2001 og því 17 ára gamall.
Hann segist vera „alt
muligt“ maður á vellinum
en „go to“ staðan er fram-
herji, þristur, fjarki. Í síð-
asta leik Tindastóls gegn
Haukum kom Ragnar inn
á og stóð sig vel, skoraði
tvö stig og beitti sér vel í
vörninni. Hann segist hafa
byrjað á svipuðum tíma að
æfa körfu og fótbolta en
fann sig betur í körfunni.
„Ætli helsta ástæðan sé
ekki Viðar og félagar hans.
Fylgdist mikið með þeim
þegar ég var yngri,“ segir
hann.
Helsti styrkleiki þinn?
-Ég tel minn styrkleika vera
vörnina.
Hvað þyrftir þú helst að
bæta hjá þér?
-Ætli ég þurfi ekki að bæta
sjálfstraustið.
Skemmtilegasta augnablikið?
-Það var mjög skemmtilegt
þegar ég varð bikarmeistari
með drengjaflokki í Þór
Akureyri í fyrra.
Neyðarlegasta atvikið?
-Ég man nú ekki eftir neinu
ákveðnu atriði en það var
frekar neyðarlegt þegar ég
las vitlaust á leikklukkuna á
fjölliðamóti og hélt það væru
2 sekúndur eftir en ekki 2
mínútur og skaut boltanum
frá miðju þegar við vorum
tveimur stigum undir.
Helsta afrek fyrir utan
íþróttirnar?
-Það er svo sem ekkert eitt
sem mér dettur í hug en ætli
það sé ekki bara að reyna að
standa sig vel í námi og
íþróttum.
Áttu önnur áhugamál en
körfubolta?
–Í frítíma mínum reyni ég að
hitta vini mína og eyða tíma
með fjölskyldunni.
Hvað gerðir þú skemmti-
legt í sumar?
-Við fjölskyldan fórum
til útlanda saman og
ferðuðumst innan Evrópu. Stoltir leikmenn í Tindastólsbúningi. MYND: PF
Landsmenn hafa fengið að
fylgjast með því undanfarin ár,
og ekki síst eftir síðasta vetur,
6 40/2018