Feykir - 31.10.2018, Qupperneq 11
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS:: Hestur.
Feykir spyr...
Kanntu
skemmtilega
„pikköpp“ -línu?
Spurt á Facabook
UMSJÓN palli@feykir.is
„„Hvaða skoðun hefurðu
á Evrópusambandinu?“ er
skemmtileg og „Ef þú værir saga
þá værir þú ástarsaga“ er líka
góð fyrir þá sem vilja
meiri rómantík.“
Helga Stefánsdóttir
„Ást mín til þín er eins og
niðurgangur, ég get ekki
haldið henni inni.“
Ólafur Guðmundsson
„Ef ég færi nú að rifja upp
pikköpplínurnar mínar yrði
nú allt vitlaust en það dugði nú
bara að segjast vera úr Lýdó.“
Guðbjörg Elsa Helgadóttir
„Pikköpp línan er fyrir
skagfirska hestamenn og er
eftir mig:
Mikið þætti mér það gott,
að við riðum saman,
við höfum ekki gert það oft,
en ávallt þótt það gaman.
Þetta væri ekki góð Pikköpp
lína í 101 RVK, fengjum sjálfsagt
einn á lúðurinn!“
Ágúst Kárason
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Krossgáta
Tilvitnun vikunnar
Ástríða er brúin sem færir þig frá sársauka til breytinga.
– Frida Kahlo
Su
do
ku
200 g skinka
1 bolli soðin hrísgrjón
3 msk aspas
3 msk ananaskurl
Aðferð: Öllu hrært saman og sett í
tartalettur, rifinn ostur settur yfir og
gott að strá smá season all yfir. Sett í
ofn við 150° í 10 mínútur.
GEGGJAÐUR EFTIRRÉTTUR
Súkkulaði lúxus
með rjóma
4 egg
3 dl sykur
200 g smjör
200 g suðusúkkulaði
150 g heslihnetur eða Daim kúlur
1 dl hveiti
Aðferð: Þeytið vel saman egg og
sykur. Bræðið súkkulaðið og smjörið
í potti. Blandið hveitinu og hnet-
unum/ Daim kúlunum saman við
eggjahræruna og setjið svo súkku-
laðið varlega saman við. Bakið í
eldföstu móti við 150° í 1 klst. neðst
í ofninum.
Berið fram með þeyttum rjóma
eða ís. Gott að setja ferska ávexti ofan
á t.d. jarðaber, vínber, bláber, banana
eða kiwi.
Verði ykkur að góðu!
Steinunn og Sigurður skora á bróður
Steinunnar og sambýliskonu hans,
Stefán Val Jónsson og Hafdísi
Einarsdóttur.
Matgæðingar þessarar viku eru þau Steinunn Valdís Jónsdóttir og
Sigurður Ingi Ragnarsson sem búsett eru á Sauðárkróki. Steinunn
starfar í Sundlaug Sauðárkróks en Sigurður er rafiðnfræðingur og
vinnur á Tengli og kennir einnig í fjölbrautaskólaskólanum.
Steinunn og Sigurður eiga fjögur börn á aldrinum 13-23 ára.
Þau ætla að gefa okkur uppskriftir að þremur réttum sem þau segja
fljótlegar og vinsælar hjá fjölskyldumeðlimum.
RÉTTUR 1
Kjúklingaréttur
Freistandi kjúklingur í
púrrulauks- og sweet chili
rjómasósu (fyrir 5):
5 kjúklingabringur, skornar í
teninga (gúllas stærð)
1 púrrulaukur, smátt skorinn
2 dósir sýrður rjómi
1 lítil dós rjómaostur (125 g)
1 teningur kjúklingakraftur
2 hvítlauksrif, smátt söxuð eða rifin
4-5 msk sweet chilli sósa (eftir
smekk)
1 dl rifinn ostur
salt og pipar
Aðferð: Hitið ofn í 200° með blæstri.
Hitið pönnu með smá smjöri eða
olíu, saltið og piprið kjúklingabitana
og brúnið þá vel eða þar til þeir eru
nánast fulleldaðir. Setjið kjúklinginn
í eldfast mót. Lækkið hitann á
pönnunni, setjið smá olíu eða smjör á
pönnuna og steikið púrrulaukinn þar
til hann mýkist aðeins, u.þ.b. 3
mínútur.
Setjið rjómaostinn, sýrða
rjómann, kjúklingatening, hvítlauk
og sweet chilli sósuna út á og leyfið að
malla aðeins, smakkið til með sweet
chilli sósunni. Bætið örlitlu vatni
saman við sósuna ef ykkur finnst hún
of þykk. Stráið rifna ostinum yfir
kjúklingabitana og hellið sósunni því
næst yfir. Bakið í ofni við 200° í 15
mínútur eða þar til kraumar í sósunni
og hún hefur tekið lit. Berið fram
með góðu grænu salati og grjónum.
RÉTTUR 2
Tartalettur
100 g rjómaostur
2 msk majónes
2 egg
½ tsk aromat krydd
½ tsk seson all
½ tsk karrý
Tartalettur, kjúklingur í
sweet chili rjómasósu og
geggjaður eftirréttur
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
Steinunn Valdís og Sirurður Ingi á Króknum matreiða
Sigurður Ingi og Steinunn Valdís. MYND ÚR EINKASAFNI
41/2018 11
Ótrúlegt – en kannski satt..
Jörðin er þriðja reikistjarnan frá sólu, fimmta stærsta í sólkerfinu
en stærsta bergreikistjarnan, eftir því sem fram kemur á
stjörnufræðivefnum. Jörðin er 330.000 sinnum massaminni en
sólin og 109 sinnum minni að þvermáli. Væri sólin hol að innan
kæmust meira en milljón jarðir fyrir í henni. Ótrúlegt, en kannski
satt, þá gengur maðurinn að jafnaði sem svarar fimm sinnum í
kringum jörðina um ævina.
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum.
Ég er bær í Borgarfirði.
Á baki mínu er íþrótt háð.
Tifaði fyrrum títt með byrði.
Trójumönnum bruggað ráð.
FEYKIFÍN AFÞREYING