Feykir - 07.11.2018, Síða 7
Ský hafði dregið fyrir sólu, er hópurinn yfirgaf Selið
um kl. 13:30 en létt var yfir mannskapnum. Nú var
haldið á Fjöllin og Sigurbjörn Jónsson bílstjóri sagði
frá nöfnum á fjöllum og hálsum. Fram kom að
búið var í Víðidal, líklega til 1994, en þar standa nú
aðeins eftir leifar af fjárhúsum. Næst var ekið um
Vegaskarð. Austan þess er vegurinn til Möðrudals
en þjóðvegurinn liggur áfram um Langadal og síðan
um Háreksstaðaflóa. Þar er eyðibýlið Háreksstaðir,
þar sem séra Sigurjón Jónsson (1881–1965) ólst
upp. Hann var prestur að Barði í Fljótum og síðan
á Kirkjubæ í Hróarsstungu. Kona hans var Anna
Sveinsdóttir (1894–1990), systir Guðrúnar (1895–
1977) í Eyhildarholti. Ingólfur Arnar Þorkelsson
(1925–2005), fyrrum skólameistari Menntaskólans í
Kópavogi, fæddist á Háreksstöðum og er síðasta barn,
sem þar kom í heiminn. Komið var til Egilsstaða kl.
15:35 og farið þaðan kl. 16:20.
Farkosturinn og bílstórinn, Sigurbjörn Jónsson.
Nú tók Sveinn Sigurbjarnarson (f. 1945) við akstrinum
af Sigurbirni Jónssyni, tengdasyni sínum. Sveinn benti
farþegum, sem sjóveikir væru, á að betra væri að nota
pilluna en plásturinn því menn gætu orðið vankaðir
af honum daginn eftir. Síðan lýsti hann skipinu
Norrænu lauslega og benti fólki á að víndrykkja gæti
haft slæm eftirköst. Þá sagði hann að hvert okkar fengi
tvö kort, annað til að komast um borð í skipið og hitt
að herberginu. Ekið var eins og leið liggur fram með
Heiðarvatni og niður Fjarðarheiði. Vegur sá er brattur
og beygjur margar. Seyðisfjörður heilsaði okkur með
sól og blíðu veðri. Þangað komum við um kl.17:00.
Seyðisfjörður var um langa tíð aðal verslunarstaður
Austfirðinga.
Þegar við komum um borð fengum við Jóna okkur
kjúkling og svínakjöt, sem kostaði um 2.000.- kr. ísl.
á mann. Frá Seyðisfirði var farið kl. 20:00. Norræna
tekur um eitt þúsund farþega og 3 til 4 hundruð bíla.
Gott var í sjóinn og fórum við út á þilfar á fimmtu
hæð og horfðum til lands. Fljótlega liðum við fram hjá
Dalatanga, þar sem Marsibil Erlendsdóttir (f. 1960)
stendur vaktina. Á Siglunesi var hún til átta ára aldurs
en þar voru foreldrar hennar, Erlendur Magnússon
(1930–2012) og hans þýska kona Elfríður Pálsdóttir
(f. 1930) vitaverðir til 1968 að þau fluttu að Dalatnga
og tóku þar við vörslu vitans og önnuðust hana til
1994 að Marsibil tók við. Eftir að hafa séð Austfirðina
hverfa í rökkurhúmið fórum við að sofa í herbergi
nr. 22. á áttundu og efstu hæð ásamt Kristínu Helga-
dóttur (f. 1946) og Ingimar Jóhannssyni (f.1949).
Frekar er herbergið þröngt og snyrting enn þrengri.
Fimmtudagur 30. ágúst.
Við vöknuðum klukkan hálf tíu eftir góðan svefn og
fórum niður í matsalinn á fimmtu hæð og fengum
okkur kaffi og kakó. Síðan fórum við út á þilfar og
biðum eftir landsýn. Fyrst munum við hafa séð Kallur
á vinstri hönd og Riftanga á þá hægri en Norræna
sigldi inn Djúpin á milli Austureyjar og Karlseyjar,
um Leirvíkurfjörð og síðan inn til Þórshafnar, sem
er á Straumey. Skipið lagði að landgangi í Þórshöfn,
í sól og blíðu, eftir 18 tíma siglingu og í rútuna hjá
Sveini vorum við komin um klukkan þrjú og ekið að
Kirkjubæ. Við sáum nokkrar kindur á leiðinni og gat
Sveinn þess að um 70.000 fjár væri í Færeyjum en
ekkert sláturhús og fé því lógað heima.
Ólafskirkja á Kirkjubæ.
Kirkjubær er merkasti sögustaður Færeyja. Þar var
biskupsetur stofnað um 1100 og var svo til 1557 að
biskupinn flutti til Stafangurs í Noregi.
Altaristaflan í Ólafskirkju. Hún er síðasta verk Sámals Joensen Mikines
(1906- 1979).
Ólafskirkja er elsta kirkjan í Færeyjum., sem enn er
í notkun og var dómkirkja í kaþólskum sið.Var vígð
árið 1111.
Múrinn.
Gamla íbúðarhúsið á Kirkjubæ, sem enn er búið í. Baka til nær fjallinu er
Reykstofan talin vera um 900 ára gömul.
Byrjað var að byggja Magnúsardómkirkjuna (Múrinn)
um 1300 en aldrei var lokið við hana. Hún er byggð úr
færeysku blágrýti.
Á Kirkjubæ hefur Paturssonættin búið síðan um
miðja sextándu öld. Joannes Patursson býr nú í gamla
íbúðarhúsinu með fjölskyldu sinni en afi hans var
skáldið og fullveldissinninn, Joannes Patursson, sem
kvæntur var Guðnýju Eiríksdóttur frá Karlskála í
Reyðarfirði, sem áður er getið.
Legsteinn Guðnýjar Eiríksdóttur og Jóannesar Paturssonar.
Frá Kirkjubæ var ekið um þorpið Velbastað, en þar
er meðferðarheimili fyrir áfengissjúklinga, sem
Færeyingar kalla Þurrkhúsið. Að svo komnu máli var
ekið til Hótel Færeyja, þar sem fólk kom sér fyrir.
Komin á Hótel Færeyjar. Helga fararstjóri að huga að ferðalöngum.
Við Jóna fengum herbergi númer 303 í húsi nokkuð
frá hótelinu. Klukkan sjö mættum við í kvöldmat, sem
var lax með ýmsu góðgæti. Hin ágætasta máltíð.
Hluti hópsins kominn til kvöldverðar fimmtudaginn 30. ágúst.
Hótel Færeyjar stendur fyrir ofan Þórshöfn og sér
þaðan vel yfir hluta bæjarins og til Nólseyjar en þar
fæddist Nólseyjar–Páll árið 1766. Hann varði hluta
ævi sinnar í að berjast fyrir frjálsri verslun og bættum
hag Færeyinga.
>> Framhald í næsta Feyki.
Heimildir:
1. Gunnlaugur Björnsson 1957. Hólastaður. Bændaskólinn 75 ára.
2. Guðmundur Jónsson 1979. Bændaskólinn á Hvanneyri 90 ára.
3. Sigtryggur Jón Björnsson. Upplýsingar um námsdvöl. Óbirt handrit.
4. Gils Guðmundsson 1968. Lönd og lýðir, V. bindi. Færeyjar bls. 181.
5. Wikipedia. Frjálst alfræðirit.
6. Elín og Jón Hafdal. Morgunblaðið, minningagrein 3. mars 2012.
42/2018 7