Feykir - 12.12.2018, Blaðsíða 10
Ánægðust með upphlutinn á yngstu dótturina
skemmtilegast að vinna?
-Mér finnst öll handavinna
skemmtileg og alltaf gaman
að læra eitthvað nýtt. Ég
hef undanfarið verið mest
í prjónaskap, smitaðist
algjörlega af sjalaveikinni og
hef verið að prjóna nokkur
sjöl. En þegar börnin voru lítil
saumaði ég mjög mikið á þau
og mig, þá voru efni ekki eins
dýr og er í dag og það borgaði
sig alveg að sauma fatnað
frekar en að kaupa.
Hverju ertu að vinna að um
þessar mundir? -Ég er nýbúin
að ljúka við heimferðasett
á nýjasta barnabarnið sem
verður líklega komið í
heiminn þegar þessi grein
birtist. [Þess má geta að
þátturinn hefur þurft að bíða
birtingar dágóðan tíma og
dóttursonurinn fæddist í lok
september.] Ég hef prjónað eða
heklað ófá heimferðasettin,
bæði fyrir mín börn og öll
barnabörnin sem eru nú að
verða fimm talsins, einnig hef
ég gert sett fyrir nokkra aðra.
Það er alltaf sérstök tilfinning
sem fylgir því að prjóna á
ófædd kríli.
Hvaða handverk sem þú hefur
gert ert þú ánægðust með?
Ætli ég sé ekki ánægðust með
upphlutinn sem ég saumaði á
yngstu dótturina síðastliðinn
vetur. Þá fór ég á námskeið
hjá Helgu Sigurbjörnsdóttur
á Sauðárkróki og naut hand-
leiðslu hennar við sauma-
skapinn, það var alveg
einstaklega gaman og fylgdi
því svipuð tilfinning og þegar
ég gerði skírnarkjólinn í
grunnskóla. Það er eitthvað
sérstakt við að vinna svona
verkefni þar sem maður er
að vinna með dýr efni og
nánast allt unnið í höndunum,
saumavélin ekki mikið notuð
og allt gert eftir kúnstarinnar
reglum.
Eitthvað sem þú vilt bæta við?
-Það er virkilega ánægjulegt
hvað handverk af ýmsum toga
er vinsælt í dag. Það er mikil
gróska í því og með tilkomu
samfélagsmiðlanna hefur
áhuginn aukist mikið, það eru
margir skemmtilegir hópar
í gangi á Facebook og þar er
handverksfólk að hjálpast að
og deila því sem það er að gera.
Þannig fær maður endalaust
innblástur og hvatningu
og lærir eitthvað nýtt og
skemmtilegt.
Þá finnst mér líka frábært
hvað það eru margir sem eru
að hanna íslenskar uppskriftir
og lita garn, þar er alltaf að
bætast í flóruna og úr mörgu
að velja. Það eru líka margar
góðar handavinnubúðir starf-
ræktar í dag og standa sig vel
í að þjónusta okkur handóða
fólkið.
Solveig skorar á nöfnu
sína í Stóragerði, Sólveigu
Jónasdóttur, að segja okkur
frá sinni handavinnu í næsta
þætti.
( HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM ) frida@feykir.is
Solveig Pétursdóttir á Hofsósi
Solveig skartar hér fallegri lopapeysu. MYNDIR ÚR EINKASAFNI
Solveig Pétursdóttir á Hofsósi
tók áskorun frá Kristínu S.
Einarsdóttur og segir okkur
frá handavinnunni sinni í
þættinunm að þessu sinni.
Áhugi Solveigar á handavinnu
kviknaði snemma og hefur
hún unnið að mörgum
tegundum handverks í
gegnum tíðina. Solveig segir
að sér þyki gott að vera með
nokkur verkefni í vinnslu sem
hægt er að grípa í eftir því
hvað hentar hverju sinni og
þegar hún svaraði
spurningum þáttarins var hún
með tvær peysur á
prjónunum, aðra símunstraða
í fjórum litum sem hún sagði
þurfa alla hennar athygli og
hina einfalda úr mohair,
þægilega til að grípa í við
sjónvarpið. Þar til viðbótar
voru eitt og annað
hliðarverkefni í takinu svo
sem heklaðar tuskur og fleira.
Hve lengi hefur þú stundað
hannyrðir? -Ég hef alltaf haft
mjög gaman af alls konar
handverki og sá áhugi vaknaði
mjög snemma. Ég lærði mest
hannnyrðir í grunnskóla
en hef svo líka farið á mörg
námskeið til að bæta við
þekkinguna og prófa eitthvað
nýtt, til dæmis bútasaum,
leðursaum, taumálun og fleira.
Ein jólin gerði ég til dæmis
allar jólagjafirnar, þá málaði
ég myndir á boli og handklæði
og gaf, það var skemmtilegt
verkefni og tóku bæði börnin
og bóndinn þátt í því.
Ég var síðasta vetur
grunnskólans í Varmahlíð þar
sem Helga Friðbjörnsdóttir
kenndi handmennt og þar
lærði ég mikið. Verkefnin
voru fjölbreytt, skemmtileg og
krefjandi, til dæmis saumaði
ég þar skírnarkjól sem hefur
verið mikið notaður. Mér
fannst það mjög skemmtilegt
en man að ég var dálítið
stressuð yfir því vegna þess
að þetta var mikið saumað í
höndunum og efnið í dýrari
kantinum, silki og tjull sem
saumað var í með gullþræði
og vanda þurfti til verka. En
Helga var frábær kennari og
gott að læra hjá henni, hún
var svo hvetjandi og ýtti svo
sannarlega undir áhugann hjá
mér á hannnyrðum.
Hvaða handavinnu þykir þér
Sonja, dóttir Solveigar, í upphlutnum fína.
Skírnarkjóllinn sem Solveig saumaði í
grunnskóla.
Prjónakjóll sem elsta dóttirin klæddist
við stúdentsútskrift sína.
Heimfararsettið á litla dóttursoninn sem fæddist í haust.
10 47/2018