Fréttablaðið - 22.04.2020, Side 14

Fréttablaðið - 22.04.2020, Side 14
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Elsku móðir okkar, tengdamóðir og amma, Svana Sigtryggsdóttir Syðri-Kárastöðum, lést á Landspítalanum 19. apríl. Vegna ástandsins í samfélaginu mun útförin fara fram í kyrrþey. Ólafía R. Ingólfsdóttir Jón Óskar Pétursson Unnsteinn Fannar Ingólfsson Jón Loftur Ingólfsson Elísa Sigríður Guðmundsdóttir Guðbjörg Lilja Ingólfsdóttir og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Kristín Guðmundsdóttir Strandvegi 1, Garðabæ, lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 13. apríl. Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu mun útför hennar fara fram í kyrrþey. Valsteinn Víðir Guðjónsson Þóra Björk Valsteinsdóttir Asimakis Tsoukalas Valsteinn Konstantín Tsoukalas Kristín Krisúla Tsoukala Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurjón Guðjónsson vélfræðingur, Vorsabæ 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi, föstudaginn 17. apríl. Magnea Helgadóttir Ragna Jóna Sigurjónsdóttir Magnús Matthíasson Helgi Sigurjónsson Freydís Ármannsdóttir Ingibjörg Sigurjónsdóttir Grímur Þór Grétarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær systir okkar, mágkona og frænka, Sylvia Sveinsdóttir frá Hveravík, Hafnargötu 66, Keflavík, lést á heimili sínu, mánudaginn 20. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Alda Sveinsdóttir Valdimar Axelsson Reynir Sveinsson og frændsystkini. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamamma, amma og langamma, Helga Valtýsdóttir Einilundi 6, Garðabæ, lést þann 19. apríl á Hrafnistu í Hafnarfirði. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu mun útförin fara fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til starfsfólks Ölduhrauns fyrir hlýju og alúð við umönnun. Björn Björnsson Ásta María Jónasdóttir Hallgrímur Júlíusson Sigríður Björnsdóttir Páll Ásmar Guðmundsson Birna Björnsdóttir Anthony Mills barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Hildur Björnsdóttir lést þann 18. apríl í faðmi fjölskyldunnar. Útförin fer fram í kyrrþey. Með sérstökum þökkum til Heimahlynningarinnar á Akureyri viljum við benda þeim sem vilja minnast hennar á Heimahlynninguna og Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Yngvi Hrafn Pétursson Helena Guðlaug Bjarnadóttir Inga Gerða Pétursdóttir Jón Ágúst Guðmundsson Jón Sigurbjörn Pétursson og barnabörn. Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Sigurrós Ingvadóttir lést á heimili sínu laugardaginn 18. apríl. Útför verður auglýst síðar. Bára Mjöll Ágústsdóttir Helgi Magnús Baldvinsson Jóna Vigdís Kristinsdóttir Stefán Þorvaldsson Ómar Þór Ágústsson Margrét Rósa Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Þóra Kristín Helga Magnúsdóttir Klettahlíð 18, Hveragerði, lést 18. apríl á hjúkrunarheimilinu Fossheimum, Selfossi. Útförin fer fram í kyrrþey. Minningarathöfn verður auglýst síðar. Þeir sem vilja minnast hennar láti Fossheima njóta þess. Starfsfólki Fossheima þökkum við sérstaklega góða umönnun og hlýju. Guðbrandur Valdimarsson Magnús Jensson Ásta Guðleifsdóttir Ólöf Ásbjörg Grissom David Grissom barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Sigurborg Skjaldberg lést þann 16. apríl sl. á Landspítalanum. Vegna aðstæðna verður eingöngu nánasta fjölskylda viðstödd útförina sem fram fer 30. apríl nk. en minningarathöfn verður haldin síðar. Baldur Snæhólm Einarsson Katrín Snæhólm Baldursdóttir Ólafur Kristjánsson Ólöf Snæhólm Baldursdóttir Davíð Snæhólm Baldursson Stella Ingibjörg Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Guðmundur Guðbrandsson bóndi, Saurbæ, Vatnsdal, lést 19. apríl. Útför mun fara fram í kyrrþey en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök HSN á Blönduósi. Starfsfólki HSN viljum við færa bestu þakkir fyrir góða umönnun á liðnum árum. Sigrún Grímsdóttir börn, tengdabörn og barnabörn. Ætli krían sé ekki nýjasti farfuglinn? Ég sá  tvær þann 18. apríl og  áðan voru  milli tíu og tuttugu úti í Óslandi, segir Brynjúlfur Brynjólfsson, fugla- áhugamaður á Höfn, sem fylgist vel með  komu hinna  vængjuðu sumar- dvalargesta.  Hann segir þá ekki alla komna. „Einn og einn af hverri tegund slæðist oft á undan, svo kemur megnið á réttum tíma. Áttirnar hafa verið þeim hagstæðar síðustu daga.“ Brynjúlfur, eða Binni, eins og hann er kallaður, kveðst ferðast talsvert vegna fuglaskoðunar. „Mest er ég á svæðinu frá Jökulsárlóni í vestri að Starmýri í Álftafirði í austri. Mikill hluti farfugl- anna kemur inn á Suðausturlandið en þá getum við miðað við að það nái frá Djúpavogi að Vík. Við erum með GPS- senda á grágæs, heiðagæs og helsingja og þær tegundir taka strikið frá Bret- landi beint í Hornafjörðinn, svo breyta þær stefnunni, aðallega til vesturs. Túnin í Flatey á Mýrum voru algerlega þakin gæsum í gær.“ Binni er einn af stofnendum Fuglaat- hugunarstöðvar Suðausturlands og það er félagi hans, Björn Arnarson frá Reyni- völlum líka. Binni segir þá félaga yfirleitt hafa samband nokkrum sinnum á dag. „Við skiptumst á að merkja fugla sem við föngum fyrir Náttúrufræðistofnun í rannsóknarskyni. Í gær náðum við fimmtán þúsundasta skógarþrestinum á rúmum fimmtán árum.“  Hvað um sjaldgæfa fugla? „Við fengum einn í netið nýlega sem heitir grátitt- lingur og er líkur þúfutittlingi. Tveir kjarnbítar hafa verið hér í kring og ég sá einn á Stafafelli í Lóni áðan. Sú tegund sést æ oftar og gæti farið að verpa hér á landi. Á túnum í Suðursveit eru líka tvær sjaldgæfar gæsir, alaskagæs og kanada- gæs. Báðar litlar. Heldurðu að hrafninn sé farinn að huga að hreiðurgerð? „Örugglega. Það er einn að labba hér á girðingunni hjá mér. Þeir eru tveir sem vita alveg hvar fóðurdallurinn minn er.“ gun@frettabladid.is Kjarnbítar kringum Höfn Þó ferðamennina vanti þetta vorið halda farfuglarnir okkar vananum og flykkjast til landsins þessa dagana. Brynjúlfur Brynjólfsson á Höfn er manna fróðastur um þá. Brynjúlfur við sína uppáhaldsiðju – að fylgjast með fuglum. MYND/AÐSEND Við erum með GPS-senda á grágæs, heiðagæs og helsingja og þær tegundir taka strikið frá Bretlandi beint í Hornafjörðinn, svo breyta þær stefnunni, aðal- lega til vesturs. 2 2 . A P R Í L 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.