Fréttablaðið - 22.04.2020, Side 32

Fréttablaðið - 22.04.2020, Side 32
21.04.2020 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 22. apríl 2020FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | Þorsteinn Friðrik Halldórsson SKOÐUN Krísur geta haft varan-legar pólitískar afleiðingar. Merki þess birtust í gær þegar tilkynnt var að Þjóðar- öryggisráð hefði ákveðið að koma á fót vinnuhópi til að kortleggja birtingarmyndir og umfang upplýsingaóreiðu í tengslum við COVID-19 hér á landi. Vinnu- hópurinn mun einnig gera tillögur um aðgerðir til þess að sporna gegn óreiðunni. „Sjaldan hefur verið mikilvæg- ara að almenningur hafi aðgang að réttum upplýsingum eins og nú,“ sagði í tilkynningunni en henni fylgdu jafnframt tveir stimplar sem áttu að sýna að verkefnið væri í samræmi við tvö heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Annars vegar „Frið og réttlæti“ og hins vegar „Heilsu og vellíðan“. Eitt er á hreinu: Rangar upp- lýsingar um COVID-19 eru ekki og hafa ekki verið vandamál á Íslandi. Hér á landi hefur verið komið á tímabundnu sérfræðingaræði, leiddu af þríeykinu, sem leggur línurnar í beinni útsendingu á hverjum degi. Almenningur hlýðir yfirlögregluþjóninum, treystir sérfræðingunum og hefur lítið þol fyrir mótbárum. Undirtónninn vekur ugg. Hvernig verður tekið á fréttum sem yfirvöld dæma rangar? Hverju á þessi vinna eiginlega að skila? Ekki er hægt að gera sér miklar vonir um að vinnuhópurinn taki fyrir vinnubrögð Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar sem hefur legið undir harðri gagnrýni fyrir að dreifa röngum upplýsingum um veiruna. Það er áhyggjuefni ef íslensk stjórnvöld ætla að notfæra sér traust almennings á þessum tímum og óttann við veiruna til þess að vekja þau hughrif að yfirvöld séu eini handhafi sann- leikans. Að sporna þurfi gegn upp- lýsingaóreiðu sem flækist fyrir. Síðan er hitt að það er enginn einn mælikvarði á árangur og engin ein rétt lausn. Samfélög um allan heim hafa staðið frammi fyrir vali um gríðarstór fórnar- skipti. Einn valkostur er að ná tökum á útbreiðslu kórónaveir- unnar með því að stöðva hjól hagkerfisins. Annar valkostur er að leyfa veirunni að hafa sinn gang en hlífa hópunum sem eru útsettir fyrir henni. Þetta er val um fórnarskipti sem krefst þess að við veltum upp erfiðum spurningum. Hversu alvarlegar verða afleiðingarnar af sögulegu atvinnuleysi? Er fórnin þess virði? Sóttvarnafræði og aðrar raun- vísindagreinar veita ekki svör við öllum þessum spurningum. En hingað til hafa sérfræðingar á þessum sviðum fengið að ráða för. Að þeirra ráði hefur verið gripið til aðgerða sem fela í sér verulega röskun á efnahagslífinu. Stjórn- völd hlaupa síðan upp til handa og fóta til þess að milda höggið. Kannski þurfum við fleiri sjónarmið en ekki færri. Engin óreiða Ó löf Skaftadóttir, sem var áður ritstjóri Fréttablaðsins, hefur verið ráðin forstöðumaður samskiptasviðs Samtaka atvinnu- lífsins (SA). Ólöf staðfestir það í samtali við Markaðinn en hún tók til starfa hjá samtökunum fyrr í þessum mánuði. Tekur hún við starfinu af Herði Vil- berg, sem hafði verið yfir samskipta- málum SA undanfarin fimmtán ár, en hann færði sig um set yfir til Íslands- stofu og tók við stöðu verkefnastjóra á markaðssviði. Ólöf, sem er með BA-gráðu í rit- list frá Háskóla Íslands, lét af störf- um sem ritstjóri Fréttablaðsins í október í fyrra. Þar áður hafði hún meðal annars starfað sem aðstoðar- ritstjóri og umsjónarmaður helgarblaðs Fréttablaðsins. – hae Ólöf yfir samskiptasviði SA Ólöf Skaftadóttir PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar 2019 Jafnlaunavottun Sanngjörn laun fyrir jafn- verðmæt störf PwC býður upp á heildstæða þjónustu í launamálum og jafnlaunavottun. Við búum yfir áralangri reynslu og lausnum sem virka. Sú hætta sem steðjar að okkur nú er þetta mikla atvinnu- leysi og þess vegna erum við að tryggja að við getum komið fólki til starfa. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.