Fréttablaðið - 22.04.2020, Side 23
Við erum að nýta
þau úrræði sem
stjórnvöld hafa boðið upp á
eins og hlutastarfaleiðina
Helgi Rúnar Óskarsson,
forstjóri 66°Norður.
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Fa t a f r a m l e i ð a n d i n n 66°Norður tapaði 219 milljón um króna í fyrra. Árið áður nam tapið 445 milljónum króna. Rekstraraf koma fyrir
fjármagnsliði, afskriftir og skatta
(EBITDA) var neikvæð um 13
milljónir árið 2019 en áður var um
að ræða 100 milljón króna hagnað
á þeim mælikvarða.
Tek jur nar juk ust um þr jú
prósent á milli ára og námu 4,6
milljörðum króna. Fram kemur í
tilkynningu að rekstrarkostnaður
hafi hækkað um 3,6 prósent á árinu
og launakostnaður vegi þungt sem
hækkaði um 11,5 prósent í fyrra.
„Reksturinn stendur traustum
fótum,“ segir Helgi Rúnar Óskarsson,
forstjóri fyrirtækisins. „Félagið er
ekki skuldsett en af koma stóðst
ekki væntingar. Tekjur voru lægri en
áætlanir gerðu ráð fyrir og kostnaður
hærri, sérstaklega launakostnaður
sem hækkaði umtalsvert og hefur
aukist frá 2016 um 49 prósent.
Við fundum einnig fyrir sam
drætti í sölutekjum í kjölfar falls
f lugfélagsins WOW air en þær
minnkuðu verulega á öðrum árs
fjórðungi vegna þessa. Það vegur
hins vegar upp á móti að tryggð
Íslendinga við vörumerki 66°Norður
skilaði sér í mjög góðri sölu á fjórða
ársfjórðungi ásamt því að mikil
aukning varð í veltu félagsins í gegn
um vefsíðu félagsins.“
Helgi Rúnar segir í samtali við
Markaðinn að áhrifin af falli f lug
félagsins á rekstur 66°Norður hafi
verið tvíþætt. Annars vegar hafi
ferðamönnunum fækkað og hins
vegar hafi fólk sem búi hér misst
vinnuna. „Það á ekki einungis við
um starfsmenn WOW air heldur
fjölda af leiddra starfa. Við það
minnk aði kaupgeta þeirra sem
misstu vinnuna og það hefur áhrif á
verslunina.“
Hann segir erfitt að svara því
hvern ig reksturinn muni ganga
á árinu vegna kórónaveirunnar.
„Við erum að nýta þau úrræði sem
stjórnvöld hafa boðið upp á eins
og hlutastarfaleiðina,“ segir hann.
Fyrirtækið reki tíu verslanir hér
lendis og þremur hafi verið lokað
tímabundið. „Þær afla ekki tekna,“
segir hann og nefnir að enginn
rekstur geti staðið undir því til
lengri tíma að greiða 25 prósenta
launakostnað og húsaleigu að fullu
án tekna.
„Við erum með starfsemi í öðrum
löndum og þar hefur fyrirtækjum
verið hjálpað við að takast á við
fast an kostnað eins og til dæmis
húsaleigu,“ segir Helgi Rúnar.
Hjá 66°Norður starfa um 400
manns í fjórum löndum. Fyrirtækið
rekur auk tíu verslana á Íslandi tvær
í Kaupmannahöfn, saumastofu í
Lettlandi og skrifstofu í Bretlandi.
Breyttir reikningsskilastaðlar
setja mark sitt á ársreikninginn.
Ársreikningurinn sýnir EBITDA
hagnað upp á ríf lega 335 milljón
ir króna því horft er fram hjá
leigugreiðslum með nýju aðferð
inni. Að sama skapi lækkar eigin
fjár hlutfallið úr 73 prósentum, sam
kvæmt eldri aðferðinni, í 45 prós ent
vegna annarrar nálgunar þar sem
litið er á leigusamninga sem skuld
bindingu. „Breytt framsetning hefur
enga raunverulega þýðingu. Félagið
er hvorki veikara né sterkara fyrir
vikið,“ segir Helgi Rúnar.
Fjár fest ingar sjóður inn Mous se
Partners, sem stýrt er af fjöl skyld
unni sem á tísku húsið Chanel, festi
kaup á tæp lega helm ings hlut í Sjó
klæðagerðinni 66°Norður fyr ir lið
lega 30 millj ón ir evra, eða um fjóra
millj arða ís lenskra króna, sumar ið
2018, eins og Markaðurinn sagði frá
á þeim tíma.
66°Norður mætir óskuldsett í kreppu
Fataframleiðandinn tapaði 219 milljónum króna í fyrra. Tekjur voru lægri en gert var ráð fyrir og kostnaður hærri. Launakostnaður
jókst um tólf prósent í fyrra. Hann hefur aukist um 49 prósent frá árinu 2016. Erlendis fæst aðstoð við að greiða fastan kostnað.
Hjónin Helgi Rúnar Óskarsson forstjóri og Bjarney Harðardóttir markaðs-
stjóri eiga rúmlega helming í 66°Norður og annast reksturinn.
7M I Ð V I K U D A G U R 2 2 . A P R Í L 2 0 2 0 MARKAÐURINN