Fréttablaðið - 22.04.2020, Side 22
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
Breska fjártækni fyrirtækið Rapyd, sem hefur undirritað samning um kaup á Korta, áformar að fjárfesta veruleg um f járhæðum í
upp bygg ingu á starf semi íslenska
fær slu hirðinga r f y r ir t æk isins .
Fjár fest ingin miðar að því að tvö
falda markaðshlutdeild Korta á
næstu þremur árum og að byggja
upp miðstöð vöruþróunar Rapyd í
Evrópu.
„Eitt af því fyrsta sem við hyggj
umst gera er að ráðast í verulega
fjárfestingu á íslenska markaðin
um og við munum líklega tvöfalda
starfsmannafjölda Korta,“ segir
Arik Shtilman, forstjóri Rapyd, í
samtali við Markaðinn, en í dag
starfa um 40 manns hjá Korta.
Tilkynnt var um undirritun
kaup samningins, sem er háður
samþykki fjármálaeftirlits Seðla
banka Íslands, í lok síðustu viku.
Kaupverðið greiðist með reiðufé og
tekur hluti þess mið af rekstri Korta
á þessu ári. Því liggur ekki fyrir
hvert endanlegt kaupverð verður
fyrr en í upphafi næsta árs.
Samkvæmt heimildum Mark
að ar ins var ráðgjafi Korta Aðal
steinn Jóhannsson, hlut hafi í Korta
og meðeigandi í f járfest ingar
bankanum Bryan, Garnier & Co.
Leituðu að kauptækifærum
Rapyd kom inn á greiðslumiðlunar
markaðinn árið 2016 með tækni
lausn sem gerir fyrirtækinu kleift
að bjóða viðskiptavinum upp á 900
ólíkar greiðsluleiðir. Breska félag
ið er meðlimur að VISA Europe og
MasterCard en er hins vegar ekki
með starfsleyfi sem færsluhirðir.
Með kaupunum á Korta fær félagið
slíkt leyfi.
„Framan af hefur fókusinn verið á
að bjóða upp á lausnir sem krefjast
ekki greiðslukorta eða posa. Við
skipta vinir okkar hafa hins vegar
óskað eftir því að boðið verði upp
á lausnir fyrir greiðslukort og posa,
og þess vegna byrjuðum við að leita
að fyrirtækjum á því sviði,“ segir
Arik.
„Við vorum að skoða ýmis tæki
færi í Evrópu og Asíu, og okkur datt
ekki í hug að við gætum fundið það
sem við erum að leita að á Íslandi.
Síðan rákumst við á Korta og
okkur þótti mikið til fyrirtækisins
koma,“ bætir hann við. „Við vorum
sérstaklega hrifin af stjórnenda
teyminu sem er algjört lykilatriði
í yfirtökum sem þessum. Auk þess
er reksturinn stöðugur, vörufram
boðið er ríkt og það er góð blanda
milli netlausna og posalausna.“
Koma með nýjungar
Rapyd gekk frá 100 milljóna króna
hlutafjáraukningu í október 2019
þar sem fyrirtækið var verðmetið á
meira en milljarð Bandaríkjadala,
jafnvirði 146 milljarða króna. Á
meðal hluthafa er fjártæknirisinn
Stripe, sem er sjálfur metinn á 35
milljarða dali, Oak HC/FT, Tiger
Global Management, General Cata
lyst og Target Global.
Rapyd rekur nú fjórar stórar
skrifstofur. Vöruþróunin er í höfuð
stöðvunum í TelAviv en sölustarfið
í Singapúr, San fransisco og London.
„Hugmyndin er að ráða sérhæft
starfsfólk þannig að Korta verði
miðstöð vöruþróunar Rapyd í
Evrópu. Við ætlum einnig að fjár
festa í sölu og markaðssetningu á
íslenska markaðinum vegna þess að
markmiðið er að tvöfalda innlenda
markaðshlutdeild á næstu þremur
árum,“ segir Arik. Aðspurður segir
hann að viðskiptavinir Korta muni
Vilja tvöfalda umsvif Korta á Íslandi
Rapyd, sem hefur undirritað samning um kaup á Korta, áformar að tvöfalda umsvif Korta á Íslandi. Vilja byggja Korta upp sem
miðstöð vöruþróunar. Með kaupunum á Korta fær Rapyd starfsleyfi sem færsluhirðir. Metið á meira en 146 milljarða króna.
Jakob Már Ásmundsson verður áfram forstjóri Korta. Hann hóf störf hjá félaginu í lok árs 2018. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kaupverðið sagt hlaupa á tugum milljóna dala
Tæknifréttavefurinn CTech
fjallaði um kaup Rapyd á Korta
en heimildarmenn fjölmiðilsins
sögðu kaupverðið hlaupa á
nokkrum tugum milljóna dala.
Arik Shtilman sagði við CTech
í kjölfar undirritunar kaup-
samningsins að efnahagsleg áhrif
kórónafaraldursins hefðu greitt
götuna fyrir yfirtöku.
„Við leituðum til fjárfest-
ingabanka og spurðum hvaða
fyrirtæki væru í lausafjárvand-
ræðum,“ sagði Arik „Mörg fyrir-
tæki sem áttu til dæmis mikið
undir ferðaþjónustu fengu stórt
högg.“
Arik sagði að þetta væri ekki
eina yfirtakan sem Rapyd mun
ganga frá á tímum kórónaveir-
unnar. Þá væri vel í stakk búið
fyrir niðursveiflu í heimshag-
kerfinu eftir síðustu hlutafjár-
aukningu. „Fyrirtæki sem eru
með minna en 50 milljónir dala í
hirslum sínum munu eiga erfitt
uppdrátt, sérstaklega í fjár-
tækni.“
njóta góðs af vöruframboði Rapyd.
„Með okkar tækni geta posar
til dæmis tekið við greiðslum frá
reikningum á Alipay og WeChat
sem eru helstu greiðslulausnir Kín
verja. Það er mikil eftirspurn eftir
því að posar geti unnið úr ólíkum
tegundum af greiðslum. Auk þess
munum við bjóða upp á nýjungar
í fjármögnun í kortaviðskiptum (e.
pointofsale financing),“ segir Arik.
Takmarkanir á ferðalögum vegna
kórónafaraldursins knúðu forsvars
menn fyrirtækjanna til að klára
viðræðurnar með fjarfundabúnað
inum Zoom.
„Viðræðurnar hófust í janúar og
þegar stjórnvöld um allan heim
byrjuðu að takmarka ferðalög milli
landa vöknuðu spurningar um
hvort hægt væri að klára kaupin
með fjarfundum. Traustvekjandi
stjórnendateymi Korta og góð sam
skipti okkar á milli sannfærði okkur
um að þetta væri hægt,“ segir Arik.
Fleiri sýndu áhuga
Jakob Már Ásmundsson, forstjóri
Korta, segir að forsvarsmenn Rapyd
hafi haft samband fljótlega eftir ára
mót. „Við höfðum ekki verið í form
legu söluferli en alls konar fyrirtæki
hafa sýnt Korta áhuga á undan
förnum misserum. Viðræðurnar
tóku þannig ekki mjög langan tíma
þótt þær hafi ekki verið auðveldar,“
segir Jakob.
Spurður hvort að salan hafi verið
í hættu vegna efnahagslegra áhrifa
kórónafaraldursins segist Jakob
ekki telja að svo hafi verið.
„Við þurftum augljóslega að taka
tillit til þess í viðskiptunum að það
ríkir mikil óvissa í efnahagslífinu
og það er tekið á því í samning
unum,“ segir Jakob, en hluti kaup
verðsins tekur mið af rekstri Korta
á þessu ári. Aðspurður segir Jakob
að afkoman í fyrra hafi verið í sam
ræmi við áætlanir. „Árið gekk vel og
grunnreksturinn skilaði hagnaði.“
Dýrmæt störf sköpuð
Þá segir Jakob aðspurður að ekki
verði breytingar á stjórnendateymi
Korta við nýtt eignarhald og að
hann verði áfram forstjóri félags
ins. Hann segir fyrirhugaða fjár
festingu Rapyd í starfsemi Korta
afar jákvæða.
„Þetta eru dýrmæt störf, sem
hægt er að gera í reynd hvar sem er í
heiminum, og því er afar jákvætt að
við getum við með slíka starfsemi á
Íslandi,“ segir Jakob.
Sem kunnugt er keypti Kvika
banki og hópur einkaf járfesta
Korta á eina krónu í lok árs 2017
og lögðu félaginu um leið til nærri
1.500 milljónir króna í nýtt hlutafé.
Kortafyrirtækið stóð frammi fyrir
alvarlegum lausafjárvanda í kjöl
far greiðslustöðvunar Monarch
Airlines.
Hlutafé Korta var aukið um 1.055
milljónir í lok árs 2018 en þar af
greiddi Kvika banki tæplega 664
milljónir króna með því að breyta
kröfum sínum í hlutafé. Jakob Már
kom þá inn í hluthafahópinn en
hann lagði kortafyrirtækinu sjálfur
til um 80 milljónir króna.
Kvika var fyrir söluna stærsti
einstaki hluthafi Korta með ríflega
fjörutíu prósenta hlut. Í tilkynningu
Kviku vegna sölunnar er tekið fram
að núverandi mat bankans á kaup
verði fyrir hlutnum í Korta sé að það
verði í samræmi við bókfært virði
hlutarins um síðastliðin áramót.
Því hafi salan ekki áhrif á afkomu
bankans á þessu rekstrarári.
Aðrir stórir hluthafar eru meðal
annars Bull Hill Capital, sem er að
mestu í eigu Aðalsteins Jóhanns
sonar, fjárfestingafélagið Óskabein,
félög á vegum Sigurðar Bollasonar
fjárfestis og Sigurður Valtýsson,
fjárfestir og fyrrverandi forstjóri
Exista.
Hugmyndin er að
ráða sérhæft starfs-
fólk þannig að Korta verði
miðstöð vöruþróunar
Rapyd í Evrópu.
Arik Shtilman,
forstjóri Rapyd
146
milljarðar dala er markaðs-
virði Rapyd miðað við
síðustu hlutafjáraukningu
fjártæknifélagsins.
2 2 . A P R Í L 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN