Fréttablaðið - 22.04.2020, Qupperneq 48
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg. ehf
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Davíðs
Þorlákssonar
BAKÞANKAR
Þegar rætt er um efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna faraldursins vill umræðan
stundum fara í gamalkunnar
skotgrafir þar sem atvinnulífi
og almenningi er stillt upp sem
andstæðingum. Aðgerðir eru
f lokkaðar þannig að þær séu ýmist
annaðhvort fyrir fyrirtæki eða
almenning.
Fyrirtæki eru ekki markmið í
sjálfu sér. Markmiðið er að standa
vörð um það sem fyrirtæki leiða
af sér. Þau skapa störf sem sjá
fólki fyrir lífsviðurværi. Þau sjá
almenningi fyrir nauðsynlegri
vöru og þjónustu. Þau skapa skatt
tekjur sem gera hinu opinbera
kleift að sinna hlutverki sínu, eins
og að sjá almenningi fyrir velferð
og menntun.
Og jú, ef vel gengur, þá skapa
þau eigendum sínum arð. Ef ekki
væri fyrir arðsvonina þá myndi
enginn leggja fyrirtækjum til
hlutafé. Það væri ekki til og þar
með ekki þau störf og þeir skattar
sem fyrirtækið skapaði. Arðurinn
hverfur heldur ekki þegar hann er
greiddur.
Það þarf að borga skatta af
honum og oft er hann nýttur til
frekari fjárfestinga sem skapa þá
enn f leiri störf og meiri skatta. Eða
til að kaupa vöru og þjónustu frá
öðrum fyrirtækjum sem skapar
störf og skatta þar.
Arður er því ekki bara óhjá
kvæmilegur, heldur nauðsynlegur
og jákvæður. Því meiri arður, því
betra. Við ættum að þakka þeim
sem greiða sér arð frekar en að
smána þau.
Allar efnahagsaðgerðir stjórn
valda snúast því um að koma
almenningi til góða. Til þess að
svo megi verða er mikilvægt að við
eigum áfram sterk fyrirtæki, sem
tæki til að standa vörð um lífsgæði
okkar allra.
Fyrir-tæki
ARIZONA
500 ML
299
KR/STK
598 KR/L
Við sendum
frítt heim
á höfuðborgarsvæðinu!
Samdægurs ef pantað
er fyrir kl. 12:00
siminn.is
Vertu eins og heima
hjá þér í bústaðnum
Settu upp þráðlaust net fyrir alla fjölskylduna í bústaðnum
með 4G-búnaði. Þá getur þú líka tengt 4K-myndlykil
frá Símanum þráðlaust við netið og horft á allt þitt
uppáhaldsefni úr Sjónvarpi Símans Premium.
HAFÐU FJÖLPÓSTINN
ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU
Auglýsingaefnið lendir á
eldhúsborðinu þegar
blaðið er opnað!
Kannaðu dreiileiðir og verð í
síma 550 5050 eða sendu
tölvupóst orn@frettabladid.is.
*Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019.
Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019