Góðan daginn, Grindvíkingur - 10.02.2007, Blaðsíða 6

Góðan daginn, Grindvíkingur - 10.02.2007, Blaðsíða 6
Slökkviliðsmenn önnum kafnir Slökkviliðsmenn bæjarins eru önnum kafnir þó ekki séu bmnaútköll, sem betur fer. Ásmundur Jónsson, slökkvi- liðsstjóri, mætti í Grunnskól- ann nýlega til að afhenda verðlaun fyrir þátttöku í Eldvamaátaki Bmnamála- stofeunnar og LSS, Lands- samband slökkviliðs- og sjúkraflutn-ingamanna 2006, en í því vom 8 ára böm frædd um eldvamir og öryggismál. Bömin fengu heimsókn frá slökkviliðinu í skólann í endaðan nóvember auk þess sem þau fóm í heimsókn á slökkvistöðina og fengu meiri fræðslu. Þá var þeim boðið að taka þátt í Eldvamagetraun- inni.Þátttakan í getrauninni var einstaklega góð um allt land og í Grindavík fékk Sindri Freyr Bergmann verðlaunin, sem Ásmundur var kominn til að afhenda. Sindri Freyr fékk pakka sem í var Sansa MP3 spilari, reyk- skynjari, viðurkenningarskjal LSS með árituðu nafei, blað- ið Slökkvimaðurinn 1. tbl. 2006 og Slökkvimaðurinn, forvamablað Eldvamaátaks 2006. Allir krakkamir í 8 ára árganginum vom mætt á sal til að vera viðstödd afeend- inguna og vera með á mynd í lokin ásamt foreldrum, Sig- urði og Sólveigu, Ásmundi og kennurunum, Ffrefeu og Halldóm. I lok síðasta árs fékk slökkviliðið veglega gjöf ffá Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur, Vísi hf og Þorbimi hf. I gjafapakkanum vom 16 talstöðvar fyrir slökkviliðsmenninu í liðinu auk fögurra talstöðva fyrir reykkafara. Lætur nærri að andvirði gjafarinnar hafi numið um einni milljón króna. I athöfe sem nýlega var haldin í Saltfisksetrinu þakkaði bæjarstjórinn, Ólafiir Öm Ólafsson, fyrir þessa höfðinglegu gjöf og afhenti Ásmundur, slökkviliðsstjóri, gefendunum platta með merki Slökkviliðs Grindavíkur sem þakklætisvott fyrir rausnarlega gjöf. Pétur afhendir Asmundi gjöfina góðu. Frá vinstri: Ólafur, Asmundur, Pétur, Eiríkur, Magnús og Hallgrímur. Jón Gíslason, nýr formaður fótboltans Nýr formaður, Jón Gíslason, var kosinn á aðalfundi knattspymudeildar UMFG fyrir skömmu en Jónas Þórhallsson, fráfarandi formaður, var kosinn í varastjóm auk þess að vera í sérstöku ráði sem sjá mun um ijármál og fjármögnun deildarinnar. I aðalstjóm vom kosnir auk Jóns þeir: Bjami Andrésson, Sigurður Gunnarsson, Ragnar Ragnarsson, Gunnar Már Gunnarsson, Bergsteinn Ólafsson og Jón Gauti Dagbjartsson. Nýir inn i stjómina em Gunnar Már, Bergsteinn og Jón Gauti. I varastjóm vom kosnir auk Jónasar þeir Andrés Óskarsson, Eiríkur Tómasson, Hermann Ólafsson, Pétur Pálsson, Sigurður Halldórsson og Þórhallur Benónýsson. í nýtt fjármálaráð vom kosnir auk Jónasar þeir Andrés, Eiríkur, Pétur og Hermann. Knattspymuvertíðin er hafin með einum leik í deildarbikamum. Leikið var við FH og tapaðist sá leikur 0-5, sem er ekki alveg marktækt þar sem enn em ekki allir leikmennimir komnir til liðsins sem reiknað er með. Fyrsti leikurinn í 1. deildinni í vor verður við Stjömuna, en þessi lið munu mætast í næsta leik deildabikarsins. Grindvíkingar em staðráðnir í að fara beinustu leið upp aftur, þó það verði ekki gefið. Stjórn, varastjórn ogfármálaráð eftir kosninguna talið frá vinstri í fremri röð: Jón Gauti, Gunnar Már, Jón, Bjarni, Ragnar, Sigurður. í aftari röðfrá vinstri: Sigurður, Þórhallur, Andrés, Jónas, Pétur, Eiríkur, Ingvar Guðjónsson, framkvœmdastjóri og Bergsteinn. 6 Grindavík...góður bœr

x

Góðan daginn, Grindvíkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Góðan daginn, Grindvíkingur
https://timarit.is/publication/1423

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.