Bændablaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Fréttir
Purity Herbs er að færa út kví-
arnar í sinni starfsemi. Eigendur
þess, hjónin Ásta Sýrusdóttir og
Jón Bernharð Þorsteinsson, festu
í fyrra kaup á jörðinni Búlandi í
Hörgársveit, sem er um 100 hekt-
arar að stærð og hyggjast nýta
hana í þágu fyrirtækisins, bæði
með því að rækta þar jurtir sem
til framleiðslunnar þarf og einnig
til ferðaþjónustu.
Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á íbúðarhúsi sem þar var
fyrir og var í niðurníðslu þegar þau
keyptu.
Purity Herbs hefur verið starfandi
á Akureyri í ríflega tvo áratugi, var
stofnað árið 1994 af Ástu og André
Raes, en hún rekur fyrirtækið nú
með manni sínum, Jóni Bernharði.
Hjá fyrirtækinu eru framleiddar 44
tegundir af mismunandi snyrtivör-
um, m.a. kremum af ýmsu tagi sem
eiga það sameiginglegt að í þau eru
notuð íslenskar villtar jurtir. Kremin
hafa reynst þeim vel sem glíma við
húðvandamál, en þau mýkja einnig
og næra húðina. Purity Herbs hefur á
umliðnum áratugum skapað sér nafn
og er þekkt hér á landi fyrir fram-
leiðslu sína á hreinum og kraftmikl-
um snyrtivörum, en undanfarin ár
hefur vaxandi gróska verið í útflutn-
ingi á vörum fyrirtækisins. Félagið er
með sína aðstöðu í rúmgóðu húsnæði
við Freyjunes, en bætir nú jörðinni
Búland við.
Fá að fylgjast með jurtatínslu
Ásta segir að til standi að gera jörðina
Búland að því sem þau kalla: „The
Home of Purity Herbs“. Þar verður
í framtíðinni tekið á móti dreifingar-
aðilum félagsins sem og öðrum gest-
um.
„Við keyptum þessa jörð á
síðastliðnu ári og höfum unnið
að endurbótum á íbúðarhúsinu
sem þar var. Þeim er nú að mestu
lokið og í framhaldinu er ætlunin
að útvíkka starfsemi fyrirtækisins,
en hugmyndin er að nýta jörðina
bæði til ræktunar jurta og einnig til
ferðaþjónustu.
Við hlökkum til að taka á móti
þeim sem dreifa okkar vörum víða
um heim og leyfa þeim að upplifa
ósvikna íslenska náttúru þar sem
jurtirnar vaxa í villtu umhverfi. Við
tínum nú þegar mikið af jurtum á
Búlandsjörðinni og þær eru notaðar í
okkar framleiðslu. Við teljum að það
verði áhugavert fyrir okkar útlendu
viðskiptavini að fá tækifæri til að sjá
með eigin augum hvernig jurtatínslan
fer fram og í hvaða umhverfi,“ segir
Ásta.
Eigin ræktun í stað innflutnings
Jörðin Búland hentar fyrirtækinu
og fjölskyldunni sem að því stendur
einkar vel, en mikill áhugi er innan
hennar fyrir hestamennsku. Jón er
bóndasonur og búfræðingur og veit
ekkert skemmtilegra en að sýsla í
sveitinni og það kemur sér auðvitað
sérlega vel í þessum rekstri.
„Okkar markmið er að nýta þessa
fínu jörð betur og því ætlum við
strax næsta sumar að prófa okkur
áfram með að rækta þar jurtir sem
við notum í okkar framleiðslu,“
segir Ásta.
Ætlunin er að hefja ræktun á
Morgunfrú (Calendula officinalis),
jurt sem raunar vex ekki villt í nátt-
úrunni en er notuð í miklum mæli í
vörum fyrirtækisins. Hún segir að
fram til þessa hafi fyrirtækið flutt
inn lífrænt ræktaða morgunfrú frá
Evrópu.
Morgunfrú eitt af undrum
náttúrunnar
Olían sem unnin er úr Morgunfrú
er afar áhrifarík og hentar vel
fyrir þurra húð, en hún er einnig
þekkt fyrir að hafa ýmis önnur góð
áhrif, hrindir bakteríum frá, hamlar
sveppum og hefur einnig sérlega
græðandi eiginleika.
„Rannsóknir hafa sýnt
fram á að krem sem innihalda
Morgunfrúarolíu stuðli að auknum
raka í húðinni, en það er mikilvæg-
ur þáttur í baráttu gegn ótímabærri
öldrun húðarinnar. Morgunfrúin er
því klárlega eitt af undrum náttúr-
unnar og þess vert að nýta sér hana,“
segir Ásta.
Undirbúningur vegna ræktunar
á Morgunfrú á Búlandsjörðinni er
þegar hafinn en ræktun hefst næsta
vor.
„Í framhaldinu munum við hefja
ræktun á enn fleiri jurtum, það
kemur sér vel ef við sækjum um
lífræna vottun á fyrirtækinu. Það má
kannski segja að við séum að hluta
til að róa á önnur mið en við höfum
áður verið á með þessari viðbót við
okkar starfsemi,“ segir Ásta.
Kraftaverk gerir kraftaverk
Kraftaverk (Viking Balm) er eitt
þeirra krema sem framleidd eru
hjá Purity Herbs og það sem selst
hvað best.
„Þetta smyrsl var í upphafi þróað
hér í fyrirtækinu fyrir íslenska
hesta á erlendri grund. Þeir þurfa á
stundum að glíma við ýmsa erfiða
húðsjúkdóma eins og sólarexem,
mikinn kláða og skallabletti auk
þess sem sár á hestum er oft býsna
þrálát og erfið viðureignar. Smyrslið
reyndist það vel að undrun sætti og
var það í framhaldinu einnig þróað
og reynt á okkar mannlegu mein af
svipuðum toga.
Árangurinn lét ekki á sér standa,
smyrslið hefur þegar sannað
sig, hefur gert þeim sem þjást
af exemi gott, eins er reynslan
góð þegar kemur að húðkláða,
brunablöðrum, fótasveppum,
frunsum, bólum, munnangri
og erfiðum sárum, þannig að
notagildið er margvíslegt,“ segir
Ásta. /MÞÞ
Purity Herbs á Akureyri hyggur á ræktun jurta í Búlandi í Hörgársveit:
Ræktun á Morgunfrú í bígerð í stað
þess að flytja hana inn frá Evrópu
Alls starfa nú 6 manns hjá Purity Herbs, frá vinstri Jón Bernharð Þorsteinsson, Ásta Sýrusdóttir, Eydís Elva Þórarinsdóttir, Anna Ársælsdóttir, Ruben Raes
og Ómar Dúason. Mynd / Auðunn Níelsson
„Við tínum nú þegar mikið af jurtum á Búlandsjörðinni og þær eru notaðar í okkar framleiðslu. Við teljum að það verði áhugavert fyrir okkar útlendu
Unnið hefur verið að endurbótum á
íbúðarhúsinu í Búlandi og er þeim
nú að mestu lokið.