Bændablaðið - 15.12.2016, Síða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Tækifæri fyrir konur í dreifbýli:
Fræðsla fyrir frumkvöðlakonur
Aðalmarkmið Free-verkefnisins
(Female Rural Enterprise
Empowerment) sem hlotið
hefur styrk úr Erasmus+ áætlun
Evrópusambandsins, er að aðstoða
frumkvöðlakonur á landsbyggð-
inni til að koma hugmyndum
sínum og fyrirtækjum á framfæri
með fræðslu og hvatningu auk þess
að efla tengslanet þeirra.
Markhópur verkefnisins eru frum-
kvöðlakonur sem hafa nú þegar við-
skiptahugmynd sem þær vilja hrinda
í framkvæmd eða hafa nýlega stofnað
fyrirtæki. Sjónum er einkum beint
að landsvæðum sem hafa glímt við
fábreytni í atvinnulífi og búið við
neikvæða byggðaþróun og mun
fræðslan á Íslandi verða í boði á
Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og
Austurlandi.
Vinnumálastofnun stýrir verk-
efninu hér á landi en auk þess
er Byggðastofnun samstarfsað-
ili en aðrir samstarfsaðilar koma
frá Bretlandi, Króatíu, Litháen og
Búlgaríu.
Nám og þjálfun á netinu
Mikilvægur hluti verkefnisins snýst
um að bjóða upp á nám/þjálfun á
netinu þar sem áherslan er lögð á
færni sem tengist fyrirtækjarekstri,
en auk þess verður boðið upp á
þjálfunarhringi á netinu sem byggja
á hugmyndafræði sem samstarfsað-
ilinn Inova á Bretlandi hefur þróað á
síðustu árum. Notast er við aðferðir
aðgerðarnáms við lausn vandamála
og unnið með markmiðasetningu
og sjálfsskoðun í því skyni að efla
persónulega hæfni. Nú er verið að
leggja síðustu hönd á námsefnið og
er miðað við að fræðslan hefjist í
janúar á næsta ári.
Tengslanet
Tengslanet frumkvöðlakvenna verða
sett upp á þessum þremur svæðum
og munu sjálfboðaliðar stýra þeim.
Gert er ráð fyrir því að tengslanetið
starfi í 10 mánuði að lágmarki á
tilraunatímabilinu og að a.m.k. sex
fundir verði haldnir á tímabilinu.
Þróun og efnistök hvers tengslanets
er í höndum leiðtoganna sjálfra
og netsins sem myndað verður og
mun dagskrá tengslanetsfundanna
taka mið af áhugasviði þátttakenda.
Einnig verður leitað eftir samstarfi
við þau tengslanet sem nú þegar eru
starfandi á svæðunum.
Fræðsla fyrir tengslanetsleiðtoga
Dagana 26.–30. september síðast-
liðinn var haldin fræðsla í Sheffield
fyrir tengslanetsráðgjafa allra sam-
starfsaðila. Frá Íslandi komu þær
Bryndís Sigurðardóttir, Ísafirði,
Lilja Gunnlaugsdóttir, Sauðárkróki
og Anna Katrín Svavarsdóttir,
Egilsstöðum en þær munu stýra
tengslanetum á sínum svæðum.
Á námskeiðinu fengu leið-
togarnir fræðslu um tengslanet
sem sett hafa verið upp í dreifðum
byggðum á Bretlandi, fræðslu um
þjálfun og kennslu (coaching and
mentoring) en auk þess var farið í
fyrirtækjaheimsóknir í Peak District
héraðið þar sem fyrirtæki kvenna
á svæðinu voru heimsótt. Einnig
fengu leiðtogarnir tækifæri til að
kynnast og mynda tengsl sín á milli
en skemmtilegur andi myndaðist
milli þeirra níu leiðtoga sem sóttu
fræðsluna.
Tengslanet mikilvæg
Við spurðum tengslanetsleiðtogana
hvernig til hefði tekist með fræðsl-
una og hvaða væntingar þær hafi
til tengslanetanna en nú þegar hafa
fundir verið haldnir á Austurlandi
og á Norðurlandi vestra.
Lilja: „Námskeiðið úti var virki-
lega lærdómsríkt og opnaði augu
mín enn fremur fyrir því hve mik-
ilvægt það er að eiga gott tengslanet
fólks í sömu sporum og maður
sjálfur. Með því að nýta styrk hver
annars og þekkingu kemur út sterk
heild sem allir græða á.
Ég vonast til að tengslanetið á
mínu svæði styrki þá sem eru fyrir
með fyrirtækjarekstur og gefi þeim
sem eru í startholunum eða með
hugmynd kjark til að taka stökkið
og framkvæma, sem bætir atvinnu-
líf og þar af leiðandi mannlífið á
svæðinu.
Fyrsti fundurinn var haldinn
á Sauðárkróki og á hann mættu
sex konur. Á honum var rætt um
umsóknarferli uppbyggingarsjóðs
Norðurlands vestra og um fram-
haldið og hvað konur hefðu áhuga
á að fræðast um.
Bryndís: „Það er grundvallar-
atriði í atvinnurekstri að hafa gott
tengslanet, bæði til að koma vöru
eða þjónustu á framfæri og til að
draga að sér þekkingu og reynslu
annarra. Sérstaklega er mikilvægt
fyrir einyrkja að hafa gott tengslanet,
til að sækja sér félagsskap og til að
deila reynslusögum. Öll ferðalög
hefjast á fyrsta skrefinu og flestur
rekstur hefst á frumkvöðlinum eða
einyrkjanum og þar sé ég tækifæri
fyrir þetta nýja tengslanet, til að
styðja og styrkja konur sem eru að
taka sín fyrstu skref í rekstri.“
Anna Katrín: „Mér fannst afar
fróðlegt og skemmtilegt að kynnast
konum í atvinnurekstri frá öðrum
löndum, finna út hvað var líkt og
ólíkt. Ég sé fyrir mér að tengslanet
kvenna í atvinnurekstri hér fyrir
austan verði vettvangur kvenna til
fræðslu, stuðnings, nýrra tækifæra
og tengslamyndunar.
Hér var fyrsti fyrsti fundurinn
haldinn á Egilsstöðum og gekk
hann virkilega vel. Á hann mættu
15 konur, þar af fimm sem tóku þátt á
netinu. Á fundinum sagði ég stuttlega
frá Free-verkefninu en síðan kom
Lára Vilbergsdóttir frá Austurbrú til
að ræða um uppbyggingarsjóðinn en
opið er fyrir umsóknir í sjóðinn um
þessar mundir. Að lokum var rætt um
framhald netsins og hvaða fræðslu
þátttakendur hafa áhuga á.“
Allar nánari upplýsingar um
verk efnið má finna á heimasíðu þess,
www.ruralwomeninbusiness.eu, en
einnig má slá á þráðinn til Ásdísar
Guðmundsdóttur verkefnastjóra
eða Guðrúnar Stellu, forstöðukonu
Vinnumálastofnunar á Vestfjörðum,
í síma 515-4800.
Nánari upplýsingar um
tengslanetin:
Vestfirðir
Bryndís Sigurðardóttir
– bs@bb.is
Norðurland vestra
Lilja Gunnlaugsdóttir
skrautmen@gmail.com
Austurland
Anna Katrín Svavarsdóttir
anna.katrin.85@gmail.com
Samstarfsaðilar á fyrsta fundi verkefnisins. Ásdís er þriðja frá vinstri og Guðrún Stella fjórða frá vinstri. Anna Lea Gestsdóttir frá Byggðastofnun er önnur frá vinstri.
og Lilja önnur frá hægri í aftari röð. Anna Lea Gestdóttir er fyrsta frá hægri í aftari röð.
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Gúmmíbelti
- Fyrir smágröfur