Bændablaðið - 15.12.2016, Qupperneq 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Á glæpasagnahátiðinni Iceland
Noir voru í dag voru veitt verðlaun
fyrir bestu þýddu glæpasöguna á
Íslandi árið 2016, Ísnálin, og hlaut
hollenska glæpasagan Konan í
myrkrinu eftir Marion Pauw í
þýðingu Rögnu Sigurðardóttur
verðlaunin.
Þær bækur sem tilnefndar voru
til verðlaunanna, auk Konunnar
í myrkrinu, voru Hin myrku djúp
eftir Ann Cleeves í þýðingu Þórdísar
Bachmann, Kólibrímorðin eftir Kati
Hiekkapelto í þýðingu Sigurðar
Karlssonar, Meira blóð eftir Jo Nesbø
í þýðingu Bjarna Gunnarssonar og
Sjöunda barnið eftir Erik Valeur í
þýðingu Eiríks Brynjólfssonar.
Konan í myrkrinu fjallar um Írisi
og Ray. Íris er ungur lögfræðingur og
einstæð móðir sem reynir að fóta sig
á framabrautinni samhliða því að sjá
um erfiðan son sinn. Ray, sem er ekki
eins og fólk er flest, er lokaður inni
á stofnun eftir að hafa verið dæmdur
fyrir hrottalegt morð á ungri konu og
dóttur hennar. Leiðir Írisar og Rays
liggja óvænt saman sem verður til
þess að af stað fer atburðarás sem
gjörbreytir lífi þeirra.
Marion Pauw er drottning
hollenskra spennusagna og hlaut
hin virtu spennusagnaverðlaun
Gullnu snöruna fyrir bókina. Nú
þegar hefur verið gerð kvikmynd
eftir sögunni sem hlotið hefur
fjölda verðlauna og bandarísk
stórmynd byggð á bókinni er í
burðarliðnum.
Hjólabúnaður Þrýstibremsur Nefhjól
Læsanlegir og einfaldir
beislisendar
Ljós og ljósabúnaður
Bremsuborðar Hjólalegur
Hjólnöf
Bremsubarkar
Samhliða innflutningi okkar á Indespension kerrum
erum við með varahluti og hluti til kerrusmíða fyrir
flestar kerrugerðir, t.d. Indespension, Ifor Williams o.fl.
Eigum á lager mikið úrval varahluta í helstu gerðir
bremsu og hjólabúnaðar fyrir Alko og Knott. Bjóðum
einnig sérpantanir.
Nálægð við birgja okkar í Bretlandi tryggir skamman
afgreiðslufrest á sérpöntunum.
Kerruvarahlutir á góðu verði
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Byltingarkennd nýjung í dælingu á mykju !!
Hnífadælur með öflugum hræriskrúfum og sprautustútum.
Traktorsdrifnar eða með rafmótorum frá 5,5 KW upp í 30 KW.
Brunndælur eða skádælur, 100 mm, 120 mm, 150 mm, 200 mm.
Mikil dælugeta.
Haughrærur í mörgum útfærslum og stærðum.
Mykjuskiljur sem framleiða undirburð.
Hákonarson ehf
hak@hak.is • www.hak.is
S : 8924163
FORSALAN ER HAFIN!
ÓTRÚLEG VERÐ!
SENDUM ÚT Á LAND 28.DESEMBER MEÐ SAMSKIP
(ekki Vestmannaeyjar)
WWW.SUPERFLUGELDAR.IS
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Konan í myrkrinu
MENNING&LISTIR
Út er komin hjá Bjarti skáldsagan
Skegg Raspútíns eftir Guðrúnu
Evu Mínervudóttur.
Eva og Matti hafa nýlega umbylt
lífi sínu og flutt úr miðborginni til
smábæjar utan borgarmarkanna, en
sitja samt uppi með sjálf sig og hvort
annað. Vandamálin vaxa og óveð-
urský hrannast upp. Þá kynnist Eva
rússneskumælandi garðyrkjubónda,
Ljúbu, sem segir henni litríka sögu
sína og fjölskyldunnar.
Sögur kvennanna tveggja spegla
hvor aðra og vinátta þeirra hefur
mikil áhrif á líf beggja. Úr verður
einstök frásögn, skrifuð af þeim
hlýja mannskilningi sem einkennir
verk Guðrúnar Evu – um hlutskipti
kvenna, samskipti kynjanna, örlög,
frumkvæði, nánd og þau sannindi
sem draumar geyma.
Guðrún Eva Mínervudóttir hlaut
Íslensku bókmenntaverðlaunin árið
2011 fyrir Allt með kossi vekur,
og Menningarverðlaun DV í bók-
menntum fyrir Yosoy árið 2006 og
Englaryk árið 2014.
Skegg
Raspútíns
Bonito ehf. • Friendtex • Praxis
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is •www.praxis.is
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
gleðilegrar hátíðar
Opið laugardaginn 17. desember kl. 12.00–16.00
Ath. Lokað í desember frá og með 19. desember til og með 4. janúar 2017