Bændablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2019 17
hönnuða gerði það að verkum að
bátarnir teygðust í allar áttir og
brátt var orðinn til öflugur floti báta
sem gerður var út allt árið.
Árið 2002 var ákveðið að breyta
stærðarmörkum þessara báta og
færa hámarksstærð þeirra upp að
15 brúttótonnum. Við þá ákvörðun
breyttist margt. Bátarnir gátu fært
meiri afla að landi í hverri veiðiferð,
betri aðstaða var fyrir frágang á
afla og aðbúnað fyrir áhöfn. Auk
þessa var nú hægt að sækja lengra
út og þar með meiri möguleikar á
að veiða fleiri tegundir en þorsk.
Þar sem lengst af voru að hámarki
tveir í áhöfn voru orðin dæmi um
fjóra um borð.
Gagnrýnt var að stækkunin gæti
haft í för með sér misvægi milli
aðila og veiðiheimildir mundu
þjappast saman og útgerðum þar
með fækka. Engum átti í raun
að koma það á óvart þar sem
takmarkanir á hámarkshlutdeild
hverrar útgerðar var nokkuð rúm.
Aðilar stærri báta og skipa
þar sem veiðiheimildir voru
takmarkaðar af kvótum gerðu frá
upphafi kröfu um að sú veiðistjórn
mundi einnig ná yfir smábáta.
Hagsmunasamtök þeirra, LÍÚ sem
stofnuð voru 17. janúar 1939 voru
gríðarlega öflug og náði krafa þeirra
eyrum stjórnvalda. Landssamband
smábátaeigenda átti því á brattan
að sækja, en með einörðum og
markvissum málflutningi urðu
stjórnmálamenn tvístígandi. Það
olli því að hluti smábátaeigenda
var utan afamarkskerfisins
(kvóta) fram yfir aldamót eða þar
til sóknardagakerfið var aflagt
1. september 2004 og 275 bátar
bættust í hóp krókaaflamarksbáta.
Tíu bátar kusu þó að halda áfram í
tvö ár í viðbót og höfðu þá heimild
til handfæraveiða í 18 daga.
Strandveiðar
Tæpum fjórum árum síðar var
ákveðið að falla frá þeirri ákvörðun
að binda sjósókn allra smábáta við
kvóta. Strandveiðum var komið
á. Þær hófust 28. júní 2009, en
bráðabirgðaákvæði um veiðarnar
var lögfest 19. júní og ári síðar
staðfestar sem ótímabundið ákvæði
í lögum um stjórn fiskveiða.
Strandveiðar veita einstaklingum
rétt til veiða með handfærum 4
daga í viku, mánudag – fimmtudag
mánuðina maí – ágúst. Hver
veiðiferð má að hámarki standa yfir
í 14 klukkustundir og afli í henni
má að hámarki vera 650 þorskígildi
sem samsvarar 774 kg af óslægðum
þorski. Auk þessara takmarkana
er ákveðið heildaraflamagn ætlað
til veiðanna og því skipt á fjögur
landsvæði á hvern mánuð. Þegar
bátar hvers svæðis höfðu náð þeim
afla voru veiðar stöðvaðar. Við það
myndaðist oft kapp í upphafi hvers
mánaðar þannig að sem mest kæmi
í hlut hvers og eins.
Alþingi ákvað á síðasta ári
að gera breytingar á veiðifyrir-
komulaginu til að minnka það
kapp sem myndaðist við veiðarnar
í upphafi hvers mánaðar, þegar
fyrirsjáanlegt væri að aðeins
örfáir veiðidagar yrðu í boði. Hið
nýja fyrirkomulag sem kom til
framkvæmda 2018 byggist á að
tryggja hverjum báti 12 veiðidaga
í hverjum mánuði. Markmiðið
er að auka öryggi við veiðarnar,
auka jöfnuð milli svæða og gera
strandveiðar meira aðlaðandi.
Svo vel þótti takast til að ákvæðið
sem gilti aðeins sumarið 2018 var
lögfest í apríl síðastliðnum.
Áðurnefndar takmarkanir
veiðanna eru þó enn í gildi, en
í stað þess að því sem ætlað er
til strandveiða sé skipt á fjögur
landsvæði eru heimildirnar í
einum potti. Verði þær uppurnar
áður en fiskveiðiárinu lýkur í lok
ágúst, verða strandveiðar stöðvaðar
samtímis á öllum svæðum. Til að
tryggja að ekki komi til þess var
ákveðið að bæta við veiðiheimildir
sem ætlaðar eru til strandveiða.
Alls er til þeirra ætluð 11.100 tonn
af óslægðum botnfiski auk þess
1.000 tonn af ufsa.
Sveiflur í fjölda báta
Fjöldi smábáta hefur frá stofnun
LS hæst farið yfir tvö þúsund
þar sem þeir bjuggu við nokkuð
ásættanlegar veiðiheimildir.
Hefur nú á síðari árum fækkað
mjög í þeim hópi þar sem aðeins
363 höfðu aflahlutdeild og þar
með kvóta í botnfiski um síðustu
fiskveiðiáramót. Auk þeirra hafa
hundruðir báta gert út á leigukvóta,
strandveiðar, grásleppuveiðar og
nú síðustu ár hefur makríllinn bæst
við.
Fiskveiðiárið sem hófst 1.
september 2015 er til þessa
fengsælasta ár smábátaflotans
þegar aflinn var um 93 þúsund
tonn.
Örn Pálsson
framkvæmdastjóri
Landssambands
smábátaeigenda
- VERKIN TALA
Ertu klár fyrir sumarið?
GMD 310-FF diskaskláttuvél.
Vinnslubreidd 3,10 m
GMD 3511-FF-540 s/n afl úttak.
Miðjuhengd, vinnslureidd 3,50 m
GMD 4011- FF & GMD 4411 FF
Diskasláttuvélar.
Miðjuhengdar. Vinnslubreidd 4,0 og 4,40 m
Fjölfætlur
Múgavélar
GF 502
Lyftutend fjölfætla 4 stjörnu. Vinnslubreidd 5,40 m
GF 642
Lyftutend fjölfæta 6 stjörnu. Vinnslubreidd 6,40 m
GF 8712T
Dragtengd fjölfætla 8 stjörnu á vagni. Vinnslubreidd 8,70 m
GF 10812T
Dragtengd fjölfætla 10 sjörnu á vagni. Vinnslubreidd 10,80 m
Eigum örfár vélar til afgriðslu fyrir heyskapinn.
Tryggið ykkur vélar í tíma.
Sláttuvélar
GA 5031T
Dragtend einnar stjörnu múgavél.
Vinnslubreidd 5,0 m
GA 7501+
Dragtengd tveggja stjörnu múgavél.
Vinnslubreidd 6,80 – 7,50 m
dB aæn
29. íma
Hvar auglýsir þú?
Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
45,6% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
20,4%
45,6%
á landsbyggðinniá höfuðborgarsvæðinu
29,5%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2018. Aldur 12-80 ára.