Bændablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2019 47
Daginn eftir 17 ára afmælið mitt
fékk ég bílpróf, prófið var á bíl
sem mátti hlaða allt að 5.000
kg og á fólksflutningabíl með
farþega upp að 16 án gjaldtöku.
Hingað til hefur þetta dugað,
vinnubíllinn tómur er um 8
tonn og má ekki hlaða hann
meira en 5 tonn, en einstaka
sinnum þarf að keyra inn og út
af verkstæðinu þar sem ég vinn
við stærri rútur og bíla en mín
réttindi leyfðu.
Bílprófin breyttust þann 1.1.
1997 fyrir hefðbundin réttindi
til að aka bíl (réttindi B), í
að bíllinn mátti með hleðslu
aldrei vera þyngri en 3.500 kg
og farþegafjöldinn hámark 8.
Samkvæmt þessu þá voru synir
mínir tveir ekki með mikil
ökuréttindi. Fyrir um ári síðan
fórum við feðgar að skoða tíma
og staði til að auka ökuréttindi
okkar og ekkert virtist henta vegna
árekstra við vinnu, en Ökuskóli
Austurlands var til í að sníða
námskeið sem hentaði okkur.
Réttindi A-B-BE-C-CE-D-DE
Eftir tvær helgar og nokkur
kvöld fyrr í vetur á námskeiðum
í umferðarfræði, skyndihjálp og
vélfræði var komið að því að
fara austur á Egilsstaði og klára
námið á „vertíðarhraða.0148“ eftir
vikudvöl í skólatörn frá 8.00 til
22–23.00 á kvöldin.
Allt gekk upp og allir þrír náðu
réttindunum sem stefnt var á, stóð
að vísu tæpt hjá gamla manninum
sem náði að krækja sér í sömu
villuna í öllum þrem verklegu
prófunum. Það var fyrir að halda
vitlaust um stýrið, ávani sem erfitt
er að venja sig af.
Nám sem ætti að gagnast öllum
Stéttarfélög styrkja nám til
aukinna ökuréttinda þannig að
þetta nám er ekki endilega svo
dýrt (Efling veitir allt að 300.000
og VR 390.000 svo eitthvað sé
nefnt).
Námskráin fyrir aukin réttindi
er býsna fjölbreytt, þegar maður
renndi yfir hana fyrirfram fannst
mér sem að 16 tíma námskeið
í skyndihjálp væri full mikið
(hafði ekki hugsað mér að verða
skurðlæknir), en það sem maður
lærði í skyndihjálpinni var tími
sem ég sé ekki eftir og hefði alveg
mín vegna mátt vera lengri.
Nafnið umferðarfræði
fannst mér ekki hljóma vel, en
þarna er farið nánast yfir allt
sem hugsanlega kemur umferð
við, reglugerðir til hópferða og
leigubílaaksturs, umhverfismál,
hleðslufræði og margt fleira er
kennt og farið ítarlega yfir. Nám
sem er svo fræðandi að hvetja
mætti menn til að fara í svona
nám.
Furðulegar reglur um kennslu
við að læra á rútu
Ljúka þarf ákveðið mörgum
ökutímum á hvert próf sem tekið er
við mismunandi aðstæður. Ein er
sú regla sem er hreint óútskýranleg
og spurði ég bæði ökukennarann
og prófdómarann út í hana, en
hvorugur gat gefið mér svar sem
ég sætti mig við. Þannig er að sá
sem tekur rútupróf verður að keyra
að lágmarki tvær kennslustundir
á Akureyri eða í Reykjavík
(hringtorg og umferðarljós).
Einhvers konar regla sem er svo
gömul að enginn man hvenær hún
var sett. Fyrir mér er þetta það sem
mundi kallast „landsbyggðarníð“,
eitthvað sem mætti breyta svo að
nemendur á Austurlandi og annars
staðar á landinu þurfi ekki að keyra
hundruð kílómetra til þess eins
að keyra í hringtorgi og stoppa á
rauðu ljósi.
Eftir aukin ökuréttindi sér
maður umferðina öðruvísi
Allir náðum við réttindum þeim
sem við fórum í upphafi í að ná,
þetta var erfitt, en þegar fór að
hilla undir lok námskeiðisins var
greinilegt að strákarnir ætluðu sér
að skora hærra en gamli maðurinn.
Það fór svo að yngri strákurinn
„rústaði“ þessu, en ég og eldri
strákurinn deildum silfrinu.
Á heimleiðinni horfðum við
mikið á stóru bílana. Horfðum á
umferðina meira frá sjónarhorni
þess að aka stórum bílum á
mismunandi vegum og vorum við
fljótir að sjá óásættanlega hleðslu
á grjótbílnum sem við tókum fram
úr á Skeiðarársandi.
Á leiðinni heim ræddum við
um námskeiðið og vorum við
sammála um að allir hefðu gott
af því að fara á svona námskeið.
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
VAGN EINSKÆR MÆLI-EINING ANDMÆLI MYRKUR UMFANG SÖNGLA
SFÚLL K A P V O N D U R
TSTÚLKA E L P A
GUFU-
HREINSA
SITJANDI E I M A
EGRÖM R G T R I M M U
R E S T A TALHINDRA M Á L
KRAKKI
BRESTIR
ÚR HÓFI S N A R K FUGLKRINGUM S V A L A
TVEIR
EINSÁTT
FSALTARIFTUN
SKOKK
VERÐUR
S K O L A SIGTI
ELDHÚS-
ÁHALD
BRIGSLA A U S A GRIMMUR SELUR ÁTTÞVO
A R F I FRUMEFNIDVELDU M Á L M SEFUNSKILABOÐ R Ó U NILLGRESI
M Ó DANSKALLA T V I S T GILDRASTAÐNA S N A R ASVÖRÐ
H I K ELLEGARSJÚKDÓM E Ð A FLOTTNÚA S M A R T LUFSATÖF
V GÆTINNFLYTJA V A R FAÐMLAG K N Ú S OPHRUN G A T
E F A S T EYRIRGAGN A U R HVAÐ H A SUND JVEFENGJA
R Æ K T U N HÁVAÐITVEIR EINS G N Ý R TVEIR EINSKUSK Á ÁYRKING
F
A
R
A
A
HINDRA
M
A
GARGA
F
O
T
R
R
G
A
A
SNÆLDA
SAMTALS
S
A
P
L
Ó
L
L
S
A
ÍÞRÓTTA-
FÉLAG
SAMTÖK
105
GOSEFNI HUND LJÓMI HLEMMUR TEYGJUDÝR UM-TURNUN ÞÓ
ÓVIRKUR
FLÝTIR
GREINAR-
MERKI
LÍFHVATI
YFIR-
BREIÐSLA
LAPPI
LIÐUGUR
HAF MATJURT
YNDIS
PÍLA
FLÍK HLJÓMA
SPRIKLÁRÁS
VIÐ-
BÆTTUR
TRJÁ-
TEGUNDAR
EFTIRSJÁ
IÐN
LAND
VAGGA
TRÉ TVEIR EINSBÝSN
FYRSTUR
LÖMDU
FRUMEFNI
BÓK-
STAFUR
SLÁTTAR-
TÆKI
ERTA
GARMAR
LÍTILL
BÁTUR
OFRA
RÖÐULL
DREITILL
BITHAGI
MÓT
HEPPNI
NÆGI-
LEGUR KNÉSETJA
GJALD-
MIÐILL
MÆLI-
EINING
LJÓMA
ELDUR
ÞANGAÐ TIL
LOFT-
TEGUND
DRULLA
LÆR-
DÓMUR
ÓKYRRÐGRAFTAR-BÓLGA
FAÐMLAG
Í RÖÐ
TVEIR EINS
SKÓLI
STAGL
STERKA
FUGL
PIRRA
ÁKAFLEGADANA
SAMTÖK
106
Aukin ökuréttindi, lærdómur sem kemur öllum vel
Páll Sigvaldason, SLF, leigir Ökuskóla Austurlands ökutæki og verð ég að
Myndir / HLJ
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG Verslun ehf | | 20 Kópavogi
Sími 544-4656 | www.mhg.is