Bændablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 23

Bændablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2019 23 Stöndum saman vörð um heilbrigði íslensks búfjár: Reglur um flutning yfir varnarlínur Matvælastofnun vekur athygli á að strangar reglur gilda um flutning á lifandi jórturdýrum, tækjum og ýmsum varningi yfir varnarlínur. Óheimilt er að flytja sauðfé til lífs yfir varnarlínur, nema þegar um er að ræða endurnýjun bústofns vegna niðurskurðar af völdum sjúkdóma og/eða vegna búháttabreytinga og þá einungis með leyfi frá MAST. Sleppi sauðfé yfir varnarlínur skal því slátrað. Óheimilt er að sameina hjarðir innan sýktra varnarhólfa nema með leyfi Matvælastofnunar. Nautgripi og geitur má aðeins flytja til lífs yfir varnarlínur hafi farið fram sérstök rannsókn á heilbrigði þeirra. Reglur um flutning á lifandi sauðfé Landinu er skipt upp í 25 varnarsvæði. Vegna ólíkrar sjúkdómastöðu í þessum varnarsvæðum gilda mismunandi reglur um flutninga á lifandi fé frá og innan þessara svæða. Ef riðuveiki er staðfest á bæ er varnarsvæðið talið sýkt í 20 ár frá byrjun áramóta þess árs sem síðasta tilfelli er staðfest. Ósýkt varnarsvæði eru svæði þar sem riða hefur ekki greinst síðastliðin 20 ár. Líflambasölusvæði eru varnarhólf þar sem aldrei hefur greinst riða, og garnaveiki ekki greinst síðastliðin 10 ár. Sýkt svæði Þau varnarsvæði sem eru sýkt eru: • Vatnsneshólf • Húna- og Skagahólf • Suðurfjarðahólf • Hreppa-, Skeiða- og Flóahólf • Biskupstungnahólf Allir flutningar á fé milli hjarða innan þessara svæða og frá þeim (yfir varnarlínur) eru bannaðir. Til að kaupa líffé inn á sýkt varnarsvæði þarf að sækja um leyfi til Matvælastofnunar. Sé fé flutt án leyfis yfir varnarlínur eða á milli bæja innan sýktra svæða er fénu lógað og getur brotið varðað sekt. Línubrjótum er lógað og sýni tekin til riðurannsókna. Annar flutningur Einnig er óheimilt að flytja milli bæja innan sýktra svæða og áhættusvæða hvaðeina, sem getur borið smitefni milli staða, svo sem hey, heyköggla og hálm, húsdýraáburð, túnþökur og gróðurmold nema með leyfi héraðsdýralæknis. Skilyrði fyrir slíku leyfi varðandi hey er að það sé allt í plöstuðum stórböggum eða rúllu og skilyrði fyrir þökur er að þær séu aðeins notaðar á svæðum þar sem sauðfé kemst ekki að. Þá er óheimilt að flytja ull á milli bæja nema með leyfi héraðsdýralæknis. Athugið að aðilar sem fara milli sóttvarnarsvæða, sýktra svæða, áhættusvæða eða ósýktra svæða, með tækjabúnað til landbúnaðarstarfa, s.s. fjárklippur, markatengur, lyfjadælur og annan tækjabúnað skulu fá leyfi héraðsdýralæknis og vottorð um að fullnægjandi sótthreinsun hafi átt sér stað. Þessi tæki og önnur sem óhreinkast af sauðfé á sýktum svæðum skulu sótthreinsuð samkvæmt fyrirmælum héraðsdýralæknis að lokinni notkun á hverjum stað/jörð. Svæði sýkt að hluta Varnarsvæði sem eru svæðisskipt vegna sjúkdómastöðu: • Tröllaskagahólf: - Sýkt svæði: Dalvíkurbyggð norðan Hámundarstaða. • - Ósýkt svæði: Önnur svæði í hólfinu. • Landnámshólf: - Sýkt svæði: Sveitarfélögin Ölfus, Hveragerði og Árborg og Grafningur í Grímsnes- og Grafningshreppi. - Ósýkt svæði: Önnur svæði í hólfinu. • Skjálfandahólf: - Ósýkt svæði: Skútustaðahreppur, Engidalur og Lundarbrekka og bæir þar fyrir sunnan. - Sýkt svæði: Önnur svæði í hólfinu. Fyrir þá hluta hólfanna sem teljast sýktir gilda sömu reglur og fyrir sýktu svæðin, samanber kafla hér að ofan. Garnaveiki Aðrar reglur gilda fyrir garnaveiki en í stuttu máli má ekki flytja líffé eða tæki og tól frá garnaveikisvæðum þar sem bólusett er yfir á hrein svæði þar sem ekki er bólusett. Á þeim bæjum þar sem garnaveiki hefur verið staðfest taka í gildi ýmsar hömlur í 10 ár frá síðasta staðfesta tilfelli. Lög og reglur sem um þessi mál gilda • Lög um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993 • Reglugerð um útrýmingu á riðuveiki nr. 651/2001 • Reglugerð um flutning líflamba nr. 550/2008 • Auglýsing um varnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma nr. 88/2018 Sigrún Bjarnadóttir, dýralæknir nautgripa- og sauðfjársjúkdóma hjá Matvælastofnun ...frá heilbrigði til hollustu Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðar- dekk skipta gæði, ending og áreiðanleiki höfuðmáli. Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur og hafa reynst vel við krefjandi aðstæður. Gerðu kröfur — hafðu samband við sölumenn Bílaþjónustunnar í síma 464 1122 og kynntu þér kosti Maxam dekkjanna. BÍLAÞJÓNUSTAN EHF Hagkvæm dekk fyrir alvöru kröfur GARÐARSBRAUT 52 / 640 HÚSAVÍK / 464 1122 Ársfundur – stjórnarkjör 2019 Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn föstudaginn 28. júní nk. kl. 14 að Stórhöfða 23, 4. hæð, Rvk. Dagskrá: • Venjuleg ársfundarstörf. • Stjórnarkjör skv. samþykktum. • Önnur mál. Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu. LSB auglýsir eftir framboðum til setu í stjórn sjóðsins: • Eitt sæti í aðalstjórn til fjögurra ára. • Tvö sæti í varastjórn, annað til tveggja ára og hitt til fjögurra ára. Þeir sem gefa kost á sér þurfa að fullnægja kröfum um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. lögum nr. 129/1997, reglum FME og samþykktum sjóðsins og vera tilbúnir til að gangast undir hæfismat FME. Framboðsfrestur er til 31. maí 2019. Upplýsingar um stjórnarkjörið og hvaða gögnum beri að skila vegna framboða til setu í stjórn sjóðsins má sjá á heimasíðu sjóðsins, www.lsb.is. Stjórn Lífeyrissjóðs bænda Lífeyrissjóður bænda - Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík Sími 563 1300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.