Bændablaðið - 12.09.2019, Qupperneq 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 20192
Umhverfis- og auðlindaráðherra
hefur ákveðið að lengja veiði-
tímabil rjúpu um viku frá fyrra
ári og verður nú 22 dagar, á bilinu
1. nóvember– 30. nóvember. Leyft
er að veiða fimm daga í viku, frá
föstudögum til þriðjudaga í hverri
viku. Veiðibann er miðvikudag
og fimmtudaga. Áfram er í
gildi sölubann á rjúpum og eru
veiðimenn hvattir til hófsemi í
veiðum.
Heimilt verður að veiða alla
daga á tímabilinu nema á miðviku
dögum og fimmtudögum. Ákvörðun
ráðherra kemur í kjölfar ráðgjafar
Umhverfisstofnunar, sem unnin var
í samstarfi við Náttúrufræðistofnun,
Fuglaverndarfélags
Íslands og Skotvís.
Sjálfbær nýting
Gengið er út frá
þeirri megin stefnu
stjórnvalda að nýting
auð linda sé sjálfbær og
þar með talinn rjúpna
stofninn. Jafnframt
skulu rjúpnaveiði
menn stunda hóflega
veiði til eigin neyslu,
en sölubann er áfram
á rjúpu. Umhverfis
stofnun er falið að
fylgja sölubanninu eftir.
Í tilkynningu Umhverfis
stofnunar eru veiðimenn
hvattir til að sýna hófsemi
og eru þeir sérstaklega
beðnir um að gera hvað
þeir geta til að særa ekki
fugl umfram það sem þeir
veiða, meðal annars með
því að ljúka veiðum áður
en rökkvar.
Veiðiverndarsvæði
verður áfram á Suðvestur
landi líkt og undan farin
ár. Veiðimönnum er enn
fremur bent á að kynna
sér takmarkanir á veiðum
á friðlýstum svæðum.
/smh
FRÉTTIR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
NÁNAR Á UU.IS EÐA Í SÍMA 585 4000
VERÐ FRÁ 114.900 KR.
31. OKTÓBER - 3. NÓVEMBER
FLUG & GISTING MEÐ MORGUNVERÐI
FARARSTJÓRI
UNNUR PÁLMARSDÓTTIR
Bændum greiddar bætur vegna
ágangs álfta og gæsa
Nú í haust munu bændur í fyrsta
sinn geta sótt um stuðningsgreiðslur
til ríkisins ef tjón hefur orðið á
ræktunarlöndum vegna ágangs
álfta og gæsa, en lengi hefur verið
kallað eftir úrræðum vegna þessa
skaðvalds.
Að sögn Jóns Baldurs Lorange,
framkvæmdastjóra Búnaðarstofu
Matvælastofnunar, sem annast
greiðslurnar, er heildarupphæð
jarðræktarstyrkja vegna jarðabóta
um 396 milljónir króna og
munu tjónabætur vegna álfta og
gæsa fara af þeim lið. Þar með
lækka jarðræktarstyrkirnir sem
því nemur. Framkvæmdanefnd
búvörusamninga er heimilt
samkvæmt búvörusamningum, eða
rammasamningi milli ríkis og bænda,
að bæta tjón vegna ágangs álfta og
gæsa og ákvað nefndin að það yrði
gert í fyrsta skipti vegna þessa árs.
Ekki liggur fyrir hvort þessi heimild
verði nýtt vegna ársins 2020, en
framkvæmdanefndin þarf að taka
þá ákvörðun fyrir 20. september
næstkomandi.
Jón Baldur segir að ekki muni
liggja fyrir hve miklir fjármunir munu
fara til að greiða þessar bætur. Það
fari eftir því hve margar umsóknir
um tjónabætur verði samþykktar af
úttektarfólki búnaðarsambanda og
hve mikið tjón verður í heild.
Allt að 75% álag á ræktunarstyrk
Bætur eru greiddar vegna tjóns á
ræktunarlandi sem er frá 31 prósent að
altjóni og geta stuðningsgreiðslur mest
orðið 75 prósenta álag á ræktunarstyrk
fyrir hvern hektara. Álagið reiknast
ofan á jarðræktarstyrkinn, sem þarf
að vera samþykktur á sama ári enda
verið að bæta tjón á þeim jarðabótum.
Ekki er greiddur stuðningur á land
sem nýtur landgreiðslna.
Bændur skulu skila inn rafrænni
tjónaskýrslu inn í umsóknarkerfi
Matvælastofnunar á Bændatorginu
um leið og tjóns verður vart, þó eigi
síðar en 20. október næstkomandi.
Úttektarstarfsmenn á vegum
Matvælastofnunar (starfsfólk
búnaðarsambanda) taka út tjón.
„Töluverð vinna hefur verið
lögð í það á undanförnum árum
á vegum Matvælastofnunar og
Umhverfisstofnunar að leggja
grunn að því hvernig meta eigi tjón
af völdum álfta og gæsa og hefur
verið horft til annarra Norðurlanda
í því sambandi. Þannig hafa bændur
skráð tjónaskýrslur síðastliðin
ár með ljósmyndum og fleiru
sem notaðar hafa verið í þessu
sambandi. Ljóst má vera, miðað
við hve fáar tjónaskýrslur hafa
borist, að áhersla verður á að bæta
uppskerutjón sem orðið hefur
síðari hluta ársins. Það verður í
höndum úttektarmanna að leggja
faglegt mat á hugsanlegt tjón út frá
settum vinnureglum. Við metum
svo árangurinn eftir haustið með
Umhverfisstofnun og úttektarfólki
og leggjum niðurstöðuna
fy r i r f r amkvæmdanefnd
búvörusamninga sem tekur
ákvörðun um framhaldið. Ráðherra
þarf síðan að leggja mat á hvort
bæta þurfi regluverkið í kringum
tjónabæturnar fyrir næstu ár. Rétt
er að benda á að forsenda stuðnings
vegna tjóns af völdum ágangs
álfta og gæsa er að umsókn um
jarðræktarstyrk hafi verið samþykkt
á sama ári,“ útskýrir Jón Baldur.
/smh
Álftir og gæsir hafa oft valdið miklu tjóni á ræktarlöndum bænda. Myndir / HKr.
Jón Baldur Lorange.
Lækkun tolla
á blómkáli
– vegna skorts á markaði
Á mánudaginn 2. september tók
gildi reglugerð um lækkun tolla
á blómkáli næstu þrjá mánuði.
Kemur hún í kjölfar þess að
skortur hefur verið á blómkáli á
markaði í sumar.
Í tilkynningu atvinnuvega og
nýsköpunarráðuneytisins kemur fram
að rannsókn ráðgjafarnefndar um
inn og útflutning landbúnaðarvara
hafi leitt í ljós skort á vörunni á
markaði og því sé heimilt samkvæmt
búvörulögum að lækka tollana. /smh
Rjúpnaveiðitímabilið lengt um viku
Ný Hvammsrétt í Langadal
Ný rétt, Hvammsrétt, hefur
verið tekin í notkun í Langadal.
Blönduósbær byggði réttina og
var smíðin í höndum Halldórs
Skagfjörð frá Fagranesi og
jarðvinnu verktaki var Júlíus
Líndal frá Holtastöðum.
Fyrstu réttir voru um þarsíðustu
helgi, um mánaðamótin ágúst og
september. Féð sem fór í réttina
var smalað úr Langadalsfjalli.
Réttarstörfin gengu vel og var
almenn ánægja með réttina, að því
er fram kemur á vef Blönduósbæjar.
/MÞÞ
Réttað var í nýrri Hvammsrétt um síðustu mánaðamót. Myndir / Blönduósbær / Róbert Daníel Jónsson
Elías Blöndal Guðjónsson. Mynd / TB
Landssamband veiðifélaga:
Nýr framkvæmda
stjóri ráðinn
Elías Blöndal Guðjónsson hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Landssambands veiðifélaga
(LV). Hann tekur við af Árna
Snæbjörnssyni sem hefur
verið framkvæmdastjóri
landssambandsins frá árinu 2003.
Elías hefur starfað sem
framkvæmdastjóri fasteignafélagsins
Bændahallarinnar ehf. frá árinu
2016 og mun áfram gegna
því starfi samhliða vinnu
fyrir landssambandið. Elías er
lögfræðingur og hefur meistarapróf
frá Háskólanum í Reykjavík.
Hann starfaði sem lögfræðingur
Bændasamtaka Íslands frá 2010–
2016 og sat í stjórn Hótel Sögu ehf.
frá 2014–2018. Elías rak jafnframt
eigið fyrirtæki í sölu veiðileyfa frá
2010–2016.
Í fréttatilkynningu frá Lands
sambandi veiðifélaga er Árna
Snæbjörnssyni þakkað fyrir
störf sín í þágu sambandsins og
nýr framkvæmdastjóri boðinn
velkominn. Framkvæmdastjóri LV
hefur aðsetur í Bændahöllinni við
Hagatorg.