Bændablaðið - 12.09.2019, Side 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 20194
FRÉTTIR
TORT
INNHEIMTA SLYSABÓTA
Átt þú rétt á
slysabótum?
Við hjálpum þér
HAFÐU SAMBAND 511 5008
Benedikt Benediktsson, framleiðslustjóri hjá SS, segir sláturtíðina hafa farið mjög vel af stað.
Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Sauðfjárslátrun hófst hjá SS á Selfossi 4. september:
Um 110 þúsund fjár verður
slátrað á þessu hausti
– Hundrað útlendingar ráðnir og flestir hafa komið oft áður í sláturtíðina
„Sláturtíðin fer mjög vel af stað,
við byrjum að slátra miðviku
daginn 4. september og verðum
næstu vikurnar í þessu af
fullum krafti,“ segir Benedikt
Benediktsson, framleiðslustjóri
hjá SS.
„Við erum með frábært starfsfólk,
útlendinga og Íslendinga, sem gera
það að verkum að við erum bjartsýn
á að allt gangi mjög vel.“
Alls verður slátrað um 110
þúsund fjár á Selfossi. Af þeim
100 útlendingum sem munu vinna í
slátur tíðinni koma flestir frá Póllandi
og Nýja-Sjálandi. Íslendingarnir eru
40.
„Þetta er allt starfsfólk sem hefur
verið meira og minna hjá okkur í
sláturtíð síðustu ár, þaulvant og
veit um hvað verkefnin og vinnan
snúast, við gætum ekki verið
heppnari,“ bætir Benedikt við. Fall-
þungi lambanna hefur verið góður
og almennt er ánægja með þau, enda
sumarið búið að vera einstaklega
gott sunnanlands. Bændur fá að
jafnaði 8% hærra verð fyrir kjötið
en síðasta haust hjá SS. /MHH
Það er meira en nóg að gera í sláturhúsi Sláturfélags Suðurlands á Selfossi þessar vikurnar þegar sláturtíðin
stendur sem hæst yfir.
Bjarki Freyr Sigurjónsson frá Efstu-Grund undir Eyjafjöllum er einn af
matsmönnum SS og er hér að skoða skrokk. Bændurnir í Skarði í Landsveit
fylgjast spenntir og brosandi með, þau Guðlaug Berglind Guðgeirsdóttir og
Erlendur Ingvarsson, sem eru með á annað þúsund fjár.
Sláturhús Vesturlands í Borgarnesi:
Slátrar fyrir bændur
sem selja beint frá býli
Sláturhús Vesturlands í Brákarey,
Borgarnesi, hefur verið starfrækt
undanfarin ár og verður svo líka
í haust. Að sögn aðstandenda
fyrirtækisins verður starfsemin
með svipuðum hætti og í fyrra,
það er að segja fyrst og fremst
þjónustuslátrun fyrir bændur
sem taka afurðirnar til sín aftur.
Í haust verður þó boðið upp á
meiri kjötvinnslu en áður og
verður hún aðlöguð að óskum
kaup enda. Guðjón Kristjánsson
er framkvæmdastjóri Slátur húss
Vesturlands en alls eru um 10
manns sem starfa hjá fyrirtækinu.
Guðjón framkvæmdastjóri segir
að nú sé sauðfjárslátrun komin á
fullt, nóg að gera í Brákarey og
meðbyr með starfseminni.
„Þetta gengur fyrst og fremst
út á að þjónusta bændur sem vilja
selja sitt eigið kjöt beint frá býli. Við
höfum ekki farið þá leið að kaupa
kjöt af bændum heldur aðstoðum
við þá við að selja það. Við erum
með kjötiðnaðarmenn og vinnslu
sem gengur frá kjötinu eins og
viðskiptavinir vilja.“
„Þú velur bónda, hann
framleiðir og við slátrum“
Guðjón segir að yfirleitt sæki
bændur kjötið til þeirra og komi
áleiðis til sinna kaupenda. Margir
veitingastaðir og ekki síður mötu-
neyti vilji vera með staðbundið
hráefni af þekktum uppruna og
þar komi sláturhúsið í Brákarey
sterkt inn. „Oftast er kjötið sótt
til okkar en við sendum líka út
frá okkur, til dæmis í veitingahús
og til mötuneyta.“ Hann segir
ekkert mál að setja kjöt í neytenda-
umbúðir og allt kjötið sé rekjanlegt
beint til bónda. Guðjón segir að
kröfur neytenda um uppruna séu
mjög vaxandi. „Ég segi það að í
framtíðinni velur þú þér bónda, hann
framleiðir fyrir þig og við sjáum um
slátrunina.“
Allur tækjabúnaður til staðar
Nú er fjórða sláturtíðin að hefjast
í Brákarey síðan þjónustuslátrun
var tekin upp. „Við erum með leyfi
til að slátra öllum skepnum nema
kanínum og alifuglum en aðallega
erum við í nautgripa-, sauðfjár- og
hrossaslátrun,“ segir Guðjón. Hann
segir að allur tækjabúnaður sé til
staðar til að slátra svínum en til þess
hafi ekki komið enn þá. Markmið
sláturhúss Vesturlands sé að slátra
um 4.000 dilkum núna í haust en það
á eftir að koma í ljós hvort það takist.
„Við erum að slátra á bilinu 150–200
dilkum á dag og látum kjötið hanga í
2–3 daga,“ segir Guðjón og bætir við
að ef slátrað er seinni part vikunnar
geti viðskiptavinir látið hanga yfir
helgina. Margir hafi áhuga á að láta
hanga vel.
Gott fyrir umhverfið og
matarmenninguna
Guðjón segir að vaxandi áhugi
sé á því að vera með afurðir úr
héraðinu og margir bændur séu
með fastan viðskiptamanna hóp
og gera út á sérstöðu ýmiss konar.
„Það er ágætt að þurfa ekki að flytja
matinn of langt og þetta er gott fyrir
menninguna og matarupplifunina,
sem og umhverfið líka.“ Aðspurður
um það hvernig viðskiptavinir geti
nálgast kjöt frá Brákarey bendir
hann á Facebook-síðu Sláturhúss
Vestur lands þar sem er að finna
verð og ýmsar upplýsingar. „Svo
er líka einfaldlega hægt að hringja
í pöntunarsímann 666-7980,“ segir
Guðjón Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri Sláturhúss Vesturlands.
/TB
Guðjón Kristjánsson, framkvæmdastjóri Sláturhúss Vesturlands, segir að
vaxandi áhugi sé á því að vera með afurðir úr héraði og gera út á sérstöðuna.
Mynd / smh