Bændablaðið - 12.09.2019, Qupperneq 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 2019 7
LÍF&STARF
Haustið bíður allra oss,
úti er blíða og friður.
Safnið líður líkt og foss
Lækjarhlíðar niður.
Þ essa vísu Rósbergs G. Snædal þarf svosum engum að kynna, hana orti hann við Stafnsrétt í Svartárdal.
Stafnsrétt er böðuð bjartri minningu þeirra
sem þar hafa sýslað með fé, og víst er það
svo, að staðurinn er stórfenglegur og óvíða
verið rekið jafn margt fé til réttar.
Þegar haustar er líka gott að grípa til
gangnavísna. Yrkisefnið líka einstakt að því
leyti að þar renna saman í rím bæði náttúra
lands og blessuð sauðkindin sem barg
fyrrum þessari þjóð frá hungurdauða. Þó að
Ingólfur Ómar Ármannsson hafi líklega
ekki fyrir sauðfé að sjá, þá getur hann alveg
sett sig inn í aðstæður gangnamanna:
Blasir halli beint í mót,
brött og grýtt er heiðin,
yfir fláa urð og grjót
oft er torsótt leiðin.
Fram á heiðum sóma sér,
seggja létt er geðið,
rennt úr staupi stundum er,
staldrað við og kveðið.
Ekki eru þó allar vísur haustdaganna ofnar
sauðfjárhaldi. Langt er um liðið frá því
Davíð Hjálmar Haraldsson, hagyrðingur
á Akureyri, hefur knúið hér dyra. Því er
kærkomið að birta nú eftir hann haustljóð,
glænýtt og gamansamt:
Ennþá kemur haust í hagann.
Hrafnar, rorrandi í fitu,
flögra um með fullan magann
og feikilega berjaskitu.
Litast gulu lerkinálar,
lotin híma fölvastráin
og birkiþélan bölvuð kálar
björkinni og leggst á náinn.
Húmvindar í holti þjóta
en haustsins finn ég nálægð mesta
þegar gæsaskyttur skjóta
skotvissar á lömb og hesta.
Ingólfur Ómar Ármannsson er ögn
hátíðlegri í sinni haustvísu:
Sumar líður senn á braut
sölnar blómaflétta.
Roðna brekkur lyng og laut
lauf af greinum detta.
Jónas hét maður og var Jóhannesson og
bjó á Breiðavaði í Langadal á nítjándu öld.
Jónas þótti skáld gott, og þessa oddhentu
og hringhendu smalavísu orti hann húskarli
sínum:
Smalamaður þenk um það,
þung eru skaða-gjöldin;
dagurinn trað í drafnar bað,
dimmir að á kvöldin.
Einn okkar bestu hagyrðinga var Ásgrímur
Kristinsson, fæddur að Ási í Vatnsdal 29.
desember 1911. Ásamt konu sinni Ólöfu
K. Sigurbjörnsdóttur byggðu þau nýbýlið
Ásbrekku út úr jörðinni Ási og kenndi
Ásgrímur sig jafnan við þá jörð. Ásgrímur
orti margar landfleygar vísur og þessar
heiðarvísur hans lifa meðan vísur tóra:
Harðnar reiðin frjáls og frí,
færist leiðin innar.
Blærinn seiðir okkur í
arma heiðarinnar.
Enn um þetta óskaland
ótal perlur skína.
Hitti ég fyrir sunnan sand
sumardrauma mína.
Páll Guðmundsson frá Holti í Svínadal
orti í göngum um góðhestinn sinn Grána:
Ég í snatri fjör mitt fel
fák‘i ólata að vana,
þótt ei gatan greinist vel,
Gráni ratar hana.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
233MÆLT AF
MUNNI FRAM
Kvenfélagskonurnar í Kvenfélagi Staðarhrepps sjá alltaf um glæsilegar kaffiveitingar í réttarhléi Hrútatunguréttar. Hér eru nokkrar þeirra, frá vinstri,
Kathrin Schmitt, Ólafía Jóna Eiríksdóttir, Sigurlaug Árnadóttir, Guðný Kristín Guðnadóttir og Hafdís Þorsteinsdóttir. Myndir / Magnús Hlyndur Hreiðarsson
Um fjögur þúsund fjár í Hrútatungurétt
– Ungt fólk flytur í sveitina og hefur sauðfjárbúskap
Það var góð stemning í Hrútatungurétt
í Hrútafirði í Vestur-Húnavatnssýslu
laugardaginn 7. september þrátt fyrir smá
rigningu af og til.
Um fjögur þúsund fjár voru í réttunum og
margt fólk sem aðstoðaði bændur og búalið
að draga í dilka. Bændur voru sammála um að
lömbin kæmu falleg af afréttinum þrátt fyrir
þurrka í sumar. Ánægjulegustu tíðindin eru
þó úr Hrútafirði að þar er ungt fólk að taka
við sauðfjárbúskap á nokkrum bæjum, m.a.
á Bálkastöðum þar sem ung hjón með fjögur
börn úr Hvalfjarðarsveit eru tekin við búinu.
Á bænum er um 500 fjár og jörðin er um 500
hektarar að stærð. /MHH
Það er gott að vera hjá afa og fylgjast með réttarstörfunum, hér eru
það þeir Emery Trausti og Róbert Ozias Elmarssynir með Róberti
Júlíussyni, afa á Hvalshöfða.
Bændur voru ánægðir með útlit lambanna eftir sumarið enda voru þau
yfirleitt væn og falleg. Slátrun fer fram á Hvammstanga.
Það hjálpast allir að í réttunum. Hér er það Reynir Þórarinsson frá
Þóroddsstöðum með son sinn, Þórarin, sem eru að fara með lamb í dilk.
Brynjar Ægir Ottesen er ungur og öflugur sauðfjárbóndi sem hefur
nýlega keypt jörðina Bálkastaði í Hrútafirði með konu sinni, Guðnýju
Kristínu Guðnadóttur. Þau eiga fjögur börn og eru úr Hvalfjarðarsveit.
Á bænum eru um 500 fjár og jörðin er um 500 hektarar að stærð. Með
kaupunum eru Brynjar og Guðný að láta draum sinn rætast um að
vera sauðfjárbændur.
Aðalheiður Böðvarsdóttir á Reykjum að draga í Reykjadilkinn.