Bændablaðið - 12.09.2019, Síða 14

Bændablaðið - 12.09.2019, Síða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 201914 HLUNNINDI&VEIÐI Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is klefar Kæli- & frystiklefar í miklu úrvali. Vottaðir gæðaklefar með mikla reynslu á Íslandi. Einfaldir í uppsetningu. hillur fyrir kæli- & frystiklefa. Mikið úrval og auðvelt að setja saman. Sérhannaðar fyrir matvæli. Kæli- & frysti- búnaður hafðu samband í síma 587 1300 og við sérsníðum lausn sem hentar þér! „Þetta var meiri háttar gaman, bleikjan tekur fluguna grimmt hérna í Flókadalnum,“ sagði María Gunnarsdóttir, sem setti í hverja bleikjuna á fætur annarri fyrir skömmu. Flestar bleikjurnar tóku fluguna „Krókinn“, sem Gylfi heitinn Kristjánsson hannaði, en hann hnýtti margar góðar silungaflugur sem hafa gefið vel. Þarna veiddi María, sem ekki hafði veitt mikið á flugu, um 20 silunga en sleppti þeim flestum aftur í ána. Enda bleikjan fiskur sem þarf að fara varlega með. Það er ekki það mikið af henni í veiðiánum og henni fer fækkandi með hverju árinu. Besta dæmið er fækkun bleikj­ unnar í Hvítá í Borgarfirði þar sem veiddust um 4.000 þegar best lét, en núna veiðast aðeins örfáar. Það er af sem áður var. Við erum í Fljótunum og þar er hellingur af bleikju, hylur 7 telur líklega um 150 bleikjur og þær taka grimmt fluguna. María losar úr bleikju og sleppir henni aftur, hún hefur allt í einu fengið áhuga á öðru. Gæsahópur kemur og flýgur rétt hjá. Henni finnst skotveiði líka skemmtileg eins og veiðin, það er veiði á ýmsum stigum hérna í Flókadalnum. Hér er ýmislegt í boði fyrir veiði­ menn en núna er maður bara að veiða bleikjuna. Veiðisvæðið er skemmtilegt þarna, fiskurinn er fyrir hendi og veiðimenn una hag sínum á bökkum árinnar. En það er farið að hausta, bleikjan verður tregari með hverjum deginum en það getur líka verið skemmtilegt að reyna fleiri flugur og smærri. Flóka dalurinn hefur ýmislegt að geyma. Flókadalsá Efri­Flókadalsá í Fljótum hefur verið að gefa feiknavel í sumar og núna eru komnar 1.400 bleikjur. Við vorum á bakkanum fyrir skömmu og köstuðum fyrir bleikjuna þar. Þetta frábæra sjóbleikjusvæði er 3ja stanga svæði og hefur veiðin þar síðastliðin ár verið mjög góð. Sjóbleikja veiðist nær eingöngu á svæðinu, þó svo að lax og urriði slæðist líka upp á vatnasvæðið. Svæðið nær frá Flókadalsvatni og fram að afréttargirðingu, en umhverfi hennar þykir friðsælt og er áin nokkuð vatnsmikil. Kvóti er 8 bleikjur á vakt á hverja stöng, en urriði er fyrir utan kvótann. Mesta veiði á öllu vatnasvæðinu var 2004 en þá veiddust 2.874 bleikjur. Síðastliðin ár hefur veiðin verið ágæt á þær 3 stangir sem veiða í efri ánni og hefur meðalveiðin verið í kringum 550 bleikjur á því svæði. Gunnar Bender gunnarbender@gmail.com Mikið af bleikju í Flókadalsá í Fljótum María Gunnarsdóttir með flottar bleikjur úr Efri-Flókadalsá. Mynd / G.Bender Fallegt er í Flókadalnum við Flókadalsvatnið. Mynd / María Gunnarsdóttir „Við byrjuðum daginn á Ármótabreiðu og þar landaði ég strax fiskum, einn 64 sentímetra og annar minni,“ sagði Benjamín Þorri Bergsson. Hann var að veiða í Eyjafjarðará fyrr í sumar en veiðin hefur verið góð þar og veiðimenn verið að fá flottar bleikjur og góða sjóbirtinga líka og Benjamín heldur áfram: „Síðan færðum við okkur á stað sem heitir Tjaldbakkar en þar eru nokkrir hyljir sem geyma oft mikið af stórri bleikju og skömmu seinna missti ég vænan fisk en var ekkert að svekkja mig á því. Ég var staðráðinn í að landa fiski þarna og ekki leið á löngu áður en ég setti í og landaði stærstu bleikju sem ég hef náð. Þetta var 69 sentímetra hængur sem vó 7,5 pund og tók Krókinn númer 14. Þegar líða fór á daginn færðum við okkur neðst á svæðið en félagar mínir áttu enn eftir að landa fiski þennan dag en strax í öðru kasti niðri á Teljarabreiðu tók flott bleikja „Phesent tail“ hjá Ívari. Við Eyþór fengum líka tvær flottar bleikjur og enduðum við fyrri vaktina með sex fiska á land en aðeins einn slapp. Seinni vaktin beið okkur svo og það þurfti ekki að spyrja að því að hann var á hjá Ívari eftir örfáar mínútur. Á land kom flott 60 sentímetra hrygna sem var sleppt að myndatöku lokinni. Við settum í og lönduðum hátt í 10 fiskum neðst á svæðinu enda mikið af fiski á þessum flotta stað sem er kallaður Teljarastrengur. Þegar vaktin var að verða hálfnuð færðum við okkur aftur upp á Tjaldbakka og þar landaði Eyþór þriðju stórbleikju dagsins en hún vó 7 pund og mældist 66 cm. Við kláruðum svo þennan flotta og ævintýralega dag á þessu æðislega svæði niður í Teljarastreng. Lokatölur voru eitthvað í kringum 20 fiskar á land,“ sagði Benjamín enn fremur. Góð veiði í Eyjafjarðará Flott bleikja komin á land í Eyjafjarðará. Strekktar línur í Hauku Fátt gleður veiðimenn meira en heyra hvína í veiðihjólinu og finna línuna strekkjast. Meðlimir veiðiklúbbsins „Strekktar línur“ eru þar engin undantekning en klúbbinn skipa 10 konur sem hafa mismikla veiðireynslu en eiga veiðiáhugann sameiginlegan. Hópurinn var við veiðar í Haukadalsá í Dölum á dögunum en „Hauka“ er af mörgum talin ein fallegasta veiðiá landsins. Fjölbreytni árinnar dregur margan veiðimanninn að en á tiltölulega stuttu svæði má finna allt frá lygnum hylnum til stórgrýttra breiða. Það eru engar fréttir fyrir veiðimenn að veiðisumarið í ár hefur verið með lélegra móti, sérstaklega framan af. Það gladdi því veiðikonur í Strekktum línum að vikuna fyrir veiðiferðina rigndi töluvert og áin því mun vatnsmeiri en hún hafði verið og skilyrði því nokkuð góð miðað við hvað verið hafði framan af. Nægur fiskur var í ánni og lá hann víða, sérstaklega í Neðri­Brúarstreng og Steinboga en einnig sást nokkuð af fiski í Kvörninni, Lalla og Blóta, svo nokkrir veiðistaðir séu nefndir. Það reyndist hins vegar þrautin þyngri að fá hann til að taka. Þó komu nokkrir laxar á land. Tveir tóku í Blóta, einn í Kvörninni og einn í Neðri­Brúarstreng. Fimm til viðbótar tóku en tókst ekki að landa og voru þeir auðvitað miklu stærri en þeir sem komu á land! Þeir sem á land komu voru ágætir fiskar, á bilinu 58–64 sentímetrar og tóku Sunray, Svarta Frances, Rauða Frances og Green Braham. Þrátt fyrir að veiðin hefði mátt vera meiri var hópurinn sammála um það að Hauka væri hin skemmtilegasta veiðiá og ekkert annað að gera en að koma aftur að ári og sækja þá stóru sem sluppu í þetta skiptið. Kristin Edwald með lax úr Hauka- dalsá í Dölum en hún var i hópi skemmtilegra veiðikvenna fyrir skömmu. Aldrei veiðst fleiri hnúðlaxar Í sumar hafa aldrei veiðst fleiri hnúðlaxar í veiðiánum og á þetta við um allt landið sem þessi fiskur hefur veiðst, við erum að tala um næstum 100 hnúðlaxa og þetta er í ám hringinn í kringum landið. Það sem af er veiðitímanum hafa veiðst líka um 100 hnúðlaxar á nokkrum stöðum hérlendis, en fræðimenn telja flestir líkur á að hnúðlax, sem á uppruna sinn í Kyrrahafinu, hafi numið land á Íslandi. „Já, við fengum fiskinn á Flóðatanganum í Norðurá, neðst við ármótin,“ sagði Úlfar og hélt áfram: „Við fengum þennan og annan lax og tvo sjóbirtinga.Við urðum ekki varir við annan hnúðlaxinn, hinn laxinn var orginal. Hnúðlaxinn tók Rauða Franses,“ sagði Úlfar enn fremur. Þetta var fyrr í sumar sem Úlfar veiddi þennan og síðan hafa veiðst margir í mörgum veiðiám landsins. Einhverjir hafa eldað fiskinn og fundist hann ágætur til átu. Fyrir nokkrum árum veiddist hellingur af flundru en henni hefur fækkað verulega, þá tekur bara eitthvað annað við. Úlfar Reynisson með hnúðlaxinn úr Hvítá.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.