Bændablaðið - 12.09.2019, Qupperneq 20

Bændablaðið - 12.09.2019, Qupperneq 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 201920 Í dag eru um 20 milljónir öku­ tækja á götum heimsins sem ganga fyrir gasi. Þykir það gott innlegg í baráttunni við losun gróðurhúsalofttegunda, þar sem um leið er brennt gasi sem er mikilvirkara til skamms tíma í andrúmsloftinu en koltvísýringur. Á Íslandi hefur þó hægt miðað í nýtingu á þessum möguleika og aðeins 1.887 metan­ og metan­ tvinnbílar á götunum. Metan má framleiða með mismun andi aðferðum, t.d. úr lífrænum úrgangi, lífrænum efnum í landbúnaði og sjávarfangi og með framleiðslu á orkuplöntum. Fræðilega er hægt að framleiða metan og fleiri eldsneytistegundir á allan bílaflota landsmanna samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að beiðni Alþingis. Hægt að nýta margvíslegan úrgang í eldsneyti Metan (CH4) er efnasamband kolefnis og vetnis. Það myndast í náttúrunni við loftfirrt niðurbrot baktería á lífrænum efnum, svo sem fitu, próteini, kolvetnum, hemísellulósa o.fl. Hér undir fellur allur lífrænn úrgangur frá heimilum og fyrirtækjum, slátur-, fisk- og landbúnaðarúrgangur auk seyru úr holræsakerfum og mykju úr haughúsum. Einnig er pappír, pappi, garðúrgangur og timbur dæmi um lífrænt niðurbrjótanlegt efni. Metan verður einnig til við vinnslu jarðefnaeldsneytis og við meltingu jórturdýra. Við bruna metans myndast koldíoxíð og vatn og auk þess losnar hitaorka sem m.a. má nota sem eldsneyti eða fyrir iðnaðarframleiðslu. Miklir möguleikar í framleiðslu á innlendi metangasi Magn metans úr mykju og skít er háð þurrefnisinnihaldi sem að jafnaði er 10–20%, en allt að 30% í hænsnaskít. Framleiðsla á metani á hvert þurrefnistonn er á bilinu 400–600 Nm3 samkvæmt skýrslunni. Þessu til viðbótar er seyra úr holræsakerfum sveitarfélaga, sem gæti verið um 8 þúsund tonn af þurrefni á ári og gæti gefið 2–3 milljónir Nm3 á ári af metan. Auka má framleiðslu metans enn frekar með því að bæta vetni í gerjunartanka. Einnig er hægt að framleiða metan úr kolsýru og vetni og svo úr syngasi sem fæst með gösun. Slík framleiðsla mun óhjákvæmilega verða dýrari en núverandi framleiðsla, af því er segir í skýrslunni. Urðun sorps verður bönnuð Bent hefur verið á að bann verði lagt við urðun sorps í löndum ESB og þar með væntanlega líka í löndum innan EES frá 2030. Samt ætti að vera unnt að safna metani úr urðunarstöðvum í um 15–20 ár eftir að urðun lífrænna efna er hætt. Úrgangur verður áfram eins mikilvæg uppspretta lífræns eldsneytis og nú á dögum. Í skýrslu ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kemur fram að breyta þurfi um vinnslu þessa orkuhráefnis þannig að það nýtist sem best. Meðal vinnsluaðferða sem þá koma til greina er „gösun“ til eldsneytisframleiðslu eins og segir í skýrslunni. Þá er hráefnið í raun kolað með hita þannig að úr því myndast gas og tjara sem nýta má áfram í fjölbreytta eldsneytis- og efnaframleiðslu. Tvö íslensk fyrirtæki framleiða metan Í skýrslunni segir m.a. að metan verði til við niðurbrot lífrænna efna á urðunarstöðvum sorps. Tvö fyrirtæki framleiða metan úr lífrænum úrgangi, SORPA bs. og Norðurorka. Afkastageta haugs- og hreinsistöðvar SORPU er ekki að fullu nýtt en framleiðslugetan er nú um 3,5 milljónir Nm3 á ári af metani sem samsvarar um 4 milljónum lítra af bensíni á ári. Með því að nýta hauggas með bruna í bílvélum hvarfast CH4 í CO2 og H2O en við það er dregið stórlega úr losun gróðurhúsalofttegunda frá urðunarstöðvum. Á heimasíðu Sorpu kemur fram að notkun á gasi frá stöðinni á bifreiðar hafi sparað útblástur sem nemur um 410.000 tonnum af koltvísýringi frá árinu 2000. Víða hvatt til kaupa á gasknúnum ökutækjum Í sumum Evrópulöndum eins og í Belgíu eru yfirvöld farin að hvetja til kaupa á gasknúnum bifreiðum með niðurfellingu á þungaskatti og öðrum bifreiðagjöldum. Jafnvel þykja gasknúnir bílar mun vænlegri en rafknúnir í viðleitni við að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Ástæðan er einfaldlega sú að heildar kolefnisspor gasknúinna bifreiða er jafnvel talið mun minna en rafbíla eða bifreiða svo ekki sé talað um bifreiðar sem knúnar eru bensíni eða dísilolíu. Auk þess er orkan á rafbílana víða í Evrópu enn framleidd með kolum og olíu og rafbílarnir eru þess utan umtalsvert dýrari í framleiðslu en hefðbundnir bílar. Raforka framleidd víða um lönd að mestu með jarðefnaeldsneyti og kjarnorku Samkvæmt tölum Energy Guide í Brussel í Belgíu er grunnorkan sem notuð er í Belgíu að 95% hluta innflutt og að mestu olía og gas. Þar að auki er mikið flutt inn af föstu eldsneyti svo sem kolum og timbri, og síðan úraníum fyrir kjarnorkuver. Um 55% raforkunnar sem notuð er í Belgíu er framleidd í sjö kjarnorkuverum. Restin er framleidd að mestu með kolum, olíu og gasi, en endurnýjanleg orka er enn aðeins lítill hluti af raforkuframleiðslu landsins. Eitthvað af raforkunni er svo flutt inn frá nágrannaríkjunum, Frakklandi, Þýskalandi og Sviss. Þetta er ekki ósvipað því sem þekkist víðar í Evrópu og Bandaríkjunum. Stöðugt er þó verið að bæta við vindmyllum til raforkuframleiðslu, en farið er að bera á óþoli fyrir vindmyllum af hálfu umhverfisverndarsinna vegna sjónmengunar og fugladauða sem þær eru sagðar valda. Langt í land að opinber markmið náist Stefnt er að því að Ísland verði kolefnishlutlaust árið 2040. Það vekur því furðu hvað lítið virðist vera gert til að nýta þá möguleika sem fyrir hendi eru í dag, aðra en að einblína á rafbílavæðingu. Ljóst er að rafbílavæðing ein og sér mun ekki leysa þetta mál, en vitað er að Íslendingar eiga aðra mjög áhrifaríka möguleika eins og að nýta innlent metangas. Samkvæmt markmiðum ríkis- stjórnarinnar er áhersla á aukinn hlut endurnýjanlegra orkugjafa á kostnað jarðefnaeldsneytis. Þar er gert ráð fyrir að árið 2020, eða strax á næsta ári, skuli hlutdeild þeirra í samgöngum vera 10%. Útilokað er að það markmið muni nást, en samt er gert ráð fyrir að þetta hlutfall eigi að vera komið í 40% árið 2040. Samkvæmt tilskipun ESB (RED II, Renewable energy directive 2018/2001/EU), þarf endurnýjanlegt eldsneyti árið 2020 að hafa aukist í 10% af heildarorkunotkun í samgöngum á landi og í 14% árið 2030. Lífeldsneyti skal árið 2030 að lágmarki vera 3,5% af heildarorku- notkun í samgöngum. Þak er þó sett á lífeldsneyti sem framleitt er úr sláturúrgangi eða notaðri steikingarolíu og má það að hámarki vera 3,4% af heildarorkunotkun í samgöngum á landi. Að auki er hámark sett á eldsneyti sem er framleitt úr fóðurplöntum. Það má ekki vera meira en 1% umfram gildi ársins 2020 en þó ekki hærra en 7% af heildarorkunotkun í samgöngum á landi. Í lögunum fær eldsneyti unnið úr lífrænum úrgangi tvöfalt vægi í útreikningi á við annað eldsneyti, eins og metan unnið úr sorpi og lífdísill unninn úr sláturúrgangi. Þetta er gert til að auka vægi eldsneytis sem ekki hefur áhrif á fæðuframleiðslu. Þá var einnig kveðið á um að frá ársbyrjun 2015 skuli 5% af heildarorkugildi eldsneytis í samgöngum á landi vera endurnýjanlegt eldsneyti. Ekki er hægt að sjá að þetta hafi staðist. Áhersla á rafbíla en metan- og vetnisvæðing situr á hakanum Vel hefur gengið að koma upp hleðslustöðvum fyrir rafbíla víða um land. Augljóst er þó að einblínt hefur verið um of á einhliða upp- FRÉTTASKÝRING Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Byltingin í samdrætti á losun gróðurhúsalofttegunda liggur fyrir fótum okkar með nýtingu gasknúinna ökutækja: Verulegur umhverfis- og þjóðhagslegur ávinningur hefur ekki verið nýttur – Metan- og vetnisvæðing hefur setið á hakanum og hægt hefur miðað í uppbyggingu innviða þeirra orkumiðla á Íslandi Bygging gas­ og jarðgerðar­ stöðvarinnar í Álfsnesi er næsta stóra skrefið í umhverfismálum á höfuðborgarsvæðinu. Hún er í samræmi við stefnu sem sveitarfélögin hafa mótað í sameiginlegri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2009–2020. Á hún að taka til starfa á árinu 2020. Samkvæmt kostnaðaráætlun átti stöðin að kosta 3.610 milljónir króna. Á stjórnarfundi SORPU bs. 2. september sl. var samþykkt tillaga framkvæmdastjóra um breytingar á fjárfestingaáætlun SORPU 2019–2023 vegna viðbótarkostnaðar sem komið hefur fram við tvö verkefni sem nú er unnið að á vegum samlagsins. Annars vegar er um að ræða 17,7% viðbótarkostnað við gas- og jarðgerðarstöð SORPU sem nú er áætlað að kosti 4.247 milljónir. Hins vegar er 719 m.kr. kostnaður vegna tækjabúnaðar í stækkaða móttökustöð SORPU í Gufunesi. Byggt á tækni Aikan Solum í Danmörku Endanlegt byggingaleyfi var gefið út af Reykjavíkurborg þann 9. október 2018 og var hafist handa við framkvæmdir samdægurs. Vinnslutækni er byggð á einkaleyfi frá Aikan Solum AS í Danmörku en stöðin er teiknuð af Batteríið Arkitektar og er verkfræðistofan Mannvit tæknilegur ráðgjafi. Stærð hússins er 12.800 m2 og mun stöðin anna allt að 35.000 tonnum af lífrænum heimilisúrgangi. Um framkvæmdirnar sér Ístak hf. sem var lægstbjóðandi í verkið en framkvæmdaeftirlit er í höndum verkfræðistofunnar Verkís sem átti lægsta boð í þann verkþátt. Eftir að gas- og jarðgerðarstöðin hefur starfsemi verður allur úrgangur sem safnað er frá heimilum á samlagssvæði SORPU unninn í stöðinni. Lífrænu efnin verða nýtt til gas- og jarðgerðar, en málmar og önnur ólífræn efni verða flokkuð vélrænt til endurnýtingar. Framleiðir um 3 milljónir rúmmetra af gasi á ári Ársframleiðsla stöðvarinnar verður annars vegar um 3 milljónir Nm3 (Normal-rúmmetrar) af metangasi, sem hægt er að nýta sem eldsneyti á ökutæki, og hins vegar 10– 12.000 tonn af jarðvegsbæti, sem hentar vel til landgræðslu. Þegar gas- og jarðgerðarstöðin verður komin í gagnið munu yfir 95% heimilisúrgangs á höfuðborgarsvæðinu fara til endurnýtingar. Rétt dugar á núverandi metanbílaflota Einn rúmmetri af metangasi vegur um 554 grömm, þannig að 3 milljónir rúmmetra vega því um 1.662 .000 kg (1.662 tonn). Ef það fara um 25 kg á hvern meðalfólksbíl dygði þetta í tankfyllingu á 66.480 bíla. Miðað við ca 35 áfyllingar á ári, dygði gasið frá stöðinni á um 1.900 fólksbíla. eða svona nokkurn veginn á alla þá metan- og metan- tvinnbíla sem eru á götunum á Íslandi í dag. Ef fara ætti í alvöru metanvæðingu bílaflotans er alveg ljóst að spýta þarf hressilega í lófana í gasframleiðslunni. Ný gas- og jarðgerðarstöð í smíðum Ný gas- og jarðgerðarstöð í Álfsnesi á að geta framleitt um 3 milljónir rúmmetra af gasi á ári sem ætti að duga á um 1.900 bíla. Mynd / SORPA Gasknúnir bílar hafa m.a. þá kosti að þeir menga lítið og eyða skaðlegu metani sem annars færi út í andrúmsloftið. Þá er álíka fljótlegt að dæla á þá eldsneyti og hefðbundna bensín- og dísilbíla.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.