Bændablaðið - 12.09.2019, Side 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 2019 21
byggingu hleðslustöðva varðandi
rafbílavæðingu en metan- og vetnis-
stöðvar hafa setið nær algjörlega á
hakanum.
Samkvæmt tölum Samgöngustofu
voru rafknúnar bifreiðar 11,99% af
nýskráðum bifreiðum fyrstu átta
mánuði ársins. Þegar litið er á slíkar
hlutfallstölur verður líka að hafa í
huga að samdráttur hefur verið í
heildarsölu bíla á þessu ári.
Blendingsbílar með rafmótora
sem framleiða sitt rafmagn sjálfir
með bensíni og hemlunarorku voru
7,89%. Tvinnbílar sem framleiða
rafmagn með dísilolíu voru
0,58% og metanbílar voru 0,97%.
Blendingsbílar sem tengjanlegir
eru við rafmagn voru þá 6,8%.
Hins vegar voru hreinir bensínbílar
41,72% og hreinir dísilbílar 30,02%.
Þótt sala rafmagns- og tvinnbíla hafi
tekið nokkurn kipp á þessu ári er
langt í land að yfirlýst markmið
náist.
Rafmagnsbílar og tvinnbílar
aðeins 4,97% af heildarfjölda
ökutækja
Í heildartölum frá Samgöngustofu
kemur fram að í byrjun september
voru skráð 314.571 ökutæki á
Íslandi. Þar af eru ökutæki sem
ganga eingöngu fyrir rafmagni
3.599, eða aðeins 1,14% af
heildarfjölda ökutækja í landinu.
Blendingsbílar eða „tvinnbílar“ sem
framleiða sitt rafmagn sjálfir með
bensíni eru 5.193, eða 1,65%. Meira
er af blendingsbílum sem hægt er
að tengja við rafmagn eða tengil-
tvinnbílum eins og þeir eru gjarnan
kallaðir. Þeir eru 6.832, eða 2,17%
af heildinni. Þá eru 22 ökutæki með
efanarafala sem ganga fyrir vetni eða
rúmlega 0,007%.
Ef tekin eru saman öll ökutæki
sem að hluta eða öllu leyti ganga
fyrir raforku, þá eru þau samtals
15.624, eða 4,97% af heildar
ökutækjaeign landsmanna.
Raf- og tvinnbílar 5,8% og
metanknúin ökutæki aðeins 0,5%
Þegar litið er á fjölda hreinna
metanknúinna ökutækja eru þau
401, eða 0,13%. Ökutæki sem bæði
ganga fyrir metani og dísilolíu eru
3 talsins. Ökutæki sem ganga bæði
fyrir metani og bensíni eru 1.483,
eða tæplega 0,5% af heildarflota
ökutækja í landinu.
Þá er einn blendingsbíll skráður
í tölum Samgöngustofu sem gengur
fyrir bæði metanóli og bensíni og
einn sem gengur eingöngu fyrir
hreinu etanóli.
Ef tekin eru öll ökutæki sem hægt
er að segja að gangi að einhverju
leyti fyrir orkugjöfum sem draga úr
losun koltvísýrings, eða rafmagni,
metangasi, etanóli og metanóli, þá
teljast þau vera 18.140, eða 5,8%.
Því þyrfti nærri að tvöfalda þá tölu
til að ná settu markmiði stjórnvalda
á næsta ári.
Gert ráð fyrir óbreyttri notkun
jarðefnaeldsneytis til 2050
Eldsneytisspá orkuspárnefndar
frá 2016 gerir ráð fyrir að sala
jarðefnaeldsneytis haldist að mestu
óbreytt til ársins 2050. Þó mun
innlend notkun dragast saman
og færast yfir á nýja orkugjafa,
einkum í samgöngum á landi og
síðar skipa og loks flugvéla. Sala
til millilandasamgangna mun aukast.
Samkvæmt þessari spá mun ekki
draga úr bruna á jarðefnaeldsneyti
sem hér er selt á næstu 30 árum.
Aukaafurð í landbúnaði
Hluti af því gasi sem notað er á vélar
er náttúrulegt metangas sem m.a.
fellur til sem aukaafurð í landbúnaði.
Þetta gas sem þannig er brennt ýmist
til að knýja ökutæki eða rafstöðvar
verður við brunann skaðminna fyrir
andrúmsloftið en gasið sjálft. Líka er
mikið notað af jarðgasi sem kallað
er náttúrulegt gas, en þá aðallega
við raforkuframleiðslu. Bændur í
Þýskalandi, Danmörku og víðar um
Evrópu framleiða margir metangas
sem verður til við gerjun á dýraskít
og öðrum lífmassa.
Aukaafurð í skólpi,
en ekki nýtt á Íslandi
Metangas verður líka til í
skólphreinsunar stöðvum sem komið
hefur verið upp víða um heim þó
ekki sé slíku að heilsa hér á landi.
Eru Íslendingar reyndar mjög
aftarlega á merinni hvað varðar
skólp hreinsun.
Doði ríkjandi í uppbyggingu
dælustöðva
Þykir mörgum afar sérkennilegt að
Íslendingar skuli ekki hafa lagt meiri
áherslu á byggingu dælustöðva fyrir
gas vítt og breitt um landið til að ýta
undir notkun gasknúinna ökutækja
í stað dísilbíla. Slík áhersla myndi
hafa margþætt áhrif til að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda og
bæta nýtingu á sorpi og lífmassa
sem annars er oftast urðaður.
Hentar vel á
hefðbundnar bílvélar
Náttúrugas sem notað er á bíla má
finna í ríkum mæli víða um heim.
Það samanstendur að mestu úr
metangasi, en er þó ekki alveg hreint
metan. Metangas sem framleitt er
úr lífmassa er enn hreinna. Þarna
er þó oftast um að ræða það sem
kallað er þjappað náttúrugas, eða
„Compressed Natural Gas“, sem
skammstafað er CNG.
Jarðgas er að mestu leyti metan
(um 60–90% rúmmáls) sem er
hreinsað fyrir notkun. Efni eins og
etan (C2H6), própan (C2H8) og bútan
(C4H10) eru að mestu skilin frá og
brennisteinsvetni (H2S) er fjarlægt.
Hreinsað jarðgas, sem er dreift um
gasdreifikerfi Evrópu, inniheldur
meira en 90% metan.
Mótorarnir sem brenna gasinu eru
oft og tíðum að grunni til dísilvélar
(eða bensínmótorar) sem breytt er
til að brenna gasi. Þá hefur notkun á
gasi þann kost líka að álíka fljótlegt
er að fylla tanka bifreiða af gasi og
annars væri við að dæla á bensíni eða
olíu. Þannig þarf ekki að kasta fyrir
róða verðmætri þekkingu, búnaði og
tækjum sem þegar eru fyrir hendi.
Í venjulegum millistærðarfólksbíl
eru oft um 20 kg af metangasi
geymd í gasflöskum undir gólfi
bifreiðar. Gasið er geymt undir
þrýstingi sem er um 200 bör. Þetta
gasmagn samsvarar orku sem
fæst úr um 30 lítrum af bensíni.
Bifreiðaframleiðendur hafa þó verið
í hönnun bíla að reyna að koma fyrir
fleiri gaskútum þannig að drægni
bílanna verði meiri.
Gríðarleg minnkun á
útblæstri með notkun á gasi
Með því að nota gas á ökutæki er
hægt að draga verulega úr útblæstri
á koltvísýringi (CO2). Þykir mörgum
bílaframleiðendum að gasknúnir
bílar séu mun vænlegri í framleiðslu
til að draga úr útblæstri en rafbílar.
Sem dæmi um ávinninginn af
notkun á gasi í stað dísils, þá minnkar
það sótagnaútblástur um 77%. Það
minnkar útblástur á koltvísýringi
CO2 um 11%. Það dregur stórlega
úr losun á köfnunarefnisoxíði, NOx,
eða um 90%.
Þá ganga vélarnar þýðar og með
minni titringi og ættu því að endast
því lengur.
Þjóðhagslega hagkvæmt
Í Evrópu er metangas oft um 35%
ódýrara en dísilolía og um 75%
ódýrara en bensín, samkvæmt tölum
Energy Guide í Brussel. Hagræðið af
aukinni notkun gasknúinna ökutækja
ætti því að vera öllum mönnum
augljóst.
Á Íslandi er hægt að framleiða
gasið og draga þannig stórlega úr
innkaupum og gjaldeyrisútflæði.
Þjóðhagslegt hagræði ætti því líka
að vera augljóst hverjum þeim
sem nennir að setja sig inn í þessi
fræði. Má því í raun líkja því við
hreina heimsku að setja ekki kraft í
gasvæðingu á ökutækjaflota Íslend-
inga. Meira að segja er hægt að
breyta flestum þeim bílvélum sem
eru í notkun á Íslandi til brennslu
á gasi, en það getur þó verið
nokkuð kostnaðarsamt. Einnig
hafa gasknúnu bifreiðarnar þann
kost í viðhaldi að allir innviðir til
viðgerðar á slíkum bílum er þegar
fyrir hendi.
Belgar leggja áherslu á
gasvæðingu ökutækja
Sem dæmi um notkunina, þá eru
um 16.000 slíkir bílar í Belgíu og
eru gasdælustöðvar komnar mjög
víða. Gasið sem notað er er yfirleitt
undir þrýstingi upp á 200 til 300
bör. Oftast er um að ræða metangas,
en líka getur verið um að ræða
bensíngas (Liquid Petroleum Gas -
LPG) sem er blanda af propan- og
butangasi sem er undir um 5 til 7
bara þrýstingi.
Síðan er líka um að ræða að notað
sé fljótandi metangas (Liquefied
Natural Gas – LNG). Þar er gasið
sett í fljótandi form með kælingu
niður í 162° frost. Með slíkri kælingu
er hægt að minnka umfangið á
gasinu 600 falt og verður drægni
ökutækisins þá 3,5 sinnum meiri
með sömu stærð af tönkum en ef
notað er venjulegt metangas. Hafa
bílaframleiðendur því helst verið að
þróa þessa LNG tækni til notkunar á
flutningabíla sem aka þurfa á mjög
löngum leiðum, t.d. milli Norður- og
Suður- Evrópu. Kældu LNG gasi er
svo auðvelt að breyta í CNG gas á
dælustöðvum ef þörf er á.
Hættuminni í árekstri
en bensín- og dísilbílar
Metangas hefur þann kost að vera
léttara en andrúmsloftið og er því
ekki bannað að nota á ökutæki t.d.
í jarðgöngum eða bílakjöllurum.
Það gufar upp ef það sleppur út
úr tönkum bílanna. Þannig er það
í raun hættuminna við árekstur en
t.d. bensín eða olía sem flætt getur
um götuna.
Fjöldi bílaframleiðenda er farinn
að bjóða upp á gasknúin ökutæki
í sínum framleiðslulínum. Hægt
hefur þó miðað á Íslandi við að
innleiða slíka tækni. Stafar það
einkum af því er virðist ótrúlegs
áhugaleysis í stjórnkerfinu við að
knýja á um uppbyggingu innviða
fyrir gasdreifingu.
Þegar er hægt að panta t.d.
sendibíla frá IVECO hér á landi
sem komast um eða yfir 1.000 km á
tankfyllingu af gasi. Það er talsvert
meiri drægni en boðið er upp á á
sambærilegum dísilbíl. Algengt
er að fólksbílar komist um 300
til 800 km á einni tankfyllingu.
Gasstöðvar þyrftu því ekki að vera
nærri eins víða og bensínstöðvar
eru í dag.
Margar tegundir og gerðir í boði
Hér má sjá örfáar af þeim fjölda
tegunda og gerða ökutækja sem eru
á boðstólum í Evrópu og brenna gasi:
Audi - A4 Avant G-Tron
Volvo S80 Bi-Fuel CNG
Fiat - Ducato Natural Power
Škoda - Octavia Combi G-TEC
Renault Kangoo 1,6 CNG
Volkswagen - Caddy Bluemotion
Volkswagen - Transporter T6
Ssangyong – XLV
Toyota - RAV4
Toyota - C-HR
Iveco - Daily CNG
Iveco/Irisbus CityClass CNG
Mercedes-Benz Sprinter 316
NGT
Opel - Combo Tour 1.4 Turbo
CNG
MAN NÜ313 CNG
Volvo FL
Scania G-Series CNG
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Tersla hefur verið tískumerki í rafbílaheiminum undanfarin ár. Á Íslandi
hefur nær öll orka og áhersla stjórnvalda varðandi orkuskipti í umferðinni
verið lögð á rafbíla. Metanknúnir bílar hafa verið fjarri góðu gamni þótt
þjóðhagslegur og umhverfislegur ávinningur af nýtingu slíkra ökutækja
geti mögulega verið mun meiri en af notkun rafbíla.
Toyota Camry metan-tvinnbíll.