Bændablaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 2019 21 byggingu hleðslustöðva varðandi rafbílavæðingu en metan- og vetnis- stöðvar hafa setið nær algjörlega á hakanum. Samkvæmt tölum Samgöngustofu voru rafknúnar bifreiðar 11,99% af nýskráðum bifreiðum fyrstu átta mánuði ársins. Þegar litið er á slíkar hlutfallstölur verður líka að hafa í huga að samdráttur hefur verið í heildarsölu bíla á þessu ári. Blendingsbílar með rafmótora sem framleiða sitt rafmagn sjálfir með bensíni og hemlunarorku voru 7,89%. Tvinnbílar sem framleiða rafmagn með dísilolíu voru 0,58% og metanbílar voru 0,97%. Blendingsbílar sem tengjanlegir eru við rafmagn voru þá 6,8%. Hins vegar voru hreinir bensínbílar 41,72% og hreinir dísilbílar 30,02%. Þótt sala rafmagns- og tvinnbíla hafi tekið nokkurn kipp á þessu ári er langt í land að yfirlýst markmið náist. Rafmagnsbílar og tvinnbílar aðeins 4,97% af heildarfjölda ökutækja Í heildartölum frá Samgöngustofu kemur fram að í byrjun september voru skráð 314.571 ökutæki á Íslandi. Þar af eru ökutæki sem ganga eingöngu fyrir rafmagni 3.599, eða aðeins 1,14% af heildarfjölda ökutækja í landinu. Blendingsbílar eða „tvinnbílar“ sem framleiða sitt rafmagn sjálfir með bensíni eru 5.193, eða 1,65%. Meira er af blendingsbílum sem hægt er að tengja við rafmagn eða tengil- tvinnbílum eins og þeir eru gjarnan kallaðir. Þeir eru 6.832, eða 2,17% af heildinni. Þá eru 22 ökutæki með efanarafala sem ganga fyrir vetni eða rúmlega 0,007%. Ef tekin eru saman öll ökutæki sem að hluta eða öllu leyti ganga fyrir raforku, þá eru þau samtals 15.624, eða 4,97% af heildar ökutækjaeign landsmanna. Raf- og tvinnbílar 5,8% og metanknúin ökutæki aðeins 0,5% Þegar litið er á fjölda hreinna metanknúinna ökutækja eru þau 401, eða 0,13%. Ökutæki sem bæði ganga fyrir metani og dísilolíu eru 3 talsins. Ökutæki sem ganga bæði fyrir metani og bensíni eru 1.483, eða tæplega 0,5% af heildarflota ökutækja í landinu. Þá er einn blendingsbíll skráður í tölum Samgöngustofu sem gengur fyrir bæði metanóli og bensíni og einn sem gengur eingöngu fyrir hreinu etanóli. Ef tekin eru öll ökutæki sem hægt er að segja að gangi að einhverju leyti fyrir orkugjöfum sem draga úr losun koltvísýrings, eða rafmagni, metangasi, etanóli og metanóli, þá teljast þau vera 18.140, eða 5,8%. Því þyrfti nærri að tvöfalda þá tölu til að ná settu markmiði stjórnvalda á næsta ári. Gert ráð fyrir óbreyttri notkun jarðefnaeldsneytis til 2050 Eldsneytisspá orkuspárnefndar frá 2016 gerir ráð fyrir að sala jarðefnaeldsneytis haldist að mestu óbreytt til ársins 2050. Þó mun innlend notkun dragast saman og færast yfir á nýja orkugjafa, einkum í samgöngum á landi og síðar skipa og loks flugvéla. Sala til millilandasamgangna mun aukast. Samkvæmt þessari spá mun ekki draga úr bruna á jarðefnaeldsneyti sem hér er selt á næstu 30 árum. Aukaafurð í landbúnaði Hluti af því gasi sem notað er á vélar er náttúrulegt metangas sem m.a. fellur til sem aukaafurð í landbúnaði. Þetta gas sem þannig er brennt ýmist til að knýja ökutæki eða rafstöðvar verður við brunann skaðminna fyrir andrúmsloftið en gasið sjálft. Líka er mikið notað af jarðgasi sem kallað er náttúrulegt gas, en þá aðallega við raforkuframleiðslu. Bændur í Þýskalandi, Danmörku og víðar um Evrópu framleiða margir metangas sem verður til við gerjun á dýraskít og öðrum lífmassa. Aukaafurð í skólpi, en ekki nýtt á Íslandi Metangas verður líka til í skólphreinsunar stöðvum sem komið hefur verið upp víða um heim þó ekki sé slíku að heilsa hér á landi. Eru Íslendingar reyndar mjög aftarlega á merinni hvað varðar skólp hreinsun. Doði ríkjandi í uppbyggingu dælustöðva Þykir mörgum afar sérkennilegt að Íslendingar skuli ekki hafa lagt meiri áherslu á byggingu dælustöðva fyrir gas vítt og breitt um landið til að ýta undir notkun gasknúinna ökutækja í stað dísilbíla. Slík áhersla myndi hafa margþætt áhrif til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og bæta nýtingu á sorpi og lífmassa sem annars er oftast urðaður. Hentar vel á hefðbundnar bílvélar Náttúrugas sem notað er á bíla má finna í ríkum mæli víða um heim. Það samanstendur að mestu úr metangasi, en er þó ekki alveg hreint metan. Metangas sem framleitt er úr lífmassa er enn hreinna. Þarna er þó oftast um að ræða það sem kallað er þjappað náttúrugas, eða „Compressed Natural Gas“, sem skammstafað er CNG. Jarðgas er að mestu leyti metan (um 60–90% rúmmáls) sem er hreinsað fyrir notkun. Efni eins og etan (C2H6), própan (C2H8) og bútan (C4H10) eru að mestu skilin frá og brennisteinsvetni (H2S) er fjarlægt. Hreinsað jarðgas, sem er dreift um gasdreifikerfi Evrópu, inniheldur meira en 90% metan. Mótorarnir sem brenna gasinu eru oft og tíðum að grunni til dísilvélar (eða bensínmótorar) sem breytt er til að brenna gasi. Þá hefur notkun á gasi þann kost líka að álíka fljótlegt er að fylla tanka bifreiða af gasi og annars væri við að dæla á bensíni eða olíu. Þannig þarf ekki að kasta fyrir róða verðmætri þekkingu, búnaði og tækjum sem þegar eru fyrir hendi. Í venjulegum millistærðarfólksbíl eru oft um 20 kg af metangasi geymd í gasflöskum undir gólfi bifreiðar. Gasið er geymt undir þrýstingi sem er um 200 bör. Þetta gasmagn samsvarar orku sem fæst úr um 30 lítrum af bensíni. Bifreiðaframleiðendur hafa þó verið í hönnun bíla að reyna að koma fyrir fleiri gaskútum þannig að drægni bílanna verði meiri. Gríðarleg minnkun á útblæstri með notkun á gasi Með því að nota gas á ökutæki er hægt að draga verulega úr útblæstri á koltvísýringi (CO2). Þykir mörgum bílaframleiðendum að gasknúnir bílar séu mun vænlegri í framleiðslu til að draga úr útblæstri en rafbílar. Sem dæmi um ávinninginn af notkun á gasi í stað dísils, þá minnkar það sótagnaútblástur um 77%. Það minnkar útblástur á koltvísýringi CO2 um 11%. Það dregur stórlega úr losun á köfnunarefnisoxíði, NOx, eða um 90%. Þá ganga vélarnar þýðar og með minni titringi og ættu því að endast því lengur. Þjóðhagslega hagkvæmt Í Evrópu er metangas oft um 35% ódýrara en dísilolía og um 75% ódýrara en bensín, samkvæmt tölum Energy Guide í Brussel. Hagræðið af aukinni notkun gasknúinna ökutækja ætti því að vera öllum mönnum augljóst. Á Íslandi er hægt að framleiða gasið og draga þannig stórlega úr innkaupum og gjaldeyrisútflæði. Þjóðhagslegt hagræði ætti því líka að vera augljóst hverjum þeim sem nennir að setja sig inn í þessi fræði. Má því í raun líkja því við hreina heimsku að setja ekki kraft í gasvæðingu á ökutækjaflota Íslend- inga. Meira að segja er hægt að breyta flestum þeim bílvélum sem eru í notkun á Íslandi til brennslu á gasi, en það getur þó verið nokkuð kostnaðarsamt. Einnig hafa gasknúnu bifreiðarnar þann kost í viðhaldi að allir innviðir til viðgerðar á slíkum bílum er þegar fyrir hendi. Belgar leggja áherslu á gasvæðingu ökutækja Sem dæmi um notkunina, þá eru um 16.000 slíkir bílar í Belgíu og eru gasdælustöðvar komnar mjög víða. Gasið sem notað er er yfirleitt undir þrýstingi upp á 200 til 300 bör. Oftast er um að ræða metangas, en líka getur verið um að ræða bensíngas (Liquid Petroleum Gas - LPG) sem er blanda af propan- og butangasi sem er undir um 5 til 7 bara þrýstingi. Síðan er líka um að ræða að notað sé fljótandi metangas (Liquefied Natural Gas – LNG). Þar er gasið sett í fljótandi form með kælingu niður í 162° frost. Með slíkri kælingu er hægt að minnka umfangið á gasinu 600 falt og verður drægni ökutækisins þá 3,5 sinnum meiri með sömu stærð af tönkum en ef notað er venjulegt metangas. Hafa bílaframleiðendur því helst verið að þróa þessa LNG tækni til notkunar á flutningabíla sem aka þurfa á mjög löngum leiðum, t.d. milli Norður- og Suður- Evrópu. Kældu LNG gasi er svo auðvelt að breyta í CNG gas á dælustöðvum ef þörf er á. Hættuminni í árekstri en bensín- og dísilbílar Metangas hefur þann kost að vera léttara en andrúmsloftið og er því ekki bannað að nota á ökutæki t.d. í jarðgöngum eða bílakjöllurum. Það gufar upp ef það sleppur út úr tönkum bílanna. Þannig er það í raun hættuminna við árekstur en t.d. bensín eða olía sem flætt getur um götuna. Fjöldi bílaframleiðenda er farinn að bjóða upp á gasknúin ökutæki í sínum framleiðslulínum. Hægt hefur þó miðað á Íslandi við að innleiða slíka tækni. Stafar það einkum af því er virðist ótrúlegs áhugaleysis í stjórnkerfinu við að knýja á um uppbyggingu innviða fyrir gasdreifingu. Þegar er hægt að panta t.d. sendibíla frá IVECO hér á landi sem komast um eða yfir 1.000 km á tankfyllingu af gasi. Það er talsvert meiri drægni en boðið er upp á á sambærilegum dísilbíl. Algengt er að fólksbílar komist um 300 til 800 km á einni tankfyllingu. Gasstöðvar þyrftu því ekki að vera nærri eins víða og bensínstöðvar eru í dag. Margar tegundir og gerðir í boði Hér má sjá örfáar af þeim fjölda tegunda og gerða ökutækja sem eru á boðstólum í Evrópu og brenna gasi: Audi - A4 Avant G-Tron Volvo S80 Bi-Fuel CNG Fiat - Ducato Natural Power Škoda - Octavia Combi G-TEC Renault Kangoo 1,6 CNG Volkswagen - Caddy Bluemotion Volkswagen - Transporter T6 Ssangyong – XLV Toyota - RAV4 Toyota - C-HR Iveco - Daily CNG Iveco/Irisbus CityClass CNG Mercedes-Benz Sprinter 316 NGT Opel - Combo Tour 1.4 Turbo CNG MAN NÜ313 CNG Volvo FL Scania G-Series CNG HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Tersla hefur verið tískumerki í rafbílaheiminum undanfarin ár. Á Íslandi hefur nær öll orka og áhersla stjórnvalda varðandi orkuskipti í umferðinni verið lögð á rafbíla. Metanknúnir bílar hafa verið fjarri góðu gamni þótt þjóðhagslegur og umhverfislegur ávinningur af nýtingu slíkra ökutækja geti mögulega verið mun meiri en af notkun rafbíla. Toyota Camry metan-tvinnbíll.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.