Bændablaðið - 12.09.2019, Qupperneq 23

Bændablaðið - 12.09.2019, Qupperneq 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 2019 23 Það er gott að vera í sveitinni! Við höfum áralanga reynslu af raflagnahönnun og rafverktöku í landbúnaðarbyggingum. Meðal þeirrar þjónustu sem Ljósgjafinn ehf. býður uppá er: • Ráðgjöf varðandi raflagnir • Hönnun raflagna • Kostnaðaráætlanir • Rafverktaka • Lokaúttekt á raforkuvirkjum • Viðhaldsþjónusta Glerárgötu 32, 600 Akureyri | sími 460 7788 | ljosgjafinn@ljosgjafinn.is | www.ljosgjafinn.is – Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN HUSQVARNA FS 400 LV Sögunardýpt 16,5 sm HUSQVARNA K 770 Sögunardýpt 12,5 sm HUSQVARNA K 2500 Sögunardýpt 14,5 sm HUSQVARNA DM 230 HUSQVARNA K 3600 MK II Sögunardýpt 27 sm HUSQVARNA Steinsagarblöð og kjarnaborar Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 201 Kóp. s. 550 3000 er með til sölu jörðina Gröf landnúmer 142160 í Bitrufirði Strandabyggð. Jörðin Gröf er í Krossárdal, Bitrufirði í Strandabyggð mitt á milli Staðarskála og Hólmavíkur. Jörðin er um 1.069 hektarar þar af um 30 hektarar ræktuð tún. Möguleiki er á meiri ræktun. Einnig hafa verið nýtt tún á næstu bæjum. Gott beitiland er í Gröf og rúmt í högum. Beingreiðsluréttur í sauðfé er 374,5 ærgildi. Þriggja fasa rafmagn var tengt í töflu 2018. Búið að fjarlægja alla rafmagnsstaura og rafmagn lagt í jarðstreng. Hægt er að virkja Grafargilið. Ljósleiðari lagður og tengdur 2018. Leigður er út smáskiki undir símahús. Í Gröf er í dag stunduð sauðfjárrækt með 310 vetrarfóðraðar ær. Beingreiðsluréttur er 374,5 ærgildi. Bústofn og vélar geta fylgt í sölu. Listi yfir fasteignir, hlunnindi, bústofn og vélar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar. Óvenju snyrtileg eign sem vert er að skoða. Bændablaðið Auglýsingar 56-30-300 Verið að skoða virkni ýmissa tegunda við Ísland „Okkar rannsóknir miðast við að skoða þær tegundir sem hér er að finna og þörunga sem er auðveldara að nálgast en þennan Asparagopsis taxiformis. Hér erum við hins vegar með úrval þörunga sem vaxa í miklu magni og erum að kanna þá betur.“ Rannsóknirnar á vegum Matís hljóta að að vera fagnaðarefni fyrir vísindasamfélagið og landbúnað á Íslandi. Samt eru til fræðimenn hér á landi sem hafa haft uppi efasemdir um áhrif þangs á meltingu jórturdýra. Jafnvel hafa rannsóknarniðurstöður frá Ástralíu verið skilgreindar sem hálfgert kukl. Þar skorti rannsóknir við raunaðstæður og að menn væru þar komnir út á hálan ís. Mikil áhrif af íblöndun þörunga í fóður Í umfjöllun Bændablaðsins 2016 kom fram að De Nys prófessor sagði að ákveðið hafi verið að rannsaka metangasmyndun í sauðfé, sérstaklega vegna þess að þær tilraunir útheimtu ekki eins mikið af fóðri. Niðurstöðurnar fram til þessa hafi sýnt að líklega væri best að blanda þanginu saman við annað fóður til að ná árangri. Fréttastöð RNZ á Nýja- Sjálandi fjallaði á sínum tíma um rannsóknirnar í Ástralíu. Fyrirsögn fréttarinnar var „Er þang svarið við metanvandamáli Nýja-Sjálands?“ Eins og flestir vita er landbúnaður gríðarlega mikilvægur þar í landi og eru Nýsjálendingar ekki síður þekktir fyrir framleiðslu á kindakjöti en Ástralir. Sömuleiðis er nautgriparækt þar mikil. RNZ hafði eftir Kanadamanninum Rob Kinley hjá CSIRO að niðurstöðurnar hafi komið mönnum í opna skjöldu. Áhyggjur af efninu bromoformi í þangi Sagði Kinley að af Asparagopsis taxiformis þanginu þurfi mjög lítið magn til að ná árangri. 1,5% til 2% hlutfall í fóðri dugi auðveldlega til að ná minnkun á metani um 80%. Andy Reisinger hjá Gróðurhúsa- rannsóknar mið stöðinni (Greenhouse Gas Research Centre) sagði að þrátt fyrir þessar jákvæðu niðurstöður hefðu menn samt ákveðnar áhyggjur af því að nota þang í fóður. Ástæðan er sú að þeir mynda efnið bromoform sem talið er krabbameinsvaldandi. Hann segir að nýsjálenskir vísinda- menn hafi þó verið að vinna með sömu sjávarþangstegundir en ekkert benti enn til að þær stuðli að heilsufars vandamáli hjá skepnunum. Ásta Heiðrún segir að ekki hafi tekist að einangra þau efni úr þanginu sem valdi minnkun á losun metans í meltingarvegi dýra. Leitt hefur verið líkum að því að bromoform hefði þar áhrif en það geti verið hættulegt dýrum. Ekki liggi þó fyrir nein vissa um hvort virknin sé af völdum bromoforms eða í samspili þess og annarra efna. „Í okkar rannsóknum höfum við ekki séð sömu virkni og fékkst í Ástralíu. Mögulegt er að hér sé um annað efnasamspil að ræða sem veldur þessum áhrifum. Einnig gætu önnur efni en bromoform verið að valda minnkun á losun metans, en það er verið að skoða það nánar,“ sagði Ásta. Þarabeit vel þekkt á Íslandi Á Íslandi hefur þekkst um aldir að beita fé þar sem land liggur að sjó tímabundið á þara. Vitað er að vegna efnainnihalds þarans þá þolir sauðfé hér á landi ekki nema takmarkaða fjörubeit. Sauðfé var líka oft á árum áður fóðrað á síld sem mörgum Íslendingum fannst vart mannamatur. Síðar fóru menn svo að bæta fiskimjöli í fóður hjá sauðfé og kúm og öðrum skepnum. Á Orkneyjum hefur sauðféð aftur á móti aðlagast sérstaklega fjörubeit. Þrífst það hins vegar mjög illa á grasi einu saman að því er fram kom í viðtali við Sinclair Scott í Bændablaðinu 1. september 2014. Þá er einnig þekkt hér á landi og víðar að nota sjávarþang og þara í áburð á tún og jafnvel rotnandi síld. Á Cornwall í Bretlandi þekktist t.d. að blanda þara (Ascophyllum) við sand og láta hann rotna áður en hann var notaður sem áburður. Sömu sögu er að segja af aðferðum skoskra bænda. Franskir bændur á Brittaníuskaga hafa lengi notað þara sem safnað var í bingi til að láta það rotna. Síðan var það tekið og dreift á tún upp frá ströndinni. Líklegt er að næringarefnin berist þá í jarðveg og gras, en ekki er vitað til þess hvort áhrif á metangaslosun dýra sem éta það gras hafi verið rannsökuð. Unnið að rannsóknum hjá Matís.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.