Bændablaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 2019 25
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir fagstjóra búfjárræktar
og þjónustusviðs. Um er að ræða stjórnendastarf.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
√ Faglegur leiðtogi og fyrirliði teymis sem vinnur að ráðgjafar -
starfsemi ásamt ýmsum öðrum verkefnum í landbúnaði.
√ Fagsviðið hefur meðal annars umsjón með ræktunarstarfi
búfjárkynja, almennri þjónustu og ráðgjöf til landbúnaðar.
√ Fagstjóri ber lykilábyrgð á stýringu mannauðs og gætir þess
að ráð gjafar á sviðinu nýtist sem best fyrir heildina.
√ Fagstjóri ber ábyrgð að innan teymisins séu verkefni og
ráðgjöf markviss.
Menntunar- og hæfnikröfur:
√ Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun
á sviði bú vís inda, raungreina eða náttúruvísinda æskileg.
√ Stjórnunarreynsla mjög æskileg.
√ Þekking á verkefnastjórnun er kostur.
√ Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
√ Góðir samskiptahæfileikar.
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á landbúnaði í
sínum víðasta skilningi og hefur metnað og frumkvæði til að vinna
að ráðgjafa starfsemi RML.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu
bænda og sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er
dreifð um landið á 13 starfsstöðvum. Við bendum áhugasömum á
heimasíðu fyrirtækisins www.rml.is þar sem sótt er um starfið, en
þar er einnig hægt að kynna sér starfsemina enn frekar.
Umsóknarfrestur er til og með 25. september.
Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri
klk@rml.is og Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir verkefnastjóri geh@rml.is
STARF FAGSTJÓRA
BÚFJÁRRÆKTAR OG ÞJÓNUSTUSVIÐS
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði
Hafðu
samband
568 0100
www.stolpigamar.is
Gámurinn
er þarfaþing
Þurrgámar
Hitastýrðir gámar
Geymslugámar
Einangraðir gámar
Fleti og tankgámar
Gámar með hliðaropnun
Til leigu eða sölu: Gámahús og salernishús
Færanleg starfsmannaðstaða
Bos gámar og skemmur
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi
Sími 544-4656 | www.mhg.is
AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL
Kristján Ólafur Ólafsson, framkvæmdastjóri Moltu á Akureyri, við pappír sem nýttur er til moltugerðar. Myndir / MÞÞ
Akureyringar flokka
meirihluta sorps
Um 7.600 tonn af sorpi og öðrum
úrgangi féllu til frá heimilum á
Akureyri á liðnu ári. Stór hluti
er endurunninn, þar af fóru hátt
í tvö þúsund tonn af lífrænum
úrgangi í jarðgerðarstöð Moltu í
Eyjafjarðarsveit.
Samkvæmt tölum frá 2017 er
Ísland í fjórða sætinu yfir magn
úrgangs, um 656 kíló á hvern
íbúa að því er fram kom í fréttum
RÚV nýverið. Þarna er átt við
heildarmagn, þó að mestu leyti
frá heimilum, burtséð frá því hvað
verður um sorpið, hvort það er
urðað, endurunnið og þá hvernig.
Meðaltalið í Evrópusambandinu eru
486 kíló á hvern íbúa.
36% af úrgangi fara í urðun
Fram kemur í frétt á heimasíðu
Akureyrarbæjar að í fyrra féllu
til um 7.600 tonn af sorpi frá
heimilum á Akureyri. Það gera um
það bil 400 kíló á hvern íbúa. Þar
af fara um 2.800 tonn af úrgangi í
urðun í Stekkjarvík í námunda við
Blönduós, eða um 36%. Flest annað
er endurunnið á einn eða annan hátt.
Akureyringar hafa á undan
förnum árum náð mjög góðum
árangri í flokkun og endurvinnslu
á pappa, drykkjarumbúðum, plasti
og málmum. Þar að auki hafa um
80% heimila á Akureyri, í yfir tíu
ár, flokkað allan lífrænan úrgang
og skilað í Moltu, segir í frétt á
vefsíðunni. Einnig að nýjasta dæmið
sé græna trektin, en með henni geta
íbúar með einföldum hætti losað
sig við alla matarolíu og dýrafitu á
þægilegan hátt. /MÞÞ
Stór hluti alls úrgangs sem fellur til á Akureyri er endurunninn. Hátt í tvö
þúsund tonnum af lífrænum úrgangi var skilað frá akureyskum heimilum í
jarðgerðarstöð Moltu í Eyjafjarðarsveit.