Bændablaðið - 12.09.2019, Síða 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 2019 27
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
Hrunamannahreppur:
Um 23% íbúa erlendir
Samkvæmt upplýsingum frá
Jóni Valgeirssyni, sveitarstjóra
Hrunamannahrepps, eru 98 af
804 íbúum sveitarfélagsins með
pólskt ríkisfang en 23% af íbúum
er með erlent ríkisfang.
Næststærsti hópurinn kemur frá
Rúmeníu en þau eru um 45. „Það er
ljóst að þessi staða er komin til að
vera og við þurfum áfram að vinna
í að taka vel á móti þessu góða
fólki sem er okkur svo mikilvægt“,
segir Jón í Pésanum, fréttabréfi
Hrunamannahrepps. /MHH
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra:
Vonbrigði með tillögu um rekstur
almenningssamgangna
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á
Norður landi vestra hefur lýst
yfir vonbrigðum með tillögu
Vega gerðar innar um mögulegt
framtíðar rekstrar form almennings
samgangna.
Lagt var fram minnisblað frá
Vegagerðinni á fundi SSNV í
liðnum mánuði um málið sem
tekið hafði verið saman í kjölfar
fundar Landshlutasamtaka
sveitarfélaga og Vegagerðarinnar.
Í minnisblaðinu kemur fram að
eyða þurfi óvissu um rekstur
almenningssamgangna.
Vegagerðin metur það svo að
tvær leiðir séu færar í þessum
efnum. Annars vegar að Vegagerðin
taki við þjónustunni og hins vegar
að stofnað verði sameiginlegt
félag ríkis og landshlutasamtaka
þar sem ábyrgð á kostnaði dreifist
eftir eignarhlut. Í minnisblaðinu
er síðari tillagan útlistuð nánar og
lagt til eignarhlutfall, stofnframlag,
fjármögnun starfsmanna og
styrkframlag ríkis.
Almenningssamgöngur
á ábyrgð ríkisins
Stjórn SSNV lýsir í fundargerð sinni
yfir vonbrigðum með tillöguna og
ítrekar að almenningssamgöngur
séu verkefni á ábyrgð ríkisins
og eigi því að vera fjármagnaðar
að fullu af ríkinu. „Það að gera
landshlutasamtökin og þar með
sveitarfélögin í landinu fjárhagslega
ábyrg fyrir málaflokknum að stórum
hluta er ekki ásættanleg niðurstaða,“
segir þar ennfremur.
Stjórn SSNV áréttar hins vegar
mikilvægi þess að heimamenn komi
að rekstri almenningssamgangna
vegna staðbundinnar þekkingar á
þörf og leiðarvali. Stjórnin bendir
einnig á að hún hafi vilja til
áframhaldandi viðræðna svo farsæl
lausn finnist á málinu. /MÞÞ
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps óhress:
Engin vetrarþjónusta verður á
Hólasandsvegi og Dettifossvegi
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps
ítrekaði á fundi á dögunum fyrri
samþykktir sínar um að gera þurfi
verulegt átak í að lagfæra héraðsvegi
í sveitarfélaginu, í samræmi
við Umferðaröryggisáætlun
Skútustaðahrepps. Þeir eru flestir
í mjög slæmu ásigkomulagi.
Sveitarstjórn segir að því beri þó
að fagna að efni hafi verið keyrt í
tvo tengivegi nú í ágúst, en þeir
voru illa farnir sem og viðgerð
á klæðningu á þjóðveginum við
Mývatn. Sveitarstjórn lýsir jafnframt
yfir miklum vonbrigðum með að
Vegagerðin hyggst ekki þjónusta
Hólasandsveg og Dettifossveg næsta
vetur.
„Verður að teljast með ólíkindum
að um leið og búið er að leggja
bundið slitlag á Hólasandsveg skuli
öll vetrarþjónusta skorin niður,“ segir
í bókun sveitarstjórnar sem skorar á
Vegagerðina að endurskoða ákvörðun
sína.
Ekki við það unað að vegurinn
verði ekki mokaður yfir veturinn
Nefnt er í bókun að ferðaþjónustan
hafi ítrekað kvartað yfir því að
Dettifossvegur sé ekki mokaður
nema tvisvar á ári. Skorar
sveitarstjórn á stjórnvöld að tryggja
fjármagn til þjónustu allt árið um
kring við Dettifossveg. Sú þjónusta
verði enn mikilvægari þegar búið
verður að klára veginn frá Dettifossi
og að Ásbyrgi.
„Ekki verður við það unað
að sá vegur verði ekki mokaður
yfir vetrartímann, enda sú
framkvæmd til þess gerð að
tryggja og efla samgöngur um
Norðurland allan ársins hring,“
segir í bókun.
Sveitarstjórn mótmælir því
einnig að Víkurskarð verði ekkert
þjónustað í vetur og að tíminn
sem þjóðvegur 1 verður opinn í
vetrarfærð verði styttur. /MÞÞ
Vegagerðin hyggst ekki þjónusta Hólasandsveg og Dettifossveg næsta vetur.
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps er óhress, enda eru þetta svæði sem eru
mikið sótt af ferðamönnum. Mynd / HKr.