Bændablaðið - 12.09.2019, Qupperneq 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 201934
UTAN ÚR HEIMI
Afríki fíllinn er meðal þeirra dýra í heiminum sem sögð eru vera í alvarlegri
útrýmingarhættu.
Verndun villtra dýrastofna:
Bannað að flytja afríska
fíla í dýragarða
Nýjar reglur um viðskipti með
villt dýr banna að afrískir
fílar sem veiddir hafa verið í
náttúrunni verði fluttir í dýra
garða. Bannið gerir ráð fyrir
undan þágum sé það talið til
hags bóta fyrir dýrin.
Bannið var samþykkt á fundi
Cites, alþjóðlegra samtaka um
verndun villtra dýra, í Sviss fyrir
skömmu. Samþykktin var gerð þrátt
fyrir mótmæli fulltrúa Simbabve
og Botsvana en bæði ríki hafa
verið leiðandi í sölu á afrískum
fílum til dýragarða víða um heim.
Dýragarðar í Kína hafa til dæmis
keypt yfir hundrað unga fíla frá
Simbabve frá árinu 2102.
Afríki fíllinn er meðal þeirra
dýra í heiminum sem sögð eru
vera í alvarlegri útrýmingarhættu.
Af þjóðum heims sem áttu fulltrúa
á fundinum samþykktu 87 bannið,
25 sátu hjá og 29 höfnuðu því, þar
á meðal fulltrúi Bandaríkja Norður-
Ameríku. /VH
Krossfiskur af tegundinni Marthasterias glacialis.
Krossfiskum fjölgar hratt
við Spánarstrendur
Stjórnvöld í Galisíu á norðvestan
verðum Spáni hafa lýst yfir stríði á
hendur krossfiskum sem fjölga sér
hratt við strendur héraðsins og éta
þar allt sem að kjafti kemur. Svæðið
byggir afkomu sína að hluta til á
kræklings eldi og skelfiskveiðum.
Sjómenn á svæðinu, sem margir
gera út á skelfisk, segja að óvenju
mikið af krossfiskum hafi veiðst við
strönd Galisíu en minna af skelfiski,
sem er aðalfæða krossfiskanna. Eftir
að yfirvöld gáfu leyfi til að fækka
krossfiskunum hafa veiðar sjómanna
á svæðinu að mestu gengið út á að
veiða hundruð kílóa af krossfiskum
á dag.
Að sögn sjómanna í Galisíu er
ekki nóg með að krossfiskarnir éti
skelfisk eða leggist á kræklingalínur
því þeir hreinlega éta allt sem að
kjafti kemur.
Út af strönd Galisíu er djúpur
neðansjávardalur sem íbúar
svæðisins og reyndar Spánn sem
heild byggir árlega 200 þúsund tonna
framleiðslu sína af kræklingum á.
Ekki er vitað fyrir víst hvers
vegna krossfiskum hefur fjölgað
hratt á skelfiskaslóðinni en líklegasta
skýringin er talin vera hlýnun sjávar.
Til að vera vissir um að
krossfiskveiðarnar skili árangri
verður að fara með allan aflann í
land þar sem hann er látinn þorna
og drepinn þannig. Tegundirnar
sem veiðast mest, Marthasterias
glacialis og Asterias rubens, eru
báðar gæddar þeim hæfileikum að
á þær vaxa nýir útlimir og að nýtt
dýr getur einnig vaxið út frá fallna
útlimnum. Það er því lítið gagn í því
að skera krossfiskana í stykki til að
drepa þá. /VH
LÍF&STARF
Sveppaganga Skógræktarfélags Eyjafjarðar:
Sveppauppskera í
tæpu meðallagi
Þegar búið var að tína sveppina voru þeir matreiddir og snæddir.
Árleg sveppaganga Skógræktar
félags Eyfirðinga var farin á dög
unum og að þessu sinni var gengið
um Miðhálsskóg í Öxnadal.
Um 25 manns lögðu leið sína í
skóginn í kvöldblíðunni og söfnuðu
í matbúr vetrarins. Guðríður Gyða
Eyjólfsdóttir sveppafræðingur leið-
beindi fólki um flest sem viðkemur
matsveppum og greindi fjölmarga
nágranna þeirra í skóginum, auk þess
að elda dýrindis sveppamáltíð í lok
göngunnar.
Sveppauppskera hefur verið í
tæpu meðallagi í Eyjafirði þetta
sumarið. Sveppir létu kræla á sér
frekar snemma sumars en síðustu
vikur hafa sum staðar verið minna
gjöfular en væntingar stóðu til
þegar að matsveppum kemur.
Fróðleikur og útivera
Ingólfur Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga,
segir áhuga fólks á að tína mat-
sveppi vaxandi, en félagið hefur
nokkur undanfarin ár boðið upp
á sveppagöngur og þátttakendum
fjölgar ár frá ári. „Þetta hafa verið
skemmtilegar ferðir, Guðríður
Gyða ber á borð fyrir okkur heil-
mikinn fróðleik og það er auðvitað
það sem margir sækjast eftir, að
fræðast betur um sveppina og
hvað hægt sé að gera úr þeim. En
eins hafa líka margir gaman af
útiverunni, fara út fyrir stígakerfi
skóganna og leita að sveppum er
góð skemmtun og jafnast á við að
fara í berjamó. Mörgum þykir þetta
ómissandi hluti af haustinu,“ segir
Ingólfur. /MÞÞ
Ólafur Thoroddsen, formaður Skógræktarfélags Eyfirðinga, og Halldór
Pétursson á spjalli meðan beðið er eftir rjúkandi ketilkaffinu.
Íbúar vilja halda áfram verkefninu Glæðum Grímsey:
Skiptir máli fyrir lífsgæði þeirra sem eftir eru
Íbúar Grímseyjar vilja að
verkefninu Glæðum Grímsey
verði haldið áfram í að minnsta
kosti eitt ár í viðbót og fara
þess á leit við Byggða stofnun
og Akureyrarbæ að svo verði.
Verkefnið Brothættar byggðir
fór seinna af stað í Grímsey en
áætlað var og var íbúaþing t.d.
ekki haldið fyrr en í maí 2016.
Sú seinkun sem varð á að verk-
efnið hæfist sem og sú alvarlega
staða sem nú er uppi í Grímsey
nægir að mati íbúanna til að halda
verkefninu gangandi.
Ekki náð að snúa íbúaþróun við
„Þrátt fyrir að verkefnið Glæðum
Grímsey hafi því miður ekki náð
að hafa mikil áhrif á íbúaþróunina
í Grímsey þá eru íbúar samt sem
áður glaðir með verkefnið og það
sem með því hefur áunnist,“ segir
í bókun frá hverfisráði Grímseyjar.
Íbúaþingið hafi verið vel heppnað
og á því sett fram skýr framtíðarsýn
Grímseyinga, auk þess sem listuð
voru upp markmið sem markvisst
hefur verið unnið í að ná undanfarin
ár.
Áframhald verkefnisins mikilvægt
Grímseyingar telja áframhald
verkefnisins mikilvægt, því að þrátt
fyrir að það hafi ekki snúið íbúa þróun
við, enn sem komið er, skipti það
miklu máli fyrir lífsgæði þeirra sem
enn búa í eyjunni og möguleikann á
fólksfjölgun og endurnýjun.
Aðal- og grunnatvinnuvegur
Grímseyjar er sjávarútvegur og
hann er forsenda fyrir byggð í
eynni.
Útgerðirnar í Grímsey eru
smáar, rekstur þeirra er erfiður
og á undanhaldi um allt land.
Sérstaki byggðakvótinn sem
fylgir verkefninu hefur stutt við
og jafnvel verið forsenda fyrir
útgerð og atvinnu í eyjunni.
„Verkefnið Glæðum Grímsey
hefur gert íbúum kleift að koma
á fót ýmsum fyrirtækjum og
bæta þjónustu við heimamenn
og gesti.
Áframhald á verkefninu
myndi styrkja stöðu eyjarinnar
enn frekar sem íbúasamfélags
sem og ferðamannastaðar,“
segir í fundargerð hverfisráðs
Grímseyjar. /MÞÞ