Bændablaðið - 12.09.2019, Side 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 201936
Durian er ólíkt öðrum ávöxtum
að því leyti að það gefur frá sér
megna lykt sem minnir á fýlu af
stæku hlandi, dauðum ketti eða
opnu holræsi. Þeir sem komast
upp á bragðið af ávextinum
segja hann ávanabindandi og
bragðið ólíkt öllu öðru sem þeir
hafa smakkað. Á íslensku kallast
plantan dáraaldin.
Heimsframleiðsla á durian
aldinum er í kringum 1,3 milljón
tonn. Taíland og Malasía eru
langstærstu framleiðendurnir með
tæplega 90% framleiðslunnar. Árið
2016 var framleiðslan í Taílandi
um 700 þúsund kíló og 400 þúsund
kíló í Malasíu. Í þriðja sæti voru
Filippseyjar með 71,5 þúsund
tonn.
Um 80 til 90% framleiðslunnar
í Taílandi eru flutt út og mest til
Kína en neytt á heimamarkaði í
Malasíu og á Filippseyjum.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands voru flutt inn
1938 kíló af durian árið 2017. Þar
af komu 1.583 kíló frá Taílandi en
355 kíló frá Hollandi. Talsverður
samdráttur var í innflutningi
aldinsins árið 2018 og var hann
þá 982 kíló sem öll komu frá
Taílandi.
Ættkvíslin Durio og tegundin
zibethinus
Að öllu jöfnu teljast 30 tegundir
trjáa sem vaxa í regnskógum
Asíu til ættkvíslarinnar Durio.
Ágreiningur er um sex af
þessum tegundum og vilja sumir
flokkunarfræðingar telja þær
til eigin ættkvíslar sem kallast
Boschia.
Allar tegundirnar 30 eru hávaxin
tré sem ná 25 til 50 metra hæð og
getur stofninn verið 50 til 120
sentímetrar í þvermál. Níu þeirra
bera æt aldin. Trén ná allt að
tvö hundruð ára aldri og verður
börkurinn hrjúfari og ellilegri
viðkomu eftir því sem trén eldast.
Sú tegund sem flestir þekkja
sem durianaldin og eina aldinið
innan ættkvíslarinnar sem ræktað
er í stórum stíl og verslað er
með á alþjóðamarkaði kallast D.
zibethinus.
Tegundin nær 30 til 40 metra
hæð í náttúrunni en yrki í ræktun
eru yfirleitt um 12 metrar að hæð.
Rætur sem vaxa upp af fræi mynda
í fyrstu stólparót en síðar vaxa
frá henni síðrætur sem greinast
til hliðanna. Ræturnar liggja
fremur grunnt í jarðveginum eða
á minni en 50 sentímetra dýpi og
vaxa sjaldnast út fyrir ystu greina
trjákrónunnar. Plöntur sem vaxa af
græðlingum mynda strax trefjarætur
út frá stofninum. Ólíkt flestum
rótum greinast rætur duriantrjáa
ekki í rótarhár. Þess í stað taka
ræturnar vatn og næringarefni upp
með sérhæfðum rótum sem vaxa á
hliðarrótunum.
Greinar duriantrjáa vaxa beint
út frá stofninum og síðan upp á
við þannig að krónan verður hálf
egglaga.
Blöðin sígræn, heilrennd á 2,5
sentímetra löngum stilk og stakstæð,
glansandi dökk ólífugræn á efraborði
en ljósari á því neðra, egg eða ílöng
og 10 til 28 sentímetra löng. Ungt
lauf er undið um miðstilkinn en
breiðir fljótlega úr sér.
Trén blómstra einu sinni til tvisvar
á ári og er blómgunin mismunandi
eftir tegundum, aðstæðum og yrkju
og það tekur að jafnaði mánuð fyrir
blómin að þroskast eftir að fyrstu
blómvísar koma í ljós. Blómvísar
3 til 30 saman og blómin mörg
saman í niðursveigðum hnapp á
sterkum blómgreinum sem vaxa
út úr stofni trjánna. Blómin, sem
standa stutt, opnast síðdegis og falla
af um miðnætti, eru fimm til sex
sentímetrar í þvermál og á sex til
sjö sentímetra stilk. Krónublöðin
fimm og einstaka sinnum sex,
kremgul en einnig til hvít og rauð
og er aldinkjöt aldinanna samlit
krónublóðunum. Hvert blóm ber
marga frævla og eina frævu. Þar
sem frævur blómanna þroskast á
undan fræflunum eru blómin sjaldan
sjálffrjóvgandi. Blómin gefa frá sér
þungan ilm og eru rík af sykri sem
flugur, fuglar og leðurblökur sækja
í og frjóvga blómin um leið.
Sáðplöntur bera aldin fimm til
sex árum eftir spírun en plöntur sem
vaxa upp af græðlingum fyrr.
Aldinþroski eftir frjóvgun er
90 til 130 dagar eftir aðstæðum
og yrkjum. Að innan skiptist
fullþroskað aldin í hólf en að utan
er það grænt, gult eða brúnleitt
eftir þroska, hnöttótt eða egglaga
með þykkri húð og alsett sterkum
og hvössum þyrnum. Aldinið nær
allt að fimm kíló að þyngd og
getru verið 30 sentímetra langt og
15 sentímetrar í þvermál þar sem
það nær fullum þroska. Algengt er
að aldin í sölu séu um 1,5 kíló að
þyngd. Hjá ungum trjám eru tvö
til tíu fræ í hverju aldini en þeim
fræjunum fjölgar eftir því sem tré
eldast. Fræin allt að 4 sentímetrar
að lengd.
Aldinkjötið er milli 15 til 30% af
aldininu og svampkennt. Þeir sem
hafa smakkað aldinið segja áferð
þess mjúka og jafnvel velgjukennda
en að bragðið sé sætt og venjist vel.
Til er fjöldi ólíkra yrkja
duriantrjáa sem gefa af sér aldin
sem er mismunandi að stærð og
bragði og þar af finnast um 200 yrki
í Taílandi. Aldur trjáa af tegundinni
D. zibethinus er 80 til 150 ár en elsta
lifandi duriantréð í Taílandi er talið
vera 210 ára gamalt.
Lyktin af durian
Aldinið gefur frá sér sterka lykt
sem er mismunandi milli tegunda
innan ættkvíslarinnar og milli
yrkja í ræktun. Mörgum finnst
lyktin verulega vond og hefur
henni meðal annars verið líkt við
fýlu af stæku hlandi, langdauðum
ketti, skemmdum lauk, óhreinum
íþróttasokkum eða opnu holræsi
og ælu. Rithöfundurinn Anthony
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Taíland og Malasía eru langstærstu framleiðendur durian í heiminum með tæplega 90% framleiðslunnar.
Durian engum öðrum ávexti líkur
Mörgum finnst lyktin af durian verulega vond og hefur henni meðal annars verið líkt við fýlu af stæku hlandi,
langdauðum ketti eða opnu holræsi.
Víða er bannað að hafa durianaldinið
með sér inn á hótel, í neðanjarðarlestir
og á aðra almenningsstaði í Asíu.