Bændablaðið - 12.09.2019, Page 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 201940
Tíu þúsund tonn hættulegra efna
grafin á Heiðarfjalli. Landsvæðið
á fjallinu var 1953 leigt af
bændum á Eiði undir byggingu
og rekstur H-2 radarstöðvar
NATO og Bandaríkjahers sem
starfaði 1954 til 1970. Deilur
land eigenda við eigendur
eiturefna haugsins sem grafinn
var á fjallinu, Bandaríkjaher
og utanríkisráðuneytið um að
skila landinu í viðunandi ástandi,
hafa árangurslaust staðið yfir sl.
43 ár.
Til jafnlengdar hafa báðir
fyrrnefndir aðilar af mikilli hörku
og ósanngirni neitað að taka minnstu
ábyrgð á stöðu mála. Meðal annars
að viðhöfðum jafn hæpnum rökum
og að sök þeirra sé fyrnd. Auk þess
hefðu Íslendingar og Bandaríkjaher
við brottför hersins gert „gildan“
milliríkjasamning um að afsala í eitt
skipti fyrir öll, öllum mögulegum
bóta- eigna- og mannréttindum
landeigenda. Í undirritaðri klausu
2. greinar samkomulagsins frá 7. júlí
1970 segir orðrétt:
„Íslenska ríkisstjórnin afsalar
sér hér með fyrir sína hönd og fyrir
hönd allra íslenskra ríkisborgara,
öllum kröfum gagn Bandaríkjum
Ameríku fyrir skaða hjá fólki eða
vegna eignatjóns sem upp gæti
komið vegna komu þeirra til eða
nota þeirra af þessari eign eða
vegna nokkurra þeirra betrumbóta
í því sambandi“
Alvarlegur afleikur
íslenskra embættismanna
Efni þessa samkomulags sem er um
leið skrumskæling allra venjulegra
réttlætissjónarmiða, getur ekki
annað en talist til alvarlegra og
óvenju lágkúrulegra embættis-
afglapa íslenskra stjórnmála- og
embættismanna, sem með þessum
gjörningi dæmdu sjálfa sig til
ævarandi skammar.
Mannréttindi seld fyrir lítið
Það var með öðrum orðum
undirskrift og mannréttindaafsal
þessa „samnings“, að embættismenn
utanríkisráðuneytisins rembdust við
að bjarga eigin skinni með því að halda
innihaldi hans leyndu í lengstu lög
fyrir landeigendum. Þetta ástand entist
þar til Steingrímur Hermannsson,
þáverandi forsætis ráðherra, hafði
einlægni og kjark til að brjóta
samsvarið bræðralag embættismanna
utanríkis þjónustunnar, með því að
afhenda fulltrúum landeigenda afrit
þessa samnings á fundi í forsætis-
ráðuneytinu.
Um leið varð þessi ólöglegi
gjörningur kærkomið vopn í höndum
fulltrúa Bandaríkjahers, í þeim
augljósa tilgangi að veifa plagginu
sigri hrósandi framan í arftaka fyrri
ráðuneytismanna. Klíku íslenskra
embættismanna, sem lögðust í vörn
Varnarliðs, gegn frekari fjáraustri
þess í greipar óseðjandi íslenskra
hermangara.
Annar stjórnmálamaður úr hópi
Framsóknar manna,
Valgerður Sverris dóttir,
afhenti land eigendum í
ráðherra tíð sinni 2007,
afrit annars ekki síður
mikilvægs samkomu-
lags sem beinlínis kvað
á um skyldur hersins
við upphreinsun lands,
við brottför af leigðum
land svæðum. Án stað-
festingar; gerum við
ráð fyrir að Valgerði
eins og samherja hennar
hafi einfaldlega ofboðið
starfshættir ráðuneytis-
manna við örvæntingar-
fullar yfir hylmingar og
svik.
Ef sagan um land-
læg embættis klúður
opin berra íslenskra
embættis manna verður
einhvern tíma skrifuð,
hlýtur samningur inn um
Heiðarfjall að eiga heima
í því riti.
Venjulegt dót
Varðandi samsetningu eiturefna-
kokkteilsins sem grafinn var á
fjallinu átti annað eftir að koma
í ljós með árunum. Því miður
hrinu engin slík rök á embættis-
mannaklíku utanríkis- og
umhverfis ráðuneyta, sem tvíefldust
í forherðingu sinni gegn því að
eitthvað yrði aðhafst í þessu máli.
Meðal annars var í blaðaviðtali haft
eftir ráðuneytisstjóra umhverfis-
ráðuneytisins, að á Heiðarfjalli,
hefði aðeins „venjulegt dót“ verið
urðað.
Keypt álit íslenskra
„lögspekinga“
Til styrktar eitruðum málstað
embættis manna utanríkis ráðu-
neytisins hefur nokkrum tugum
milljóna skattpeninga fólksins í
landinu verið varið í kaup rök-
þrota ráðuneytismanna á þremur
viðamiklum „varnarálitum”
„valinna“ manna og kvenna úr stétt
hæstaréttar lögmanna, hverju um sig
upp á tugi síðna. Allt í þeim tilgangi
að sanna fyrir landeigendum að þeir
eigi engan lagalegan rétt í þessu
máli. Þessar ritgerðir eru ekki annað
en aumkunarverðar tuggur rökleysu
(copy paste) sem étnar voru upp
hver á fætur annarri. Boðskapur sem
keyptur var í þeim tilgangi að ata
málstað landeigenda auri.
Þá hafa stofnanir á borð við
Hollustuvernd ríkisins ekki hikað
við að stampa „vísindaheiðri“
sínum, ef einhver var til varnar hinu
opinbera í þessu máli. Þetta gerðist
þegar hækkað gildi blýmengunar
var staðfest í lindum Eiðisbýlisins,
og sú vandræðalega uppákoma
var skýrð af þeirra hálfu, með að
þetta blý hefði borist í sýnin úr
mælitækjum viðkomandi stofnunar.
Öðrum lykilstofnunum þjóðar-
innar sem landeigendur hafa í
meira en fjögurra áratuga sögu,
grátið við hné, hefur líkt og öllum
auðsveipum ríkisstarfs mönnum
verið skipað af innmúraðri
embættiselítu hermangara innan
dyra utanríkisráðuneytisins,
að þagga endanlega niður í
landeigendum. Hvort sem var í eitt
skipti eða fleiri og hvort sem í hlut
átti: Héraðsdómur Reykjavíkur
eða systurstofnun hans á Húsavík,
Hæstiréttur Íslands, Umboðsmenn
Alþingis, Ríkislögreglustjóri,
Ríkissaksóknari eða aðrir.
Nýjar baráttuaðferðir
Hófust 2017 þegar landeigendum
tókst á eigin kostnað að semja við
hóp kanadískra vísindamanna,
um að gera frumrannsókn
byggða á efnagreiningum
og vettvangsrannsóknum á
Heiðarfjalli.
Þetta er hópur vísindamanna sem
hefur áratuga reynslu af rannsóknum
og skipulagningu vinnu við stjórn
upphreinsana á mörgum tugum
systurstöðva H-2 radarstöðvarinnar
á Heiðarfjalli, radarstöðva NATO
og Bandaríkjahers í Kanada.
Niðurstöður þessara rannsókna
liggja endanlega fyrir; voru birtar
í umfangsmikilli yfir 300 síðna
skýrslu kanadísku háskólanna
Royal Military College og Queen´s
University, dagsettri 13. mars 2019.
Meginkaflar rannsóknanna höfðu
reyndar fyrr verið birtar og vakið
athygli á umhverfisráðstefnu:
Uarctic sem haldin var í
Finnlandi 3.–5. september 2018,
þar sem fjallað var um málefni
norðurheimskautssvæðanna og
mikilvægi heiðarlegrar umgengni
við náttúruna á viðkvæmum
svæðum.
Á þeim vettvangi hefur
íslenskum embættismönnum, á
vægast sagt hæpnum forsendum,
tekist að láta krýna sig til forystu
í umhverfismálum meðal þjóða á
norðurslóðum, þrátt fyrir að sömu
aðilar gefi lítið fyrir tíu þúsund
tonna eiturefnahaug á Heiðarfjalli;
góðum mönnum til gremju og
andskotanum til athlægis. – Hvenær
er líklegt að utanríkisráðuneytið
eða íslensk heilbrigðisyfirvöld,
bandaríski herinn og NATO axli
ábyrgð í þessu máli?
Á þessum tímamótum telja
landeigendur sig ekki hafa
neinum samfélagsskyldum að
gegna, annarra en þeirra sjálfra og
kannski velferðar nokkur hundruð
sauðfjár og hrossa, gagnvart
alvarleika þeirra niðurstaðna sem
koma fram í þessum skýrslum.
Engu að síður hefur hvarflað að
mönnum að eðlilegt gæti talist
að vara bændur í sveitinni við, í
anda varnaðarorða sem birtast í
annars varfærnum yfirlýsingum
kanadísku vísindamannanna, eins
og þrjár eftirfarandi málsgreinar
RMC - Royal Military College
skýrslunnar sýna. Eftirfarandi
málsgreinar eru teknar orðréttar
úpp úr RMC skýrslunni:
„Of special concern are the
concentrations of PCBs (28.000
mg/kg) in the soils collected at the
Tropo Building. As one of the few
Structures remaining on site, an
occational visitor would frequent
this area. It is recommended that
a signage be erected for the site
and on the Tropo Building to warn
visitors of the potential hazards.”
Sérstakar áhyggjur vekur magn
PCB efna sem mældust vera 28.000
mg/kg í jarðvegssýnum teknum við
einu uppistandandi bygginguna
sem eftir er á Heiðarfjalli, staður
þar sem líkur eru á heimsóknum
ferðamanna. Þess vegna er
mælt með að upp verði sett
LESENDABÁS
Heiðarfjall á Langanesi:
Alvarleg eiturefnamengun staðfest
Tropo byggingin sem eftir stendur af H-2 herstöðvarmannvirkjunum á Heiðarfjalli. Um hana segir m.a. í
rannsóknarskýrslu Royal Military College: – „Of special concern are the concentrations of PCBs (28.000 mg/kg)
in the soils collected at the Tropo Building. As one of the few Structures remaining on site, an occational visitor
would frequent this area. It is recommended that a signage be erected for the site and on the Tropo Building to
warn visitors of the potential hazards.” Mynd / HKr.
Jarðvegsrannsóknir RMC - Royal Military College á Heiðarfjalli.
Í skýrslunni er lýst miklum áhyggjum yfir því að villt dýr sæki reglulega á þetta svæði á Heiðarfjalli þar sem þau komist m.a. í mengað vatn. Eitruð efni
eins og PCB geti einnig hæglega borist í búfénað á svæðinu.
Loftmynd af H-2 Langanes radarstöð Bandaríkjahers á Heiðarfjalli. Myndin var tekin
á sjötta áratug síðustu aldar. Tropo byggingin er í gulum ramma efst á myndinni en
grunnvatnssvæðið sem rannsakað var er innan bláu punktalínunnar. Mynd / RMC