Bændablaðið - 12.09.2019, Qupperneq 45

Bændablaðið - 12.09.2019, Qupperneq 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 2019 LANDGRÆÐSLAN Skógarmeindýr og loftslagsbreytingar Undanfarið hefur töluvert borið á umræðu um að áætlanir stjórnvalda um að leggja áherslu á endurheimt birkiskóga til mótvægis gegn loftslagbreytingum séu ekki raunhæfar sökum tveggja nýrra birkimeindýra sem hingað hafa borist að undanförnu; birkikembu og birkiþélu. Höfundur þessa pistils hefur starfað við rannsóknir á meindýrum á trjágróðri um þriggja áratuga skeið og fylgst með landnámi og skaðsemi nýrra skógarmeindýra. Þær rannsóknir voru teknar saman í yfirlitsgrein sem birtist í ritinu Icelandic Agricultural Sciences árið 2013. Síðan hafa bæst við nokkrar tegundir og var gerð grein fyrir þeim í Riti Mógilsár 2019. Nú eru alls þekktar 28 tegundir skordýra og ein tegund mítla sem hér hafa numið land og lifa á trjágróðri. Fyrir voru í landinu 52 tegundir skordýra sem lifa á trjágróðri. Um þriðjungur allra innfluttra skógarmeindýra valda verulegu eða miklu tjóni. Veruleg aukning hefur orðið á landnámi skógarmeindýra eftir 1990, samfara hlýnun. Síðan hefur legið nærri að ein ný skógarmeindýrategund hafi numið land annað hvort ár. Hröð útbreiðsla birkikembu og birkiþélu og skemmdir sem þær hafa valdið er verulegt áhyggjuefni, enda er velþekkt að nýir skaðvaldar geti valdið stórfellum skaða á innlendum trjágróðri. Nýlegt dæmi er askbarkbjallan sem barst til Norður Ameríku um 2000 og hefur drepið þar ask í stórum stíl, enda virðist engin þarlend tegund asks hafa viðnám gegn bjöllunni. Ekkert bendir til þess að birkikemba eða birkiþéla muni ganga svo hart fram, en óefað munu þær hafa áhrif á vöxt birkis og þar með getu skemmdra trjáa til að binda kolefni. Hinsvegar er óvíst hvort þessar meindýrategundir muni hafa merkjanleg áhrif á kolefnisbindingu íslenskra birkiskóga, til þess skortir rannsóknir. Rannsóknir hafa sýnt að íslenskt birki er erfðafræðilega fjölbreytt og að mismunandi stofnar þess eru misnæmir fyrir ásókn birkikembu. Þessi fjölbreytni er mikilvæg trygging gagnvart skakkaföllum eins og skordýrafaröldrum. Sá eiginleiki birkisins að byrja snemma að tímgast og dreifast með fræi flýtir aðlögun þess að breyttum aðstæðum, til dæmis skordýrafaröldrum. Það er einnig velþekkt að nýir skaðvaldar geta valdið miklum skaða á ræktuðum innfluttum trjágróðri. Furulúsin sem hingað barst um 1937 er nærtækt dæmi um slíkt. Aðrir skaðvaldar sem hingað hafa borist hafa einnig valdið verulegum usla, má þar nefna sitkalús, lerkiátu og asparryð. Allir þessir skaðvaldar draga úr vexti skóga og þar með kolefnisbindingu. Allar megintrjátegundir sem nú eru notaðar í skógrækt hér á landi eru hrjáðar af einhverjum skaðvöldum. Allar geta þær lent í skakkaföllum af völdum nýrra skaðvalda. Sú hætta sem blasir helst við nú er sjúkdómurinn Phytophthora ramorum, sem breiðst hefur ört út á Bretlandseyjum og valdið miklu tjóni í lerkiskógum. Saga undanfarinna áratuga sýnir að þess má vænta að hér nemi land ný skógarmeindýrategund annaðhvort ár og ein af hverjum þremur tegundum sé skaðleg eða mjög skaðleg. Þar við bætast svo trjásjúkdómar. Við verðum að gera okkur grein fyrir þessari hættu og bregðast við henni. Um þetta verður fjallað á norrænni ráðstefnu sem haldin verður á Hótel Örk í Hveragerði þann 17. september. Þar munu fremstu sérfræðingar Norðurlanda á þessu sviði greina þá hættu sem steðjar að norrænum skógum af völdum nýrra skaðvalda. Á slíkum greiningum eigum við að byggja okkar viðbrögð. Guðmundur Halldórsson, sérfræðingur hjá Landgræðslunni Guðmundur Halldórsson. Lirfa birkiþélu í skemmdu birkiblaði. Mynd / Áskell Þórisson LESENDABÁS Vilji kúabænda að leiðarljósi Sumri hallar og haustverkin taka við af sumarverkunum. Heilt yfir virðist góður fóðurforði hafa náðst og ágætlega gengið að heyja. Hluti af haustverkunum að þessu sinni er að ljúka endurskoðun búvörusamninga. Eftir aðalfund Landssambands kúabænda, sem haldinn var snemma síðastliðið vor, var samninganefnd bænda klár í þá vinnu. Ríkið skipaði svo samninganefnd af sinni hálfu og veitir Unnur Brá Konráðsdóttir henni formennsku. Það er skemmst frá því að segja að haldnir voru 5 fundir áður en við misstum stjórnsýsluna í sumarleyfi en eins og allir vita sem komið hafa nálægt vinnu í svona umhverfi þá gerist fátt á þeim tíma og fram yfir verslunarmannahelgi, þetta er náttúrulögmál. Þessir fyrstu fundir voru nýttir til að stilla saman strengi. Ná saman um hvað skyldi leggja áherslu á, hverju þyrfti að breyta í samningunum, lögum og reglugerðum þeim tengdum. Greiðslumark og verðlagning efst á baugi Aðilar eru sammála um að tvö stærstu málin sem nauðsynlegt er að taka á í þessari endurskoðun séu greiðslumarks- og verðlagningarmál. Eins og flestir vita sennilega kusu kúbændur á þann veg að framleiðslustýringu skyldi viðhaldið í formi greiðslumarks eða kvóta. Það er breyting frá núgildandi samningi sem gerir ráð fyrir að framleiðslustýring leggist af. Einnig var, á sínum tíma, ákveðið að fresta gildistöku 12. greinar búvörusamningsins sem fjallar um verðlagningarmál. Nauðsynlegt er að taka upp sveigjanlegra kerfi verðlagningar svo takast megi með betri hætti á við breytingar á markaðsumhverfi og neysluvenjum fólks. Þær línur sem lagðar eru af hálfu bænda í þessum viðræðum eru byggðar á ályktunum aðalfundar LK og hefur framkvæmdastjóri LK rakið þær áherslur ágætlega í nýlegum pistli á naut.is. Kvótamarkaðurinn frosinn Staðan sem nú er uppi í greininni er ekki neitt sem kemur á óvart. Innlausnarmarkaður með kvóta er frosinn, þ.e. að lítið framboð er á greiðslumarki. Bændur sem ætla sér að hætta búskap halda að sér höndum í þeirri von að það komist í gang kvótamarkaður sem gæti gefið þeim hærra verð en núna býðst á innlausnarmarkaði. Þetta var fyrirséð. Það var algjörlega ljóst frá því að skrifað var undir núverandi samning að þessi staða kæmi upp. Reynt var að stefna gegn vilja meirihluta íslenskra kúabænda – að afleggja kvótakerfið og innleiða nýtt kerfi. Það kann aldrei góðri lukku að stýra þegar farið er svo mjög gegn grasrótinni, alveg sama á hvaða vettvangi það er gert. Réttum kúrsinn Afleiðingarnar birtast okkur núna með þessum hætti sem rakinn er hér á undan, þ.e. kerfi í pattstöðu. Við sem sitjum í brúnni, ásamt öllum íslenskum kúabændum, erum nú með það verkefni í höndunum að snúa af þessari stefnu, verkefni sem við vissum að kæmi upp, verkefni sem okkur var úthlutað og munum stýra af festu. Það er okkar skylda að gæta að hag og framtíð íslenskrar mjólkurframleiðslu og það gerum við! Nú eru aðilar aftur að setjast niður eftir sumarfríin enda margt sem þarf að klára þar sem endurskoðaður samningur þarf að fara í gegnum þingið núna í haust. Það verður fagnaðarefni þegar loksins verður settur punktur aftan við þá óvissu sem greinin hefur þurft að búa við frá upphafi þessarar vegferðar um afnám kvótakerfisins, vegferðar sem fáir báðu um og hefur reynst greininni ansi dýrkeypt. Hranastöðum í byrjun september 2019 Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda, arnar@naut.is Arnar Árnason. Er þitt bú öruggur og góður vinnustaður? PO RT h ön nu n Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is fjórhjól Eru Ekki lEiktæki barna á síðustu árum hafa orðið mörg slys af völdum fjór- hjóla. í flestum tilvikum eru þessi tæki án veltigrindar. Gæta skal varúðar við notkun fjórhjóla og ætíð nota tilskilinn hlífðarbúnað. Fjórhjól eru ekki leiktæki barna.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.