Bændablaðið - 12.09.2019, Qupperneq 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 201946
Flestir bílaframleiðendur eru að
þróa sína tegund rafmagnsbíla
og nú er Opel komin með nýjan
rafmagnsbíl sem er fullur af
tækninýjungum og með mikla
drægni á rafhlöðunni.
Mín hugmynd var að prófa bílinn
helgina 23.–25. ágúst, en þá var
bíllinn upptekinn svo að endirinn
var sá að minn prufuakstur var
þrískiptur, fyrst með Benna, eiganda
Bílabúðar Benna, en sá bíltúr var
frekar stuttur því ég sá að Benni var
hræddur með mér í bíl.
Seinni tveir rúntarnir í Opel
Ampera
Það var aftur prófað og nú var Benni
við stýrið. Fínt að láta hann gera
allt það sem ekki má í umferðinni,
en það sem þessi bíll getur er með
ólíkindum, hann er einfaldlega
límdur við götuna, eldsnöggur upp í
umferðarhraða og vel það og stoppar
nánast á punktinum.
Benni var greinilega að svara mér
í því að gera mig hræddan með sínu
aksturslagi og þetta var komið gott.
Benni fór og ég tók einn fínan rúnt á
bílnum á mínum hraða, óhræddur og
ekki að hræða neinn að mér vitandi.
Einhver besti bíll sem ég hef
prófað til að læra sparakstur
Opel Ampera er mjög fullkominn
tæknilega séð og að keyra bílinn er
mjög gott, nánast alveg hljóðlaus.
Samkvæmt minni hávaðamælingu
var hann á 90 km hraða að mælast
oftast undir 70db.
Til að nýta rafmagnið á
rafhlöðunni þannig að maður
komist sem lengst þarf vissulega
að keyra sparlega. Í bílnum er
aksturstölva sem hjálpar mikið
til við sparaksturinn og á um 5
km fresti kemur upp línurit sem
sýnir aksturslag, ytri aðstæður s.s.
landslag, veðurfar, aksturstækni og
fleira. Þessi tölva sýnir vel hvernig
á að ná sem flestum kílómetrum út
úr hverri hleðslu.
Hægt að læra mikið um bílinn á
vefsíðunni benni.is
Eftir að hafa keyrt bílinn nálægt
100 km var ég mjög ánægður, pláss
gott fyrir fólk bæði í framsætum
og aftursætum, en mér hefur alltaf
fundist sætin í Opelbílum góð og
þægileg.
Hljómgæði fyrir ofan meðallag
miðað við aðra bíla, farangursrými
gott miðað við stærð bílsins.
Á malarvegi heyrist aðeins
steinahljóð undir bílinn og lítill
prófill hjólbarða gefur ekki mikla
fjöðrun, en í staðinn á þessi stærð
dekkja mikinn þátt í því að bíllinn
er eins skemmtilegur og hann er á
bundnu slitlagi.
Það eru fá atriði sem ég get sett
út á í bílnum, en eins og í nánast
öllum rafmagnsbílum þá vantar
varadekkið. Á bílinn má ekki setja
krók til að draga kerru eða vagn. Ef
farið er inn á vefsíðuna benni.is er
þar gluggi sem sýnir hvað maður
styttir mikið akstursdrægnina með
mismunandi notkun á rafmagni.
Þegar ég skoðaði þetta kom það mér
mest á óvart hvað ljósin nota lítið
rafmagn og stytta lítið drægnina.
Samt er ótrúlega algengt að sjá
rafmagnsbíla ljóslausa að aftan
í umferðinni sem er ólöglegt og
alveg óþarfi að sleppa, nema menn
vilji endilega borga 20 þúsund
króna sekt fyrir ljósleysi. Það sem
styttir mest drægnina er notkun á
miðstöðinni við að hita loft eða að
kæla, samkvæmt vefsíðunni, sem er
skemmtileg nýjung í kynningu á bíl
og fróðleg að sama skapi.
Sparaksturskeppni Ómars
og Sigga til Akureyrar
Margir fylgdust með sparaksturs
keppni þann 27. ágúst á milli
Ómars Ragnarssonar og Sigga
Hlö til Akureyrar á svona bílum í
veðurskilyrðum sem ekki eru þær
ákjósanlegustu fyrir rafmagnsbíla
Þar sýndu þeir að rafmagnsbíll
er klárlega valkostur fyrir þá
efasemdamenn sem telja að
rafmagnsbílar séu ekki valkostur
fyrir Ísland.
Án þess að hlaða bílana komust
þeir báðir á Akureyri og aðeins til
baka. Siggi var lítið að reyna að
spara rafmagn og nýta sér tæknina
í bílnum til að framleiða rafmagn,
en Ómar notaði hleðslutækni bílsins
til að láta hann hlaða inn á sig og
komst því lengra. Enn má lesa um
þessa „keppni“ á vefsvæðinu visir.
is og gat ég ekki annað en brosað
yfir sumum „kommentunum“ fyrir
neðan umfjöllunina frá lesendum.
Auðvitað voru þeir á öðrum hraða
en almennt í umferð, notuðu eins
lítið af rafmagni og þeir gátu, þeir
voru jú í keppni. Hins vegar sýndu
þeir svart á hvítu að það er hægt
að komast á einni rafhleðslu frá
Reykjavík til Akureyrar, eitthvað
sem fáir hefðu trúað fyrir þrem til
fimm árum að nokkurn tímann væri
hægt.
Tæknilegar upplýsingar,
verð og búnaður
Opel AmperaE er með 150kw
rafmagnsvél sem skilar 204 hestöflum
og á að vera með hámarksdrægni
upp á 423 km. Togið er 360 Nm
(Newtometrar) og rafhlaðan er 60
kWh. Hámarkshröðun bílsins úr 0
km upp í 100 er 7,3 sek.
Verðið er 4.990.000 og hægt er
að velja á milli 7 mismunandi lita
á bíl. Í bílnum er m.a. stillanlegur
árekstrarvari, akreinalesari,
blindhornsvari, hiti í stýri, neyðar
takki fyrir neyðarlínu og fleira.
Opel Ampera-E, nýr rafmagnsbíll
frá Bílabúð Benna
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Þyngd 1.691 kg
Hæð 1.594 mm
Breidd 1.854 mm
Lengd 4.164 mm
Helstu mál og upplýsingar
Opel Ampera E. Myndir / HLJ
Mismunandi aksturslag á 5 km fresti.
Nóg pláss fyrir aftursætisfarþega.
Muna að kveikja ljósin, það er sektað
fyrir að keyra án afturljósa.
Í votviðri sést ekkert ofurvel á annars góða bakkmyndavélina.
Árekstrarvörnina er hægt að stilla, t.v. er drægnin í km og ef miðstöðin væri
sett í gang mundi km-talan lækka mest.
Alltaf jafn skrítið að finna ekkert púst
undir þessum rafbílum.
Upplýsingar um notkun rafmagns má
fá með mismunandi skjáum.