Bændablaðið - 12.09.2019, Page 48

Bændablaðið - 12.09.2019, Page 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 201948 MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Hjónin Þorvaldur og Ragnheiður tóku við Litlu-Reykjum af foreldrum Þorvaldar, þeim Þórarni og Sigríði, árið 1984. Ragnheiður lést svo árið 2014. Árið 1986 var byggt 24 bása fjós með mjaltagryfju, árið 2004 var því fjósi breytt í lausagöngu. Árið 2016 var byggt nýtt lausagöngufjós með 72 básum og mjaltaþjónninn kom til sögunnar sumarið 2017. Býli: Litlu-Reykir. Staðsett í sveit: Flóahreppur. Ábúendur: Þorvaldur Þórarinsson. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Þorvaldur. Á sama hlaði býr Sigríður, mamma Þorvaldar, og Unnur, dóttir hans, ásamt manni og 2 börnum. Þorvaldur á 3 dætur að auki og barnabörnin eru 6. Stærð jarðar? 220 ha, þar af 80 ha ræktað land Gerð bús? Blandað bú. Fjöldi búfjár og tegundir? 150 nautgripir, þar af 55 mjólkurkýr. 115 vetrarfóðraðar kindur og 30 hross. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Byrjar og endar á fjósverkum. Annað mjög árstíðabundið, kindurnar eiga vorið (ásamt jarðvinnu) og nokkra haustdaga, annars snýst þetta mest um nautgripina. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Vorverkin eru skemmtilegust. Leiðinlegast er að gefa kálfum úr pela. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Meiri kvóti en annars með svipuðu sniði. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Þeir standa sig vel sem nenna að standa í því. Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Ef íslenskar afurðir verða vel merktar fyrir neytendur er framtíðin björt. Merkilegt hvað það getur verið erfitt að finna út hvers lenskar landbúnaðarafurðirnar eru, sem eru í boði í verslunum. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Bæði í lambakjöti og mjólkurvörum. Hvað er alltaf til í ís skápnum? Mjólk, skyr, rjómi og smjör. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambakjöt. E f t i r m i n n i l e g a s t a atvikið við bústörfin? Þegar kýrnar sluppu út eina nóttina í febrúar. Kolniðamyrkur og fljúgandi hálka urðu til þess að mjög erfitt var að ná þeim inn og a.m.k. 10 kýr stórslasaðar. Það var ekki skemmtileg aðkoma. Grilluð kjúklingasamloka með ferskum blómum Nú fer að verða síðasti séns að borða uppskeruna úr garðinum fyrir fyrstu frost og þá eiga blómin ekki að verða útundan – geta bætt bragð og boðið upp á tilbreytingu í salatinu og samlokugerðinni. Túnfífill (Taraxacum officinale) Það sem er skemmtilegt við túnfífilinn er að hann er allur ætur; blóm, stilkur og lauf. Blóm hafa hunangsbragð þegar þau eru tínd ung, en eldri blóm hafa beiskara bragð. Þið getið notað ung lauf í salöt. En þó að öll plantan sé æt, er mikilvægt að gæta varúðar við uppskeru túnfífla. Þessi planta er talin illgresi í íslensku landslagi og er oft úðuð með eitri. Fjólur – Pansy (Viola) Fjólublómin hafa grösugt, grænt bragð og eru sérstaklega vinsæl blóm til að setja saman við salatið vegna mikils fjölbreytni í litum. Þú getur líka sett þau í sykur. Dökklituð blóm geta litað tunguna þína dökka tímabundið. Skjaldflétta – Nasturtium (Tropaeloum majus) Bæði blómin og blöðin af skjaldfléttu hafa piparbragð - skemmtilegt að nota ferskt í salöt fyrir piprað bragð. Skjaldfléttur hafa einnig mikið magn af C-vítamíni og geta eflt ónæmiskerfið og hjálpað til við að berjast gegn hálsbólgu, kvefi, hósta og bakteríum og sveppasýkingum. Grilluð kjúklingasamloka með ferskum blómum Lykilatriðið í að gera þessar samlokur gómsætar er að grilla kjúklingalæri eða lundir og grilla grænmetið líka. Blanda þessu svo saman við majónes, pestó og tómata – og bera fram á mjúku focaccia- brauði eða grilluðu súrdeigsbrauði. Framreiðið með ætum blómum eða túnfíflum. › 1 búnt fífill eða önnur æt blóm, til dæmis skjaldflétta › ½ agúrka, sneidd › 1 tómatur, skorinn › 2 msk. balsamicedik › 2 msk. jómfrúarólífuolía › 1 msk. hlynsíróp › 1 tsk. dijon-sinnep › safi úr 1/2 appelsínu › mulinn pipar eftir smekk Byrjið á dressingunni með því að blanda öllu hráefninu saman nema olíunni í litla skál. Blandið þessu vel saman og bætið síðan ólífuolíunni saman við. Hrærið aftur í blöndunni. Blandið salatinu saman við kjúkling og grænmeti og toppið með agúrku og blómum. Setjið ögn af dressingu yfir áður en borið er fram. Njótið! Hvenær sem við grillum finnst mér gaman að bæta við nokkrum ferskum ávöxtum á grillið. Ég hef grillað ananas, epli og ferskjur, sem er mjög einfalt að útbúa. Ég krydda ferskjurnar með uppáhalds kryddblöndunni minni og bæti við ögn af sykri. Gott að njóta með vanilluís eða grískri jógúrt. Kryddaðar grillaðar ferskjur með rósmarín › 6 ferskjur skornar í helminga › 2 msk. 5-krydd eða ferskt rósmarín › 2 msk. sykur › 1 msk. ólífuolía Hitið grillið. Bætið við 5-krydd (eða rósmarín), ferskjum, sykri og ólífuolíu í stóra skál. Blandið saman þar til þær eru er vel hjúpaðar. Setjið ferskjur á grillið, snúið þeim niður í um það bil 3 til 5 mínútur. Snúið þeim við og grillið í um það bil 1 mínútu. Ferskjurnar ættu að vera með grillrendur, en samt svolítið stífar viðkomu til að halda löguninni. Takið ferskjurnar af grillinu og njótið – jafnvel með ís. Bjarni Gunnar Kristinsson Matreiðslumeistari Litlu-Reykir

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.