Bændablaðið - 12.09.2019, Side 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 2019 49
Nú fer að kólna og þá er gott að
eiga eina hlýja og létta peysu að
grípa í.
Peysan er prjónað ofan frá og
niður.
Stærðir:
S (M) L (XL) XXL (XXXL)
Yfirvídd: 104 (112) 120 (132) 142 (154) cm
Garn: Drops Brushed Alpaca Silk (fæst í
Handverkskúnst)
- Skógargrænn nr 11: 100 (100) 100 (125) 125 (150) g
- Grár nr 03: 125 (125) 150 (150) 175 (175) g
- Ljósgrár nr 02: 125 (125) 125 (150) 150 (175) g
Prjónar: Sokka- og hringprjónar 40 og 80 cm, nr
6 og 8
Prjónfesta: 10,5 lykkjur x 14 umferðir í sléttu prjóni
með 3 þráðum = 10 x 10 cm.
Rendur-1: Allar rendurnar eru prjónaðar með 3
þráðum.
Rönd 1: 7 (7) 8 (8) 8 (9) cm með 2 þráðum af
skógargrænum og 1 gráum.
Rönd 2: 14 (14) 16 (16) 16 (18) cm með 2 þráðum af
gráum og 1 skógargrænum.
Rönd 3: 7 (7) 8 (8) 8 (9) cm með 1 þræði af
skógargrænum, 1 af gráum, 1 af ljósgráum.
Rönd 4: 7 (7) 8 (8) 8 (9) cm með 2 þráðum af gráum
og 1 af ljósgráum.
Rönd 57 (7) 8 (8) 8 (9) cm með 1 þræði af gráum
og 2 af ljósgráum.
Rönd 6: Prjónið með 3 þráðum af ljósgráum til loka.
Rendur-2 (á við um ermar): Allar rendurnar eru
prjónaðar með 3 þráðum.
Haldið áfram með Rendur-1, þar til 3. röndin hefur
verið prjónuð til loka.
Ermin mælist nú ca 8 (6) 8 (6) 4 (6) cm frá skiptingu.
Prjónið nú rendur þannig:
Rönd 4: 13 (13) 12 (12) 12 (11) cm með 2 þráðum af
gráum og 1 ljósgráum.
Rönd 5: 13 (13) 12 (12) 12 (11) cm með 1 þræði af
gráum og 2 af ljósgráum.
Rönd 6: Prjónið með 3 þráðum ljós grár til loka.
Laskalína Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við
prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og
bakstykkis og erma (= 8 lykkjum fleiri í umferð).
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir að prjónamerki, sláið
uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki
situr mitt á milli þessa lykkja), sláið uppá prjóninn.
Endurtakið við hver samskeyti. Í næstu umferð er
uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki
myndist gat.
Úrtaka (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju
hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til
3 lykkjur eru eftir að prjónamerki, prjónið 2 lykkjur
slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki
situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða
eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið
óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Aðferð: Fitjið upp 48 (52) 52 (52) 56 (56) lykkjur
á hringprjón nr 6 með 3 þráðum skógargrænum.
Tengið í hring og setjð prjónamerki sem markar
upphaf umferðar. Prjónið 1 umferð slétt og síðan
stroff (2 slétt, 2 brugðið) 4 cm.
Berustykki: Prjónið 1 umferð slétt og aukið er
út um 10 (10) 10 (14) 18 (22) lykkjur jafnt yfir
umferðina = 58 (62) 62 (66) 74 (78) lykkjur. Setjið
nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: eftir 10 (11) 11
(12) 14 (15) lykkjur (= hálft bakstykki), eftir 8 lykkjur
(= ermi), eftir 21 (23) 23 (25) 29 (31) lykkjur (=
framstykki), eftir 8 lykkjur (= ermi), nú eru 11 (12)
12 (13) 15 (16) lykkjur eftir að upphafsprjónamerki
(= hálft bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón nr
8. Prjónið áfram slétt og prjónið Rendur-1 – sjá
útskýringu að ofan. Jafnframt í fyrstu umferð byrjar
útaukning fyrir laskalínu – sjá útskýringu að ofan.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12 (13)
15 (16) 16 (17) sinnum = 154 (166) 182 (194) 202
(214) lykkjur. Haldið síðan áfram með útaukningu í
annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki (ekki
er aukið út yfir ermar = 4 lykkjur fleiri í umferð) 2 (2)
2 (2) 3 (4) sinnum til viðbótar = 162 (174) 190 (202)
214 (230) lykkjur. Prjónið án útaukninga út þar til
stykkið mælist 21 (23) 25 (27) 29 (31) cm frá stroffi
á hálsmáli. Skipting bols og erma: Prjónið 24 (26) 28
(30) 33 (36) lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 32
(34) 38 (40) 40 (42) lykkjur á band fyrir ermi og fitjið
upp 6 (6) 6 (8) 8 (8) lykkjur prjónið næstu 49 (53)
57 (61) 67 (73) lykkjur (framstykki), setjið næstu 32
(34) 38 (40) 40 (42) lykkjur á band fyrir ermi og fitjið
upp 6 (6) 6 (8) 8 (8) lykkjur, prjónið 25 (27) 29 (31)
34 (37) lykkjur (hálft bakstykki). Héðan ern ú mælt.
Fram- og bakstykki = 110 (118) 126 (138) 150 (162)
lykkjur. Haldið áfram með Rendur-1 þar til stykkið
mælist 20 cm, setjið lykkjur af framstykki á þráð =
55 (59) 63 (69) 75 (81) lykkjur.
Prjónið síðan fram og til baka yfir 55 (59) 63 (69) 75
(81) lykkjur á bakstykki. Fitjið upp í lok næstu tveggja
umferða 1 lykkju = kantlykkja. Kantlykkjurnar eru
prjónaðar í slétt í öllum umferðurm. Þegar stykkið
mælist 31 cm er aukið út um 7 (7) 11 (13) 15 (17)
lykkjur jafnt yfir umferð = 64 (68) 76 (84) 92 (100)
lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón nr 6. Prjónið stroff þannig: 1
kantlykkja, (2 slétt, 2 brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir
af umferð, 2 slétt, 1 kantlykkja slétt. Þegar stroffið
mælist 4 cm, er fellt af með sléttum og brugðnum
lykkjum Klippið frá og festið enda. Bakstykkið mælist
ca 60 (62) 64 (66) 68 (70) cm frá öxl og niður.
Setjið til baka 55 (59) 63 (69) 75 (81) lykkjur af
bandi á hringprjón nr 8. Prjónið með 3 þráðum af
ljósgráum til loka. Prjónið 2 umferðir slétt prjón þar
sem aukið er út um 7 (7) 11 (13) 15 (17) lykkjur jafnt
yfir, jafnframt er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok þessa 2ja
umferða fyrir kantlykkjur = 64 (68) 76 (84) 92 (100)
lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón nr 6. Prjónið nú stroff
þannig: kantlykkja slétt, (2 slétt, 2 brugðið) þar til 3
lykkjur eru eftir af umferð, 2 slétt, kantlykkja slétt.
Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum og
brugðnum lykkjum. Saumið e.t.v. saman op í hvorri
hlið. Framstykki er ca 10 cm styttra en bakstykki og
mælist ca 50 (52) 54 (56) 58 (60) cm frá öxl og niður.
Ermi: Setjið til baka 32 (34) 38 (40) 40 (42) lykkjur
af bandi á hringprjón/sokkaprjóna nr 8 og prjónið
að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 (6) 6 (8) 8
(8) lykkjum sem fitjaðar voru upp á bol = 38 (40) 44
(48) 48 (50) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýju
lykkjurnar. Prjónið samkvæmt rendur-2, JAFNFRAMT
þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir
ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4½
(3½) 3 (2) 2 (2) cm millibili alls 7 (8) 9 (11)-10-11
sinnum = 24 (24) 26 (26) 28 (28) lykkjur. Þegar ermin
mælist 38 (36) 35 (33) 31 (30) cm er aukið út um 4 (4)
6 (6) 8 (8) lykkjur jafnt yfir. Skiptið yfir á sokkaprjóna
nr 6 og prjónið stroff (2 slétt, 2 brugðið) 4 cm. Fellið
af með sléttum og brugðnum lykkjum. Prjónið hina
ermina alveg eins.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Blæbrigði skógarins
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
1 2 9 4
9 7 5 8
3 5 6 8
4 3 5
3 9 6 1 2 7
2 9 8
6 8 7 4
6 5 1 3
7 1 2 9
Þyngst
9 3 1
1 8
4 8 9 7
9 4 2 7 5 3
3 7
7 8 1 5 4 6
3 6 8 2
7 4
4 2 9
2 4 6
9
8
6 4 8
9 3 7
5 1 2
1
4
7 9 5
9 8 6 2 4
1
3 5
2 7
6 1 9
5 4
7 4
2
2 4 9 1 8
Gert ótrúlega margt klikkað
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Emilía Alís er 11 ára ljón frá Höfn
í Hornafirði.
Nafn: Emilía Alís Karlsdóttir.
Aldur: 11 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Höfn.
Skóli: Grunnskóli Hornafjarðar.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Stærðfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Gestur.
Uppáhaldsmatur: Píta.
Uppáhaldshljómsveit: Margar.
Uppáhaldskvikmynd: Pirates of the
Carribean.
Fyrsta minning þín? Ég á svo
margar góðar minningar, man ekki
eftir þeirri fyrstu.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Ég hef ekki tekið
ákvörðun um það ennþá.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Það er ótrúlega margt.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Ég fór á nokkur fótboltamót.