Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Síða 11

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Síða 11
auðir. Tillögurnar í heild fara hér á eftir: 1. Fundurinn samþykkir að taka lán að upphæð kr. 30 milljónir hjá Landsbréfum h.f. Lánið verður til 8 ára án affalla með breytilegum vöxtum. Lán þetta á að nota til greiðslu skuldaskilasamninga vegna Glits h.f. 2. Stjórn Ö.B.Í. beinir þeim ein- dregnu tilmælum til stjómar Hússjóðs Öryrkjabandalagsins að Hússjóður gefi veðleyfi í góðri húseign eða húseignum á höfuðborgarsvæðinu fyrir skuldabréfaláni til 8 ára að upphæð kr. 30 millj. 3. Jafnframt samþykkir stjórn Ö.B.Í. að skiptihlutföllum tekna frá Islenskri getspá verði brey tt þannig að til Hússjóðs Öryrkjabandalagsins gangi 68% tekna, en 32% til Öryrkjabandalagsins sjálfs. Þetta hlutfall skal endurskoða árlega með tilliti til þeirra fjárframlaga sem leitað verður eftir úr Framkvæmdasjóði fatlaðra og frá Alþingi á fjárlögum hverju sinni til greiðslu stofnkostnaðar (láns) vegna Glits h.f. 4. Stjóm Ö.B.Í. felur formanni, stjómarmönnum sínum og lögmanni að afskrifa núverandi hlutafé í Glit h.f., en leggja fram áðurnefnt lánsfé sem nýtt hlutafé í fyrirtækið enda verði fé þetta notað til skuldaskila. 5. Formanni og stjórnarmönnum Ö.B.Í. í Glit h.f. er falið að leita eftir áframhaldandi þátttöku Reykjavíkur- borgar í rekstri Glits h.f., og reynt verði á vilja borgarinnar til þess að leggja fram nýtt fé í fyrirtækið. Einnig verðileitað heimildarFélagsmálaráðu- neytisins til þess að gera fyrirtækið Glit h.f. eða hluta þess, að vernduðum vinnustað, eða að öðrum kosti fá samþykki ráðuneytisins til þess að sameina hluta af starfsemi þess og Örtækni, sem nyti þá fjárframlaga á fjárlögum eins og aðrir verndaðir vinnustaðir. 6. Framanskráðartillögureru háðar því að tilskilinn fjöldi kröfuhafa samþykki nauðarsamninga. á var kynnt fjárhagsáætlun bandalagsins fyrir árið 1992, en niðurstöðutölur hennar nema 29,4 millj. Hæstu liðir hennar eru: Laun 8,8 m., styrkir 5,47 m., útgáfa Fréttabréfs 3,8 m., erlend samskipti 1,5 m., fundakostnaður 1,5 m., Vinnustofur Ö.B.Í. 1,2 m., Starfsþjálfun fatlaðra 1,1 m., samstarf Ö.B.I. og Þroskahjálpar 1 m., Styrktarsjóður Odds Ólafssonar 1 m., auglýsinga- og kynningarkostnaður 0,9 m. Greintvarfráþvííþessusamhengi að formaður mundi verða í 50% starfi hjá bandalaginu frá og með mán- aðamótum feb.—marz. Þriðja dagskrármálið var um húsnæðismál Starfsþjálfunarfatlaðra, en mjög brýnt er orðið að leysa þann vanda með einhverjum hætti. Koma þar aðallega tveir kostir til greina, annað hvort að útvega rýmra og stærra húsnæði hér í Hátúnshúsunum eða þá að leitaeftir því við Framkvæmdasjóð fatlaðra að veita fjármagn til hús- næðiskaupa. Svohljóðandi samþykkt var gerð einróma: Stjórn Ö.B.I. beinir þeim eindregnu tilmælum til stjómar Hússjóðs Öryrkjabandalagsins að hún vinni að því að lausn verði fundin á húsnæðisvanda Starfsþjálfunar fatl- aðra. Undir liðnum önnur mál kynnti Elísabet Möller bækling Geðvernd- arfélags Islands: Aðeins eitt líf og þakkaði Ö.B.I. veittan stuðning. Kynnt var bréf frá Myndbæ h.f., þar sem greint var frá gerð fræðslu- myndar um félög á Islandi. Þar verða m.a. kynnt átta félagasamtök, ólíkrar gerðar og kostar aðild að myndinni kr. 200 þús. án vsk. Framkvæmdaráði falið að vinna að málinu, ef vænlegt þykir. Asgerður Ingimarsdóttir greindi frá því að Málbjörg — félag stamara — hefði fengið funda- og nám- skeiðsaðstöðu hjá bandalaginu, gat um gjöf Arnþórs Hreinssonar til bandalagins — málverk sem prýðir vegg fundarsalarins. Hafdís Hannesdóttir kvað starfs- hóp, sem hún var tilnefnd í af hálfu Öryrkjabandalagsins hafa skilað af sér. Niðurstaðan er ítarlegt nefndarálit um fyrirkomulag á stuðningsþjónustu fyrirfötluð börnogfjölskyldurþeirra. H.S. Hlerað í hornum Prentvillupúkinn leikur Fréttabréfið grátt sem annað ritað mál. í ágætri grein eða frásögn Sigríðar Ingimarsdóttur um jól fyrrum var um skreytingu jólatrés talað og þar stóð orðrétt: „Víðast í sveitinni voru heimagerð jólatré, sem voru vafin kræklingi“. Varnema von þóSigríðurspyrði ritstjórahvortkræklingurværi algengtjólaskraut á Austfjörðum. * Og þessa setningu heyrðum við í sjónvarpinu: „Flugum verður ekki fjölgað yfir Atlantshafið að svo stöddu“. * Mætur þingfréttaritari var að lýsa húsakynnum Alþingis í útvarpi. Hann er sagður hafa lýst svo: „A sal Neðri deildar og Sameinaðs Alþingis eru einar dyr. Það eru aðaldyr". * Maður nokkur kom óðamála á skrifstofuna hér og kvaðst hvergi geta fundið bæturnar sínar. Kom hann með margar bankabækur frá hinum ýmsu bönkum máli sínu til sönnunar, flestar þó ónýtar og þar með gataðar. Þegar Ásgerði framkvæmdastjóra var sagt frá, sagði hún: „Nú hann skiptir bara um banka eins og sumir skipta um lækna. Maður gatar bara ekki læknana“. * Kyndug þótti fyrirsögn í færeysku blaði að loknum knattspymuleik milli íslendinga og Færeyinga, sem þeir síðamefndu töpuðu og lýst var svo: Verjan sprakk og allt lak inn. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.