Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 20
Vilhj álmur B. Vilhj álmsson fr. kv. stj. í slenzkrar getspár:
Lottó á Islandi 5 ára
Nú eru fimm ár liðin síðan lottóið
hófst á íslandi, en fyrsti lottó-
miðinn var seldur laugardaginn 22.
nóvember 1986. Steingrímur Her-
mannsson þáverandi forsætisráðherra
keypti fyrsta miðann í Miklagarði við
Sund í Reykjavík.
Sennilega verður nokkuð vanda-
samt að finna alla enda eða þræði í
sögu lottósins, en íþróttahreyfingin
hafði áður aflað sér heimildar til
íþrótta- og talnagetrauna. Einnig hafði
nokkur undirbúningsvinna verið
framkvæmd og upplýsingar frá ýms-
um löndum í Evrópu voru til skoðunar
þegar Öryrkjabandalagið óskaði
heimildar til stofnunar bókstafaget-
rauna. Var málið til meðferðar á
Alþingi og eftir talsverðar umræður
var málið dregið til baka um sinn og
að frumkvæði Steingríms Hermanns-
sonar var haft samband við íþrótta-
hreyfinguna og Öryrkjabandalagið um
hvort þessir aðilar gætu haft samstarf
um talnagetraunir.
Eins og fram kemur í fyrstu
ársskýrslu Islenskrar getspár voru
fulltrúar tilnefndir í viðræðunefnd frá
Í.S.Í., Ö.B.Í., U.M.F.Í. og íþróttanefnd
ríkisins.
Fyrsti fundur í nefndinni var hald-
inn 20. ágúst 1985 í íþróttamiðstöðinni
í Laugardal. Nefndin tilnefndi þá
Sigurð Magnússon, Vilhjálm Vil-
hjálmsson og Sigurð Geirdal í
starfshóp. Um miðjan október lauk
aðild fulltrúa íþróttanefndar ríkisins
að nefndinni. Snemma í viðræðunum
náðist samkomulag um eignarhlut-
deild og í framhaldi af því var sett á
laggirnar undirbúningsstjóm skipuð
eftirtöldum mönnum:
Frá Í.S.Í.: Alfreð Þorsteinsson og
ÞórðurÞorkelsson. Til vara: Sigurður
Magnússon og Hannes Þ. Sigurðsson.
Frá Ö.B.Í.: Vilhjálmur Vilhjálmsson
og Arinbjörn Kolbeinsson. Til vara:
OddurÓlafsson.FráU.M.F.Í.: Haukur
Hafsteinsson og Sigurður Geirdal.
Þessi undirbúningsstjóm starfaði
síðan fram að stofnfundi félagsins og
hafði forgöngu um allan nauðsynlegan
undirbúning.
Vilhjáímur B. Vilhjálmsson.
r
Imars var Vilhjálmur Vilhjálmsson
ráðinn til starfa á vegum stjórnar-
innar og í maí var leitað til Jóns H.
Magnússonar um að taka þátt í undir-
búningsstarfi sem sérfræðingur í
tölvu- og rekstrarfræðum.
I fyrstu var starf þeirra einkum í
því fólgið að gera samanburð á tölvu-
væddum sölukerfum (on-line) og
öðrum sölukerfum (off-line), sem
notuð hafa verið fyrir lottó, m.a. fóru
þeir saman til Bandaríkjanna og
heimsóttu þá nokkur fyrirtæki á þessu
sviði.
Fulltrúar frá Syntec og frá tíma-
ritinu Public Gaming komu til fundar
við Jón og Vilhjálm í Washington og
veittu fróðlegar upplýsingar. Einnig
voru bækistöðvar Maryland Lottery
og Washington D.C. Lottery heim-
sóttar.
Helgi Agústsson sendifulltrúi við
íslenska sendiráðið í Washington D.C.
tók þátt í viðræðum og heimsóknum
til fyrirtækjanna og reyndist íslenskri
getspá hin mesta hjálparhella.
Vilhjálmur Vilhjálmsson heim-
sótti AB Tipstjánst í Svíþjóð og OY
Veikkaus íFinnlandi og Jón Hjaltalín
Magnússon fór til AB Tipstjanst og
ræddieinnigviðfulltrúafráESSELTE
AB í Svíþjóð í sömu ferð. Sigurður
Magnússon og Vilhjálmur sóttu ráð-
stefnu og sýningu til West Palm Beach
í Florída og síðan fór Vilhjálmur til
Delaware og heimsótti fyrirtækið
General Instruments í sömu ferð.
Mikil vinna var lögð í úrvinnslu
þeirra upplýsinga sem aflað hafði
verið í þessum ferðum, enda var undir-
búningur þessi nauðsy nlegur og mark-
aði þástefnu sem leiddi til samþykktar
um kaup á tölvuvæddu sölukerfi.
A stofnfundi íslenskrar getspár 8.
júlí 1986 var samþykkt að
stofnframlag hins nýja félags yrði kr.
1.200.000, sem skiptist eftir eigna-
hlutföllum aðildarfélaganna þannig:
Í.S.Í. 46,67% kr. 560.040.00
Ö.B.Í. 40,00% kr. 480.000.00
U.M.F.Í. 13,33% kr. 159.960.00