Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 21

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 21
Fyrsta stjórn íslenskrar getspár var skipuð: Frá Í.S.Í.: Alfreð Þor- steinsson og Þórður Þorkelsson. Til vara: Jón Hjaltalín Magnússon og Hannes Þ. Sigurðsson. Frá O.B.Í.: Arinbjörn Kolbeinsson og Björn Ástmundsson. Til vara: Olöf Ríkarðs- dóttir og Magnús Kristinsson. Frá U.M.F.Í.: Haukur Hafsteinsson. Eins og fram kemur hér að framan var aðdragandinn að stofnun Islenskr- ar getspár ekki langur. Hins vegar kom fljótt fram vilji til að ná sam- komulagi og unnu framangreindir aðilar af mikilli alúð að því markmiði. Þegar lottóið hófst á íslandi voru ekki margir landsmenn vissir um hvemig þessi leikur væri. Til dæmis kom fram í upphafi ákveðin tregða á sölustöðum að fá lottósölukassa en strax eftir fyrstu tvær vikumar varð gjörbrey ting á viðhorfi manna og fleiri aðilar óskuðu eftir að fá sölukassa en hægt var að sinna. Og enn er það svo að menn eru á biðlista eftir sölukassa. Hins vegar má segja að þéttleiki kassanna með að meðaltali 1400 íbúa á bak við hvern kassa sé mjög í sam- ræmi við það sem gert er í öðrum löndum. Fyrir allflesta landsmenn er stutt í næsta sölustað. Eins og margir landsmenn muna þá varð lottóið undireins vinsælt og náði til fólksins, enda má segja að lottóleikurinn sé bæði góð skemmtun og eins er ágóða varið til nytsamra málefna. Skoðanakannanir benda til að u.þ.b. 90% landsmanna á aldrinum 16—90 ára hafi einhvem tímann tekið þátt í lottói. Með lottóinu komu fram ýmsar nýjungar sem fólki líkar vel. Má í því sambandi nefna að fólk getur sjálft valið sér tölur. Margir velja afmælis- daga vina og ættingja. Bein útsending á útdrætti í sjónvarpi gerir það að verkum að á föstum tíma á hverjum laugardegi er hægt að fylgjast með útdrættinum og þar með fá upplýsing- ar um hvort maður hafi unnið eða ekki. Þar sem hver röð kostar aðeins kr. 40, er algengt að menn kaupi nokkrar raðir og stilli þátttöku sinni í hóf eftir efnum og ástæðum hverju sinni eða einfaldlega þegar hentar hverjum viðskiptavini fyrir sig. Einn kostur til viðbótar sem nefna má, er að með tölvuvæddu sölukerfi er hægt að kaupa lottómiða þar til 15 mínútum fyrir auglýstan útdráttartíma. Opnunartími sölukerfisins er einnig mjög rúmur eða frá kl. 9:00 á morgnana til 23:30 á kvöldin. Á þessum tíma er einnig hægt að sækja vinninga sem eru allt að kr. 15.000, en vinninga þar fyrir ofan þarf að fá greidda frá skrifstofu íslenskrar getspár í Laugardalnum. Nú 1. mars 1992, þegarrúmlega 5 ár eru liðin frá því að lottóið hóf göngu sína er fróðlegt að athuga hvað margir hafa hlotið vinninga: 1. vinningur — 5 réttar tölur: 484 vinningshafar. 2. vinningur — 4 réttar tölur+bónustala: 983 vinningshafar. 3. vinningur — 4 réttar tölur: 66.529 vinningshafar. 4. vinningur — 3 réttar tölur: 1.831.380 vinningshafar. Eins og fram kemur eru margir vinningshafar í lottóinu en vinning- arnir dreifast einnig um landið og er það í samræmi við þá staðreynd að þátttakaeralmennog dreifist hlutfalls- lega jafnt á milli landshluta. Reynsla síðastliðinna 5 ára hefur verið dýrmæt og er von undirritaðs að vinsældir leiksins haldi áfram næstu árin, því þörfin fyrir þróttmikla starfsemi eignaraðila er síst minni nú en áður. Vilhjálmur Vilhjálmsson. Lottó-molar frá liðinni tíð Fyrir tveim vikum fékk einstæð móðir með tvö börn norður á Akureyri tæpar sjö milljónir króna. Miðann keypti hún þar sem hún vinnur. Það var ekki fyrr en hún mætti í vinnuna á mánudagsmorgni, að hún komst að því með aðstoð vinnufélaga að hún hefði ein fengið fimm rétta. * Laugardag einn keypti maður sér tíu raða sjálfsvalsmiða í söluturni. Hann fór yfir miðann og fann þrjár réttar. Það var svo mánuði síðar, að hann loks dreif sig á sölustað og lét renna miðanum í lottó-kassa. Honum til ómældrar ánægju sá hann að hann var með fimm réttar í stað þriggja og þar með rúmum tveimur milljónum ríkari. Honum brá í brún þegar hann uppgötvaði, að hann hafði geymt rúmar tvær milljónir í veskinu sínu í heilan mánuð. * Fyrirnokkru urðu hjón í Vesturbænum tæpum þremurmilljónum ríkari, en sérstætt við það var að þau voru búin að geyma seðilinn í skrifborði heima h já sér í tæpa fjóra mánuði án þess að nokkurn grunaði, að hann væri þriggja milljóna virði. * Á dögunum kom kona ein inn á sölustað á Egilsstöðum til að sækja vinning fyrirfjórarréttar. En viti menn. Það voru ekki barafjórartölur, heldurfimm og þ.a.l. fyrsti vinningur. Konan þrætti fyrir fyrst, en eftir að kassinn hafði staðfest að miðinn væri virði 2,3 milljóna, þá snarbrá konunni. Það fyrsta sem hún gerði var að hringja í eiginmanninn, sem var á leið til Borgarfjarðar eystri á bfl. Hún bað hann að stoppa bílinn áður en hún segði honum fréttirnar góðu, enda eins gott þar sem mikil hálka var á veginum. sje Svo er sagan af lottóspilara, sem kvartaði sáran að loknum útdrætti yfir að hann fengi aldrei neitt. Mánudaginn næsta lenti hann niður í Kringlu og þegar hann gekk framhjá Happahúsinu mundi hann eftir margra vikna miða, sem hann hafði keypt og geymt í veskinu síðan. Hann lét renna miðanum í gegn og í ljós kom að hann hafði fengið fimm réttar í það skiptið og var þar með orðinn tæpum 2,8 milljónum rfkari. Þessi brot úr sjónvarpinu lét Vilhjálmur fylgja með sem fáein dæmi af mörgum um óvæntan glaöning fólks í lottóinu. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.