Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 22

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 22
Dr. Ásgeir B. Ellertsson yfirlæknir: GRENSÁSDEILD Endurhæfingar- og taugadeild Borgarspítalans 1955 tók Hjúkrunarspítali til starfa í Heilsuvemdarstöðinni í Reykjavík. Starfsemin var aðallega bundin við smitsjúkdóma og almennar lyflækn- ingar. í des. 1967 flutti þessi starfsemi í nýbyggðan Borgarspítalann í Foss- vogi og varð þar lyflækningadeild spítalans. I Heilsuverndarstöðinni hófst þá rekstur hjúkrunar- og endur- hæfingardeildar.erásamt sjúkraþjáll'- unareiningu í tumi Borgarspítalans myndaði fyrsta vísi að núverandi endurhæfinga- og taugadeild Borg- arspítalans. Deildin tók formlega til starfa í byrjun árs 1973. Frumkvæðið að stofnun hennar áttu þeir Haukur Benediktsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Borgarspítalans og dr. Jón heitinn Sigurðsson, fyrrum borgarlæknir. Innan ramma deildar- innar fer nú fram læknisfræðileg endurhæfing bæði fyrir bráðveika og slasaða svo og fyrir þá, sem hafa lang- vinna sjúkdóma. Starfsemin fer aðallega fram á þremur stöðum: Grensásdeild er nefnd eftir stað- setningu sinni uppi á Grensásnum í Reykjavík. Utsýnið er fagurt til allra átta enda er Grensásinn jafnhár Öskjuhlíðinni. Þama eru endurhæf- ingar-, gigtar- og taugadeildir með 60 rúm og 10 dagvistunarpláss. Helm- ingur rúma er rekinn á 5 daga grunni, þannig að sjúklingar fara heim um helgar. Hinn hluti sjúklingaerófærtil heimferðar vegna sjúkdómsástands eða fötlunar. Á Grensásdeild er einnig taugarannsóknarstofa og einingar í iðju-, sjúkra- og talþjálfun og taugasálfræði. 1985 var tekin í notkun meðferðarlaug á staðnum, sem er 10x17 metra löng og með tveimur heitum pottum og ljósabekkjum. I Borgarspítalanum í Fossvogi eru meðferðareiningar í sjúkra- og iðjuþjálfun, sem veita hinum ýmsu deildum spítalans þjónustu. Þeir félagsráðgjafar Borgarspítalans, sem annast þjónustu við vefrænar deildir Ásgeir B. Ellertsson spítalans ti I heyra ennfremur deildinni. Á gamla staðnum í Heilsuvemdar- stöðinni við Barónsstíg er 24ra rúma langvistunardeild. Sjúklingar Grenásdeildar eru aðallega með einkenni frá heila og taugakerfi svo og með liða- og stoðkerfisvandamál. Helstu sjúk- dómsgreiningar eru: Heilablóðföll, Parkinsonveiki, mænusigg (MS) og heila- og mænuskaðar. Beinbrot eru algeng, ástand eftir ísetningu gerviliða, slitgigt og liðagigt og afleiðingar fjöláverka. Auk endurhæfmgarsjúklinga koma sjúklingar á deildina til rann- sóknar og læknismeðferðar. Má þar nefna verkjasjúklinga sem oft tilheyra bæði tauga- og stoðkerfissjúklingum. Hópur bakverkjasjúklinga er þama stærstur. Á seinni árum hefur hlutur taugasjúklinga vaxið mjög í starfsemi deildarinnar ásamtþjónustu við aðrar deildir á því sviði. I byrjun árs 1991 tók deildin t.d. að sér að sinna bráða- vöktum í taugalækningum þá daga, sem spítalinn er á vakt. Lamaðir sjúkl- ingar komast þannig strax í rannsókn, meðferð og endurhæfmgu. Hefurþetta þegar reynst vel, er nýjung hérlendis. Heilablóðfallssjúklingar komast t.d. þannig fljótt í hendur starfsfólks, sem er sérmenntað í endurhæfingu. Flýtir þetta bata og minnkar fötlun þessa stóra hóps sjúklinga, en um 2 Islend- ingar fá slag á degi hverjum. B æklunar- og taugaskurðlækning- ar eru stundaðar við Borgarspítalann. Vegna þessa og með tilkomu Grensás- deildar hefur þróunin orðið sú, að allir mænuskaðar á landinu hafa kom- ið til spítalans og bráðavandanum og endurhæfingunni verið sinnt þar. Þessu hefur verið öðruvísi farið í nágrannalöndum okkar, þar sem sjúklingar hafa í beinu framhaldi af slysinu verið fluttir á skurð- lækningadeildir og löngu síðar inn á endurhæfingarstofnanir, oft með legusár, þvagfærasýkingar og kreppur, sem hafa hindrað endurhæf- inguna. Fyrir nokkrum árum tók þó til starfa mænuskaðaeining á Sahl- grenska sjúkrahúsinu í Gautaborg, þar sem meðferð er sinnt frá byrjun skaða til útskriftar. Sem betur fer er hópur mænuskaddaðra ekki stór, 3—4 á ári. Um 40 hjólastólsbundnir þverlamaðir einstaklingar lifa nú hefðbundnu lífi úti í samfélaginu eftir að hafa fengið endurhæfingu á deildinni. Erfið og tímafrek er endurhæfing heilaskaddaðra. Einstaka sinnum verða þeir einstaklingar ekki end- urhæfðir nema að litlu marki og þurfa á langvistun að halda allt lífið. Oftast er þetta ungt fólk. Langvistunar- vandamál þeirra er nú verið að leysa með heimili, sem tekur til starfa á Reykjalundi á árinu 1992. Annað s vipað heimili fyrir ungt heilaskaddað fólk hefur verið hannað og bíður byggingar á Grensásnum. Grensásdeild er eina endurhæf- ingardeildin í Reykjavík. Ákveðin verkaskipting hefur myndast milli deildarinnar ogReykjalundar. Deildin tekur t.d. ekki að sér endurhæfingu hjarta- og lungnasjúklinga og fleiri hópa, sem Reykjalundur sinnir. Ennfremur er helmingur sjúklinga Grenásdeildar rúmliggjandi við komu á deildina. Sjúkraþjálfun Borgarspítalans sinnir ekki eingöngu inniliggjandi sjúklingum heldur einnig utan- spítalasjúklingum, sérstaklega þeim, er leitað hafa á slysamóttöku spítalans. Grensáslaug er líka nýtt fyrir göngudeildarsjúklinga, aldraða og öryrkja.

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.