Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Side 2
ÖRYRKJABANDALAGS
ÍSLANDS
2. TÖLUBLAÐ
5. ÁRGANGUR 1992
Ritsljóri og ábyrgðarmaður:
Helgi Seljan
Setning, útlit og umbrot:
Guðmundur Einarsson
Prentún:
Prentsmiðjan
Gutenberg h.f.
Ljósmynd á forsíðu:
Gísli Ragnar Gíslason.
Frá ritstjóra
Á vordögum þegar allt vaknar af lífi og gróandans gullna dýrð veitir
unað og yndi, fer vel á því að fylgja blaði úr hlaði með bjartsýni að
leiðarljósi. Margt mætagott fólk hefur sem fyrr lagt ritstjóra gott
liðsinni sitt, svo blaðið megi bera þess merki að víða er að vegferð
hugað og leiðarljósin margbreytileg, svo sem vera ber í fjölbreyttum
og margþættum málaflokki.
Of fáir eru þeir þó sem leggja hingað leið sína með efni af alls kyns
tagi sem ofurljóst er þó, að svo víða finnst á vettvangi starfsins.
Ritstjóri væntir þess t.d. að velunnarar Fréttabréfsins láti ekki ýmsa
merkisatburði framhjá okkur fara, því svo blessunarlega margt er
ævinlega að gerast að það eitt gæti fyllt fáeinar síður hverju sinni.
Alltof fá félög finna hjá sér hvöt til þess að nýta þennan vettvang til
beinna frásagna af farsælu og viðburðaríku starfi sínu.
Auðvitað er ritstjóra engin vorkunn að afla frétta af félögunum og
færa þær í letur, en frumkvæðið er alltaf kærkomnara. Fólk skyldi ekki
vanmeta það víðtæka starf sem af árvekni og áhuga er unnið úti á akri
félaganna.
Og það sem þykir sjálfsagður hlutur í heimaranni viðkomandi er
máske fréttnæm nýjung fyrir aðra, hvatning um ieið til hollra verka.
Ritstjóri veit vel að annríki daganna er ærið og stundir stopular til
skrifta, en á tíma tölvu og tækni má ekki gleyma því að geyma til
framtíðar vörður farsældar á vegferðinni. Þessu átjánda tölublaði
fylgir „átján bama faðirinn“ nú úr hlaði með nokkru stolti, þar sem
hann hefur verið fjarri vinnustað að miklu um mánaðarskeið. En þar
kemur fyrst og fremst til ljúf liðsemd svo ótalmargra sem hafa gert það
mögulegt. Fyrir það ber að þakka.
Þegar allt er yndi vorsins vafið fer vel á því að senda öllum
lesendum sumaróskir—að sumarið megi verða sólríkt úti sem inni og
varpa geislum sínum í sálir okkar — veiti endurnæring og vongleði til
verka nýrra á komandi tíð. Því alltaf verður gnótt verkefna, sem vekja
löngun til lausnar, sem ljá okkur lífsfyllingu að fást við.
Gleðilegt sumar.
H.S.
EFNISYFIRLIT
Frá ritstjóra...................................2
Áfram — með aðgát...............................3
Lungnavemd......................................4
Myndlist sem uppbygging.........................5
Fagra sólin — Saga..............................6
Tvö smáljóð.....................................7
Námskeið fyrir foreldra.........................8
Stjómarnefnd — svæðisstjómir....................9
Úr bréfi til Fréttabréfsins.....................9
Af stjórnarvettvangi...........................10
Styrkveitingar Öryrkjabandalagsins.............11
Hlerað í hornum........................ 11, 34, 37
Hugur reikar á Reykjalundi.....................12
Lausavísur á lofti gripnar.....................13
Alþjóðleg sýning og ráðstefna..................14
Litli maðurinn og þjóðfélagið..................16
„Aðeins eitt líf“..............................18
Höfðingleg dánargjöf heiðurskonu...............19
Vor í Búdapest................................20
Upplýsingar eru forsenda bóta.................22
Örbylgjan.....................................23
Svæðisstjóm málefna fatlaðra..................24
Sverrir Karlsson — Minning....................26
Vísbending Vigfúsar...........................27
Umfjöllun um kenningu Rudolf Steiner..........28
Norræn ráðstefna um atvinnu fatlaðra..........30
Norrænt gigtarár 1992.........................32
Gigtarfélag íslands...........................33
Frá Geðverndarfélagi íslands..................34
Meinleg brot úr minningargreinum..............34
Eitt lítið aðsent bréf........................35
Úthlutun Framkvæmdasjóðs fatlaðra.............36
Ljóðbrot úr umbroti...........................37
í brennidepli.................................38
Gripið niður í glögga skýrslu.................40