Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Side 5

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Side 5
skipaður fulltrúum Félags íslenskra lungnalækna. Markmiðið með þessu er að tryggja að faglegur metnaður sitji í fyrirrúmi og að stjórn hafi til að bera næga sérfræðilega þekkingu til að geta sinntfræðslustarfi og lagt mat á verðug rannsóknarverkefni. Síðast en ekki síst er líklegt að áhugi og vilji fagfólks til starfa fyrir SÍBS haldist með þessum hætti. Við teljum nauðsynlegt að fá til starfa einhvers konar fræðslufulltrúa, t.d. hjúkrunarfræðing. Slíkur starfs- maður gæti sinnt útgáfustörfum og samræmt fræðslu, auglýst fundi og ferðalög. Til þess að hrinda verkefnum Lungnavemdar í framkvæmd er lagt til að stofnaður verði sjóður til að styrkja rannsóknir á lungnasjúkdóm- um. Ávinningur af þessu fyrirkomu- lagi er augljós: í fyrsta lagi má ætla að þeir sem styrktir eru til rannsóknarverkefna í nafni Lungnaverndar geri það af krafti og áhuga. Eigið frumkvæði tryggir að viðfangsefnin hafi góðan framgang og að þau verði bæði fjölbreytt og áhugaverð, sem er beinn ávinningur fyrir SÍBS. í öðru lagi mun þessi stuðningur Lungnavemdar við sjálfstæðar rann- sóknir hvetja sérmenntað starfsfólk til að leggja sig fram um að stórauka alla fræðslustarfsemi á vegum SÍBS, svo sem með því að taka þátt í fjölmiðla- skrifum, fræðsluferðum og fundum. í þessu sambandi gegnir fræðslufulltrúi Lungnaverndar auðvitað lykilhlut- verki með því að samræma og skipuleggja starfið. Hugsjónin og hugmyndirnar að baki starfi Lungnaverndar eiga von- andi eftir að styrkja innviði SÍBS, auk þess sem stuðningur við áhugaverð verkefni verður félaginu án efa lyftistöng. Segja má að fyrsta skrefið til stofn- unar Lungnaverndar hafi verið stigið með stofnun sjóðs Odds Ólafssonar. Eins og kemur fram í skipulagsskrá sjóðsins er eitt verkefna hans einmitt að styrkja rannsóknarverkefni, fræðslu, forvarnir og endurhæfingu á sviði öndunarfærasjúkdóma. Frekari starfsemi Lungnaverndar hefur enn sem komið er ekki litið dagsins ljós. Ofangreind ályktun nefndarmanna er auðvitað aðeins leiðbeinandi fyrir stjóm SÍBS, en fljótt á litið virðist þó ekkert geta komið í veg fyrir að öflugu rannsóknar- og fræðslustarfi Lungnaverndar verði ýtt úr vör til hagsbóta fyrir skjólstæðinga SÍBS. Björn Magnússon. Þessi grein birtist áður í SIBS- fréttum. Sigurður Gunnarsson, myndlistarmaður: Myndlist sem uppbygging og endurhæfing Eg stundaði myndlistarnám í Emerson College, á Suður- Englandi frá árinu 1986 til 1990, þar afeinaönn íkennslufræðumítengslum við myndlist eða „skúlptúr". Verkin voru aðallega unnin í leir og síðan var tekin afsteypa af þeim og steypt í mismunandi efni. Tréút- skurður var einnig mikið stundaður. Mjög mikilvægur þáttur í náminu var að skoða verkin sem hópurinn hafði verið að fást við hverju sinni. Þá kom fljótlega í ljós að hver og einn hefur sinn sérstaka stíl og formskynj- un. Þó að við værum öll að vinna við sömu hugmyndina, þá komu mjög ólík form fram á sjónarsviðið. Það skipti miklu máli að gera sér vel grein fyrir því hvort hluturinn sem verið var að vinna að, væri í jafnvægi eða hvernig samræmið væri. Athugað var hvort formið sýndi þyngsli eða létt- leika, hreyfingu eðakyrrð og t.d. hvort efri hlutinn væri úr tengslum við neðri Höfundur við verk sín. hlutann. Ég minnist þess þegar við spurðum kennarann okkar hvað við ættum að gera til þess að bæta form okkar eftir mikinn vandræðagang? Þá sagði hann að við ættum að láta hendumar segja okkur hvað ætti að gera, því að þær fyndu oft hvað það væri sem þyrfti að gera. Þegar líða tók að lokum námstím- ans sáum við að persónuleiki fólks kemur í gegnum þau form sem við það vinnur hverju sinni og mjög erfitt var að brey ta fastmótuðum tilhneigingum sem komu upp aftur og aftur eins og ómeðvitað. Eftir að ég kom heim frá námi á Englandi hef ég haldið leirnámskeið á Sólheimum í Grímsnesi og á sambýl- inu í Stuðlaseli í Reykjavík, við góðar undirtektir heimilisfólksins. Ætlunin er að bjóða upp á námskeið næsta vetur fyrir fatlaða og aðra þá sem hug hafa á myndlistamámskeiði. Auglýsing varðandi námskeiðin kemur í næsta Fréttabréfi Öryrkja- bandalagsins. Sigurður Gunnarsson. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.