Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Síða 8
Kristín Jónsdóttir þroskaþjálfi:
Námskeið fyrir foreldra/
aðstandendur fatlaðra barna
Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra
átti frumkvæðið að því að hefja
námskeið fyrir foreldra og aðstand-
endur fatlaðra barna. En á þingi sam-
takanna árið 1984 var samþykkt ályktun
þess efnis að Sjálfsbjörg skyldi beita
sérfyrirforeldrafræðslu í samstarfi við
önnur hagsmunasamtök fatlaðra.
Fyrsta námskeiðið var haldið í
Ölfusborgum árið 1984 og fékk Sjálfs-
björg landssamtökin Þroskahjálp,
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og
Styrktarfélag vangefinna í lið með sér
í þetta starf sem hefur reyndar verið
stöðugt frá þessum tíma.
Fyrstu námskeiðin voru svokölluð
grunnnámskeið. A þeim var meðal
annars fjallað um tryggingamál, þjón-
ustu við fatlaðaog aðstandendurþeirra,
sálfræðilega og læknisfræðilega hlið
fötlunar. Fjallað var um þjálfun og
hjálpartæki, greiningu og kreppu-
kenningar o.fi. Námskeiðin voru stór í
sniðum. Sex fyrirlesarar voru á hverju
námskeiði. Fjölskyldan var öll á
staðnum þar sem námskeiðið var haldið
og boðið var upp ábamagæslu í umsjá
sérmenntaðs starfsfólks. Grunn-
námskeið voru haidin á ýmsum stöðum
á landinu og voru þetta helg-
arnámskeið. Námskeið voru haldin á
eftirtöldum stöðum: A Reykjanesi við
Isafjarðardjúp, á Hallormsstað, í
Þingeyjarsýslu, í Munaðarnesi í
Borgarfirði, í Safamýrarskóla í
Reykjavík, Illugastöðum í Fnjóskadal,
í Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins,
í Ragnarsseli í Keflavík, Alþýðuhús-
inu í Vestmannaeyjum, Botni í Eyja-
firði og að Löngumýri í Skagafirði.
Alls voru haldin ellefu grunnnámskeið.
Þegar ljóst var að þessi námskeið
höfðu gengið mjög vel, var talið
tímabært að þróa námskeiðahaldið
áfram. Stofnaður var vinnuhópur sem
gerði tillögur um framhald starfsins.
Gerði hópurinn tillögur um ferns konar
námskeið.
1. Grunnnámskeið.
2. Námskeið fyrir foreldra barna á
forskólaaldri (4—11 ára).
Kristín Jónsdóttir.
3. Námskeið fyrir foreldra unglinga.
4. Námskeið er varða fullorðinsárin.
r
Aðurnefnd félagasamtök hafa
haldið áfram þessu samstarfi og
námskeiðin eru nú tvíþætt, annars vegar
fyrir foreldra barna 4—11 ára og hins
vegar foreldra unglinga. Frá haustinu
1987 tók Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins við grunnnámskeiðunum enda
eru starfsmenn þar í mestum tengslum
við foreldra yngri barna. Auk þess hafa
starfsmenn þar yfirsýn yfir nýfatlanir
hjá börnum.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
hefur lánað húsnæði sitt í Reykjadal í
Mosfellsbæ fyrir námskeiðin frá 1987.
N ámskeiðin eru áfram helgamámskeið
og er ekki gert ráð fyrir bamagæslu
einsogáfyrri námskeiðum Gerterráð
fyrir 15 foreldrum á hvert námskeið.
Þátttaka foreldra í kostnaði er í lágmarki
ogferðakostnaðurergreiddurfyrirfólk
utan af landi. A þessum námskeiðum
eru fjórir fyrirlesarar, þ.e. foreldri,
læknir, sálfræðingur og félagsráðgjafi.
A námskeiði fyrir foreldra bama frá
4—11 áraereftirfarandiefnitekiðfyrir:
Fötlun, þroski og þjálfun. Námsgeta,
dagvistun og skóli. Uppeldi og
fjölskyldan. Félagsleg viðbrögð,
nánasta umhverfi o.fl.
Báða dagana eru stuttir fyrirlestrar
og hópvinna á eftir hverjum fyrirlestri.
Á námskeiði fyrir foreldra ungl-
inga eru einnig fjórir fyrirlesarar þ.e.
foreldri, læknir, sálfræðingur og fé-
lagsráðgjafi. Eftirfarandi er rætt: And-
legur og líkamlegur þroski unglings-
áranna. Tengsl fjölskyldu og umhverf-
is. Að eiga fatlaðan ungling, kyn-
þroski, kynlíf, vinátta, að flytja að
heiman o.fl.
Báða dagana eru stuttir fyrirlestrar
og hópvinna og umræður á eftir
hverjum fyrirlestri.
Auk þeirra hagsmunasamtaka
fatlaðra sem standa að námskeiðunum
hefur Öryrkjabandalag Islands og
fjárlaganefnd Alþingis, (félagsmála-
ráðuneyti) styrkt námskeiðin
fjárhagslega.
Nú hafa verið haldin sex námskeið
fyrir foreldra bama frá 4—11 ára
og sex fyrir foreldra unglinga. Öll hafa
þau verið haldin í húsnæði
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í
Reykjadal í Mosfellsbæ, en það
húsnæði er bæði notalegt og
aðgengilegt öllum auk þess að vera í
ljómandi fögm umhverfi.
Það er mikilvægt að foreldrar
fatlaðra bama hittist, kynnist og ræði
sín mál. Það er jafn mikilvægt að þetta
fari fram við aðstæður þar sem fólk
kynnist hvert öðru meir en gerist á
venjulegum samkomum. Aðstæður þar
sem foreldrar þora að segja hug sinn.
Það er nauðsynlegt að skapa grundvöll
til þess að fólk geti tekið á málum, sem
tengjastfjölskyldu fatlaðra, bæði innan
fjölskyldu og milli fjölskyldna.
Reynslan hefur sýnt að einmitt á
þessum stað hefur skapast góð vinátta
og tengsl milli fólks sem vara áfram.
Að lokum vil ég þakka öllu því
fólki sem starfað hefur með mér að
þessum námskeiðum fyrir gott og
ánægjulegt samstarf. Það er ósk mín að
námskeiðin haldi áfram að vera fastur
liður í samstarfi þessara hagsmuna-
samtaka hér eftir, því að þau hafa mælst
vel fyrir meðal þátttakenda.
Kristín Jónsdóttir, þroskaþjálfi,
fram.kv.stj. námskeiðanna.