Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Page 10

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Page 10
AF STJ ÓRNARVETTVAN GI Fundur var haldinn í stjórn Öryrkjabandalags íslands 28. apríl á venjulegum stað og tíma. Formaður hóf fund með því að óska fólki gleðilegs sumars og þakkaði vel fyrir veturinn. Þá bað formaður fundarfólk að minnast þess mæta áhugamanns um málefni fatlaðra, Sverris Karlssonar varaform. Blindrafélagsins, en hann lézt langt um aldur fram hinn 7. ap. sl. Sverrir var virkur og virtur félagsmálamaður, varm.a. oftlegafulltrúi áaðalfundum Öryrkjabandalagsins og stjórnar- maður Ö.B.I. fyrir Blindrafélagið um skeið. A vegum Blindrafélagsins var honum falinn margs konar trúnaður og þar má nefna tómstundastarf eldri borgara sem dæmi um gifturíkt starf Sverrisfyrirfélag sitt. Fundarfólkreis úr sætum í virðingarskyni við minningu hins látna drengskapar- manns, sem óx með hverri raun eins og formaður réttilega sagði. Þá þakkaði formaður góðar gjafir og hlýjar óskir frá bandalaginu, starfsfólki þess og einstökum félögum í tilefni fertugsafmælis hans í apríl. 1) Fyrsta dagskrármálið fjallaði um styrkveitingar Öryrkjabandalags- ins á þessu ári. Þeirra er getið greini- lega annars staðar í Fréttabréfinu. Hafliði Hjartarson skýrði tillögur framkvæmdaráðs um styrkveitingar til einstakrafélaga sem annarra. Hann lýsti nokkuð einstökum umsóknum og hann og Ásgerður svöruðu frekari fyrirspurnum. Nokkrar umræður urðu um einstakar styrkveitingarm.a. umsókn frá Geðverndarfélagi Akureyrar, sem Geðhjálp mælti með. Tillögur fram- kvæmdaráðs voru síðan samþykktar samhljóða. 2) Þá voru tekin fyrir tvö laga- frumvörp til umsagnar send frá Alþingi. Annað var stjórnarfrumvarp til skaðabótalaga. Hér er um afar viða- mikinn og margslunginn frumvarps- bálk að ræða með mjög veigamiklum og fjölþættum breytingum frá fyrri lögum. Jóhanni Pétri Sveinssyni hdl. hafði verið falið að semja álitsgerð, en hún var ekki tilbúin til fram- lagningar. Nokkrar umræður urðu um málið og niðurstaðan sú að formanni allsherjarnefndar Alþingis yrði skrifað og farið fram á það að afgreiðslu frumvarpsins yrði frestað til hausts sakir þess, hversu flókið það væri og margþættir hagsmunir í húfi. I framhaldi af þessari niðurstöðu, ef af yrði, gæti Öryrkjabandalag fslands fjallað frekar og betur um málið en kostur hefur gefist til nú. Hitt frumvarpið varðar umönn- unarbætur og aukinn bótarétt til þeirra einstaklinga, sem hafa barn eða börn innan tvítugs á framfæri sínu eða á heimili sínu. Flutt af Ástu R. Jóhannesdóttur. Samþ. var stuðningur við efnisatriði frv., en jafnframt skorað á ráðherra og Alþingi að gera að því gangskör að koma sem fyrst í gegn heildstæðri, nýrri tryggingalöggjöf. 3) Þriðja dagskrármálið varðaði kynningu á áliti laganefndar banda- lagsins, sem er nú að vinna að nýjum heildarlögum fyrir Ö.B.Í. og vildi fá álit stjórnarfundar á áfangaskýrslu sinni. í laganefnd eiga sæti: Haukur Þórðarson form., Jóhann Pétur Sveinsson, Helgi Seljan og Ásgerður Ingimarsdóttir, sem er ritari og starfsmaður nefndarinnar. Formaður nefndarinnar fór glögglega yfir öll helstu atriði þessara frumdraga að nýjum lögum. Allir höfðu fengið lagabreytingarnar og skýringar með þeim sendar fyrir fundinn. Ekki verður hér frá neinum efnisatriðum greint enda tilgangur umfjöllunar einkum sá, að laganefnd fengi góðar og gagnlegar tillögur í farteski sitt frá stjórnarmönnum. Fjölmargar athyglisverðar athuga- semdir komu fram og urðu miklar og líflegar umræður um einstök atriði tillagnanna. Formaður laganefndar svaraði ýmsum athugasemdum og fyrirspurnum, sem fram komu á fundinum. Almennur stuðningur var við meginefni tillagnanefndarinnar. Mjög var rædd styrking starfs úti á lands- byggðinni, þannig að Öryrkjabanda- lagið næði til sem allraflestrafötlunar- og sjúkdómshópa. Óskað var eftir því að laganefndin tæki það til sérstakrar athugunar. Mikil umræða varð einnig um uppbyggingu öryrkjasamtaka á landi hér og hver framtíðarþróun í þeim málum yrði. Sömuleiðis var rætt um gildi þess og þýðingu fyrir Öryrkjabandalagið að eiga sem öruggasta aðild að erlendum öryrkjasamtökum svo og ekki síður nefndum og ráðum erlendis þar sem að meginhluta til er um málefni fatlaðra fjallað. í lok umræðunnar taldi Vilhjálmur B. Vilhjálmsson nauðsyn bera til að kynningarrit yrði gefið út um starfsemi Ö.B.I., fyrir hvað það stæði og til hversu margra fötlunarhópa Öryrkjabandalagið tekur. Formaður lagði til að framkvæmdaráð afgreiddi fljótlega

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.