Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Síða 12

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Síða 12
Hugur reikar á Reykjalundi IFréttabréfi Öryrkjabandalagsins á síðastaári varrennt við á Reykjalundi, eins og greinin þá hét, sem fjall- aði um veru nokkurra vistmanna áReykjalundi, reynslu þeirra og viðhorf til staðarins. Nú hefur ritstjóri rennt við á Reykjalundi og dvalizt þar dulitla hríð sér til andlegrar og líkamlegrar uppbyggingar, þó helzt til að hressa upp á hryggan hrygg sinn. Hann ætti því að mæta tvíefldur til leiks og leika á als oddi út árið og ríflega það þó. En Reykjalundardvöl er reynslurík fyrir þann sem fjallar daglega um þau málefni, sem ritstjóri reynir að gera. Það er oft með óltkindum hversu sá eða sú sem bogin og beygð kemur þar inn gengur upprétt út með orku og kraft ólíkt rneiri en áður og allt yfirbragð bjartara og betra. Á Reykjalundi sannfærist maður um mátt endur- hæfingarinnar umfram allt og þýðingu hennar í heilsugæzlu þjóðarinnar. Þegar ég sat fyrir margt löngu þar sem mál þjóðar eru sögð ráðast öðru fremur þá flutti ég þingmál þessu tengd og fékk oft ágætt fólk í lið með mér. Hins vegar varð heldur lítið úr sam- þykkt þeirra tillagna, því einhvern veginn lögðust þær til hliðar í þing- skjalabunkanums.s. égmaneinkarglöggteftirvarðandi tillögu um iðjuþjálfun. Þar var tekið á ýmsu í góðu samráði við þá ágætu stétt sem þessa grein stundar, en of lítið vissu of margir um þessa þýðingarmiklu grein endurhæfingar, svo lítið jafnvel að þingbróðir minn spurði mig, hvers konar iðngrein þetta væri nú, sem ég bæri svo mjög fyrir brjósti. Ekki ætla ég að bæta hér neinu við þennan þátt þingsögu minnar enda vel til elliglapanna geymt. Hins vegar var áhugi minn á þessu vakinn vegna þeirra kynna sem ég hafði í gegnurn vini og vandamenn allt yfir í nánustu ættingja af endurhæfingu þessari og ýmsum þáttum þar. Seinna bættist persónuleg reynsla við sem farsæll þáttur í farteski að hafa. Endurhæfing er vissulega dýr fyrir samfélag, þar sem nú þykir hentast að bregða busa á loft hvarvetna til niðurskurðar. Hins vegar ætti líka að vera ljóst að hún er dýrmæt og öllu öðru frekar það að hún margborgar sig. Óteljandi vinnustundir ótalmargra er árangur sem illa verður í aurum metinn, en þau verðmæti eru gífurleg sem endurhæfingin skilar samfélaginu í beinu framlagi, færri legudögum, minni bótagreiðslum og svona utan enda. Enn verra er að slá mælistiku á það sem einstaklingurinn ávinnur sér með góðri endurhæfingu bæði tekju- og afkomulega sem og ekki síður í virkari vellíðan, meiri og betri lífsfyllingu. Þegar við heyrum af skammsýni niðurskurðar, sem bitna skal á endurhæfingunni og færri möguleikum þar, þá eigum við ekki að þegja, þá eiga ekki þær þúsundir sem notið hafa að láta kyrrt liggja. Endurhæfing er að mínu mati einhver bezti mælikvarði á það, hversu samfélagið er á vegi statt með heilbrigðis- mál sín og heilsugæzlu alla. Þegar ég var í því verki fyrir góðum áratug að endurskoða heilsugæzlulög okkar, þá reyndist mér undratregt að fá vissa endurhæfingarþætti inn í lög sem verkefni sjúkrahúsa og heilsugæzlustöðva um land allt. Ég man eftir óráðshjali um óráðsíu m.a. Því miður hefur raunin orðið sú að þrátt fyrir góð orð í lagagerð þáhefurlandsbyggðin ekki notið þessa mikilvæga þáttar sem skyldi. Hin undarlega árátta margra menntaðra stétta að forðast landsbyggðina, líta á hana sem annars flokks, kvarta og kveina yfir vöntun á þverfaglegri samvinnu — skorti á teymisvinnu o.s.frv. — sú árátta er yfirgengileg. Þar eiga alltof margir aðild að, því ti 1 hvers er góð sérmenntun, ef sí og æ þarf að funda í þverfaglegum teymum til að menntunin nýtist. Þetta er auðvitað fyrirsláttur mestan part, en fundahöld af þessu tagi á hinum ýmsu stofnunum um allt og ekkert ganga líka æði oft út í hreinar öfgar. Sú menntun er einfaldlega ekki nógu haldgóð, sem þarf á sífelldum stuðningi að halda úr öllum áttum frá öðrum. Jafnsjálfsagt er að fólk geti borið saman bækur sínar og veitt hvert öðru góð ráð og gott liðsinni. En til þess er nú einmitt hin ofurgóða samskiptatækni nútímans að ekki þurfi stöðugt að kalla fólk saman frá fjörrum stöðum til samráðs og samstarfs. En þetta var nú ónotalegur útúrdúr af góðu gefnu tilefni vel menntaðs heilbrigðis- starfsmanns — reyndar í endurhæfingargeiranum, sem kvað starfslega einangrun á landsbyggðinni slíka, að hún yrði hverjum og einum ofraun fyrr en síðar. Svona hjal kallar á slík svör sem hér að framan. Endurhæfing þarf að vera sem víðast og sem bezt. Hitt skiptir ekki minna máli að öflugar endurhæfingarstöðvar sinni öllu sem meira skiptir, m.a. endurhæfingu eftir slys, hjartaendurhæfingu og svo mætti áfram telja utan enda. Grensásdeild og Reykjalund ber því að efla sem allra mest, öllum til heilla, samfélagságóðinn ótvíræður, líðan ótalins fjölda allt önnur og betri. Samhliðaþeirri góðu starfsemi þarf svo að komaendurhæfingarþættinum inn í heilsugæzluna hvarvetna þar sem þess er kostur. Með góðri þökk fyrir gæðavist. H.S. Frá Reykjalundi.

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.