Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Page 14

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Page 14
Arnþór Helgason form Ö.B.Í.: Alþjóðleg sýning og ráðstefna um hjálpartæki Dagana 1.—5. desember síð- astliðinn var haldin í Wash- ington í Bandaríkjunum alþjóðleg ráðstefna og sýning um hjálpartæki fatlaðra. Ráðstefnan bar heitið „World Conference on Tecnhology for the Disabled“ (heimsráðstefna um tækni í þágu fatlaðra) og var skipulögð af ýmsum samtökum fatlaðra í Banda- ríkjunum, bandarískum stjórnvöldum og sambandi iðnrekenda. Skipuleggjendur ráðstefnunnar hugsuðu sér hana sem endasprett ára- tugar þess er Sameinuðu þjóðirnar helguðu málefnum fatlaðra. Einnig var markmið þeirra að vekja athy gli á lögum um málefni fatlaðra sem samþykkt voru í Bandaríkjunum í lok síðasta áratugar og munu marka tímamót í málefnum fatlaðra víða um heim. A ráðstefnunni voru flutt mörg athyglisverð erindi. Þeim mátti skipta í almenna fyrirlestra, fyrirlestra um sérstök réttindamál ákveðinna hópa, kennslufræði, sálfræði, vísindaþróun og tækni í þágu margra hópa fatlaðra. Ráðstefnuna sóttu 643 fulltrúar 48 þjóða. íslendingarnir voru tveir: Arnþór Helgason og Dóra Pálsdóttir kennari við Starfsþjálfun fatlaðra. Fjölmargir fyrirlesarar fjölluðu um almenn réttindamál fatlaðra. Þar mátti kenna fyrirlesara frá ráðuneytum, opinberum stofnunum, samtökum fatlaðra og eftirlaunaþega ásamt full- trúum atvinnurekenda sem tóku mjög virkan þátt í umræðum. Samkvæmtbandarísku lögunum um málefni fatlaðra er óheimilt að gera einhverjar þær ráðstafanir sem hindra fatlaða í að taka þátt í daglegum athöfnum manna. Sem dæmi má nefna að þjónustustofnanir hvort sem þær eru í eigu hins opinbera eða einstaklinga eiga að vera þannig úr garði gerðar að fatlaðir geti óhindrað komist leiðar sinnar og starfað þar; verslanir og fyrirtæki skulu einnig uppfylla slík skilyrði og samgöngukerfi stórborga ber að aðlaga þörfurn fatlaðra. Stórborgum hefur verið settur ákveðinn tími til stefnu og má sem dæmi nefna að New York verður að hafa gert endurbætur á sínu samgöngukerfi árið 2000. Þá hefur það vakið sérstaka athygli að lög þessi ná einnig til búnaðar sem fyrirtæki og stofnanir fjárfesta í. Má þar nefna skrifstofubúnað svo sem tölvur og hugbúnað. Töl vubúnað verður að vera hægt að aðlaga þörfum fatlaðra. Annars mismunar hann hópum fólks og útilokar suma frá sjálfsögðum störfum. Þessi lagaákvæði hafa haft í för með sér að stórframleiðendur eins og IBM leggja nú mikla vinnu í rannsóknir á hugbúnaði sem nýst getur jafnt fötluðum sem ófötluðum. Nokkurt vandamál hefur verið á þessu sviði hin myndræna þróun hugbúnaðar, en sem kunnugt er hefur þróun ritvinnslukerfa og annars hugbúnaðar orðið í æ ríkara mæli sú að framsetning hans byggir á valmyndakerfum og menn sjá nákvæmlega á skjánum hvernig texti eða önnur gögn sem þeir eru að vinna að líta út. Þetta hefur valdið ákveðnum vandræðum vegna jaðartækja sem hönnuð hafa verið fyrir blinda. Nú hillir undir lausn þessara vandamála því að þýskir og bandarískir framleiðendur eru önnum kafnir við lausn myndrænnar framsetningar. Þá hafa þessi lagaákvæði einnig orðið til þess að aðrar þjóðir sem framleiða tölvubúnað hafa áttað sig á að fatlaðir eru einnig kaupendur eins og aðrir og vinnur nú hópur japanskra vísindamanna að því að fá helstu stórfyrirtæki þar í landi á sviði tölvuframleiðslu til samstarfs. Japanir hafa hingað til ekki lagt mikið upp úr þátttöku fatlaðra á almennum vinnumarkaði. En með breyttum hugs- unarhætti og bættri tækni mun þetta ef til vill breytast. Þá eru líkur á að stærri markaður opnist fyrir hjálpartæki en nokkru sinni fyrr og gæti það lækkað verð þeirra nokkuð. r Iþessu stutta greinarkomi verður eigi farið út í einstök atriði sem fram komu í hinum ýmsu fyrirlestrum sem fulltrúar Öryrkjabandalagsins sóttu. Þó skal nefnt inngangserindi ráðstefnunnar sem fjallaði um viðhorf í garð fatlaðra. Fyrirlesarinn hélt því fram að engar framfarir yrðu í málefnum fatlaðra þrátt fyriröratækniþróun,efhugsunarháttur almennings fylgdi ekki í kjölfar tækniþróunarinnar. Þannig væri ástæðulaust að þróa fullkomin hjálpartæki sem enginn atvinnurekandi eða tryggingastofnun fengist til að fjárfesta í. Samtök fatlaðra yrðu því með stöðugri kynningu að vinna að breyttum hugsunarhætti atvinnurek- enda, almennings, yfirvalda og hinna fötluðu sjálfra sem ættu í auknum mæli að sækja í almenn úrræði í stað þess að búast við sérstakri meðhöndlun á flestum sviðum. Fyrirlesarinn nefndi einnig notkun tungumálsins sem afdrifaríkan þátt í skoðanamyndun almennings. Sem dæmi sagði hann sögu af frænku sinni sem hafði veikst og lent í hjólastól. Honum voru sögð tíðindin þannig að nú væri stúlkan dæmd til vistar í hjólastól það sem eftir lifði ævinnar. „Hvað er að heyra þetta“, sagði fyrirlesarinn. „Ætlarþá enginn að áfrýja dómnum?“ „Auðvitað verður þessum dómi ekki áfrýjað", sagði viðmælandi hans. „Stúlkukindin er dæmd til vistar í hjólastól af völdum sjúkdóms. Skilurðu það ekki maður!“ „Já, en ef hún er dæmd til vistar í hjólastól þá hlýtur einhver að hafa dæmt hana og ég krefst þess að dómnum verði áfrýjað". „Já, en stúlkan er veik, skilurðu það ekki. Þótt hún sé komin af sjúkrahúsi og farin að vinna er þetta sjúk manneskja". Þarna var mergurinn málsins, sagði fyrirlesarinn. Hann sagðist þekkja fjölda fatlaðs fólks sem er heilbrigðara en margur ófatlaður maðurinn. Til dæmis greindi hann frá því að unnusta sín væri spastísk, en algerlegaheilbrigð. (Þessi sama spastíska stúlka kom reyndar fram á skemmtun síðar um kvöldið og taldi margt mæla með fötlun sinni. Til dæmis héldi unnusti sinn að hún fengi mun oftar fullnægingu en raun bæri vitni og það gerði a.m.k. hann ánægðan).

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.