Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Síða 16

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Síða 16
Katrín Bílddal öryrki: Litli maðurinn °g þjóðfélagið r Eg verð að segja eins og Marteinn Lúter: Hér stend ég, og get ekki annað“. En að lokum stend ég upp mín vegna og vonandi líka fyrir aðra, þá sem minnamega sín í þessu þjóðfélagi og eru endalaust misrétti beittir. 1979 er ég í Myndlistarskóla Reykjavíkur, í höggmyndadeild, næ ótrúlegum árangri miðað við mínar aðstæður, að vera í raun og veru fársjúk án þess að gera mér grein fyrir því fyrr en löngu seinna. Urn vorið er ég lögð inn á Borgar- spítala og fer í uppskurð á eyra. Skorið er í burtu slæmt taugaæxli sem er aðeins annar endi á miklu stæma æxli við heila og niður háls. A þriðja degi kemur læknir til mín og segir: „Þú mátt fara heim góða mín“. Helminginn af tímanum æli ég stanslaust út af heiftarlegri heila- pressu. Á eftir þessari aðgerð byrjar mín þrautaganga fyrir alvöru. Ég held áfram að ganga til þeirra á eyrnadeildinni en er aldrei vísað til heila- og taugasérfræðings. Mannin- um mínum gefið í skyn að ég sé hrein- lega móðursjúk, þegar ég get ekki lengur rennt niður mat. Ég fer að trúa þessu sjálf að nú sé ég orðin alvarlega móðursjúk, en veit jafnframt að eitt- hvað mjög alvarlegt er að gerast með mig. Ég er að verða gjörsamlega óvíg. Ég var svo heppin að eiga systur í B andaríkj un um sem er hj úkrunarkon a (Sigríður Bílddal) hringdi í hana og reyni að útskýra fyrir henni hvernig ég sé og hún gerir sér strax grein fyrir því að þetta er hið alvarlegasta mál og eitthvað mikið að og segir mér að koma vestur sem allra fyrst. S vo ég flý að lokum land algj örlega úrvinda. Daníel Guðmundsson skrifar fyrir mig bréf til Tryggingastofnunar ríkisins, að ég sé á förum til Bandaríkjanna og honum finnist sanngirnismál að ég fái að fara þar til læknismeðferðar. Ég hef áhyggjur af því að kannski finnist ekkert að mér þar fyrst ekkert finnst að mér hér heima og hvað í ósköpunum ég eigi þá að gera. Ég er algjörlega komin í þrot. Uppá vasann er ég með pappíra frá Trygging- Katrín Bílddal. astofnun ríkisins, sem einskis virði eru þegar á reynir. Tryggingalæknir sagði svo að ég gæti bara komið heim aftur og farið til Englands en ég var alls ekki ferðafær, gat á þessum tíma ekki fylgt föður mínum til grafar svo sem ég svo gjarnan vildi. Ég naut gestrisni og hjálpsemi systur minnar og meiriháttar útsjón- arsemi. Fyrir þekkingu og dugnað hennar kemur hún mér í hendur topp- lækna á heimsmælikvarða. Við byrjum á eyrnaklíník hjá dr. Hauss, sem sendir mig í höfuðskann þar sem allt kemur greinilega í ljós. Ég er komin á ystu nöf og má engan tíma rnissa og það erreynt að tímasetja uppskurð eins fljótt og mögulegt er. n nú er ég kornin út úr íslenska kerfinu með ónýta pappíra, þarf að borga spítalann fyrirfram og hér heima við kerfið að slást og eintóma andstyggilega þverhausa. Eigin- maðurinn var ekki öfundsverður á þessum tíma, að þurfa að hrista fram úr erminni stórfé fyrir aðgerðinni með nokkurra daga fyrirvara, peninga sem ekki voru til. Hvernig það gekk upp er óskiljanlegt; en það hafðist fyrir góðra rnanna hjálp. Föðurarfur kom til, þar fékk ég alla lausa peninga sem faðir minn hafði átt. Mín fjölskylda, hans fjöl- skylda, hans atvinnurekendur, að ógleymdum Landsbankanum og góðu fólki úr öllum áttum komu til hjálpar og allt small á elleftu stundu. Ég slapp ótrúlega vel gegnum að- gerðina, enda í topphöndum en aðgerðin var tímafrekari (átta tímar) og erfiðari en mínir læknar höfðu gert ráð fyrir. Það var búið að gera mér grein fyrir öllu sem gæti skeð og mið- að við það fannst mér ég vera heppin. Hvernig líður svo persónu sem gengur í gegnum slíka reynslu sem þessa? Ég var hamingjusöm að fá að lifa lengur og heimurinn í allri sinni dýrð var fegurri. En ég fann hversu lítið sandkom ég var í almættinu, og ég hafði verið algjörlega á valdi Guðs. Mér fannst ég líka hræðilega skuldug bæði Guði og mönnum. Hvenær og hvernig greiðir maður slíkar skuldir, vissulega taka þær aldrei enda? S vo, kem ég heim og er vel fagnað, en jafnframt byrja erfiðleikarnir. Að eiga við Tryggingastofnun ríkisins var erfitt. Við reyndum að fá sjúkrareikninga borgaða en þeir buðust til að borga helminginn. Þessu vildum við ekki una og afþökkuðum slíkt og fengum okkur lögfræðing í málið, sem afgreiddi það með mikilli snilld. Ég man ekki betur en það hafi samt liðið hálft ár þar til við fengum greidda reikninga, en ekki neinn annan kostn- að sem var mikill. Því miður, þó vel tækist með aðgerðina, miðað við hvað við var að slást er ég orðin öryrki og langtíma- sjúklingur og verð sennilega að bera það mér á baki þó hart sé. Og þó ég sé búin að berjast og sé enn að gera, fyrir betri heilsu og þar hefur Reykjalundur dyggilega stutt mig með góðri þjálfun. Mikið var að vinna upp því níunda taugin var skert. Einnig orka, jafnvægi og hraði, skerplutaugin mikið skert, svo ég varð að drekka með röri og

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.