Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Page 17

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Page 17
í gönguferð í góðu veðri. Sjá baksíðu. (Bls. 40). Gripið niður í glögga skýrslu. gekk illa að borða. Annað raddbandið lamað, svo ég gat bara hvíslað, þannig var ég í tvö ár. Eg vissi að það væri ekki mikið mál að laga það, þegar útséð væri með hvenær hún kæmi til baka og hafði orð á þessu við talþjálfarann minn hjá Talmeinastöðinni. Hann hafði ekki heyrt um svona aðgerð, en sagðist skyldi bera málið upp við yfirlækni stöðvarinnar, Einar Sindrason, sem var það elskulegur að setja allt í gang svo að ég kæmist í svona aðgerð, sem felst í því að „teflan" er sprautað í lamaða raddbandið, þar til þau ná saman og röddin heyrist. Þeir í eyrnadeild Borgarspítalans voru mér innanhandar í þessu máli og sem betur fer var ég með rétta pappíra upp á vasann frá Tryggingastofnun ríkisins. Tveimur árum seinna fer ég til Bandaríkjanna þá nýbúin að fara hér í höfuðskann og mér sagt að allt sé í besta lagi. í ferðinni er ég ekki nógu hress og leita til minna fyrrverandi lækna sem senda mig til öryggis í skann og kemur þá í ljós að það er síður en svo í góðu lagi með mig og ég verð að fara í annan uppskurð, eins fljótt og ég get. Ti 1 að spara tíma og peninga var ég að hugsa um að fara ekki heim, en hver getur tekið þvílíka áhættu án þess að sjá og kveðja þá sem rnanni eru kærastir og ganga frá ýmsum málum, þar sem þessi seinni aðgerð var gerð upp á von og óvon og þurfti ég að búa mig vel undir hana. Ég þakka fyrir að læknar og Tryggingastofnun ríkisins brugðust rétt við í þetta sinn og sendu mig með rétta pappíra, sem greiddu allan sjúkrakostnað. Nú var reynt enn betur að fjarlægja æxlið og einnig var ég send í geisla til að reyna að fyrirbyggja nýjan vöxt á æxli. Því miður fór ég nú enn verr en í fyrra skiptið, það sem skaddaðist í fyrri aðgerð varð enn verra og meira til. Afltaugin hékk á bláþræði og litlu hefur sennilega munað að ég lenti í hjólastól. Afltaugin er enn í ólagi og þess vegna er ég mjög ferðaskert. Ég er búin að kaupa mér bfl, sem ég hefði ekki gert ef ég hefði vitað að mér yrði synjað um ferðaþjónustu. Ekki talin nógu fötluð af Trygginga- stofnun ríkisins. Vissulega er ég með fætur, en engan veginn eðlilegan gang. Það er munur að vera ráðherra og geta fengið fínan bíl með styrk eða hvað? eða ferðast fyrir milljónir út um heim. Ekki fer ég fram á styrk til að flýj a veturinn hér heima, sem alltaf fer illa með mig vegna þess hversu fötluð ég er. Ég kemst betur áfram, þegar auð er jörð og að sjálfsögðu fengi ég synjun. Því miður hef ég verið Tryggingastofnun ríkisins og þjóðfélaginu dýr í rekstri, en ég get ekki að því gert og hef ekki óskað mér þess. Ég hef ekki hlotið annað en það sem er réttmætur réttur minn. Ég verð að standa upp og tala vonandi fyrir fleiri en bara mig. Við sem erum í þessari hræðilegu öryrkjastétt megum ekki við neinum synj unum. Mér ofbýður það opinbera, Tryggingastofnunin og læknakerfið. Glansmyndirnar sem ekki standast, kæruleysið, feluleikur með það sem maður á rétt til, hirðuleysi, ókurteisi og stuðningsleysi. Mín mál eru ekki einkamál sem á að þegja endalaust yfir. Verð ég ekki að standa upp, gera þau opinber fyrir mig og aðra minnimáttar í þjóðfélaginu? Ég hef barist áfram á viljastyrk og bjartsýni til að reyna að öðlast betri heilsu til að geta bjargað mér. Líka má ég þakka fyrir að ég held sönsum í gegnum allt mitt stríð. Hversu lengi get ég haldið þannig áfram, eða mun ég gefast upp? Augað mitt sem átti von, að ég hélt. Hornhimnan skemmdist í seinni aðgerðinni en vex til baka, sem skeður sjaldan. Augað hefur alltaf verið erfitt, læknisfræðilega séð, en þess betri umfjöllun lækna þurfti það. Með- höndlun snýst öll upp í ranghverfu. Aðgerð til að minnka augað, baktería, vitlaus meðöl og hornhimnan sem átti von brennursundur. Sfðan vex örvefur utan um vefinn og að lokum fara æðarnar í uppsteyt og vaxa inn. í dag er það hreinlega ónýtt, og besti kosturinn virðist vera að henda því, enda er það mér mikið líkamslýti. Ég tel þetta vera orðið skaða- bótamál, en getur öryrki farið í slíkt mál? Það er ekki við lækna að eiga, heldur læknavegg og þeir eru duglegir að þvo hendur sínar. Mér ofbýður. Ríkisstjórn eftir ríkisstjórn lifir um efni fram, sóar á öðrum endanum og kroppar í hinn endann. Þessi ætlar að laga til með því að skera niður. Hún hefur ekki vit á að byrja á réttum enda og ræðst á garðinn þar sem hann er lægstur. Mérofbýðurog getekki þagað lengur. Guð blessi smælingjana og styðji þá. Illa gerir þjóðfélagið það. Katrín Bílddal. E.S. Frá því þetta var skrifað hefur fengist góð leiðrétting á bifreiðamál- um mínum og ber að þakka úthlutunar- nefndinni hve fljótt var brugðist við. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.