Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Síða 18

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Síða 18
Lilja Öskarsdóttir og Stefanía Sigurj ónsdóttir hjúkrunarfræðingar .AÐEINS EITT LÍF“ Ijanúar sl. gaf Geðverndarfélag íslands út bæklinginn „Aðeins eitt líf‘. Helga Hannesdóttir barnageð- læknir þýddi og staðfærði bandarískan bækling um sjálfsvíg unglinga og þunglyndi. Efni hans taldi hún eiga erindi til íslenskra ungmenna, að- standenda þeirra og kennara. Bækl- ingurinn hefur að geyma upplýsingar um helstu orsakir tilfininningalegs ójafnvægis og þunglyndis hjá unglingum. Þunglyndiseinkenni eru kynnt, hvaða leiðir eru til hjálpar og örfá orð eru um tíðni sjálfsvíga á Islandi. I tengslum við vinnslu og útkomu bæklingsins var stofnaður samstarfshópur um forvarnir gegn sjálfsvígum ungmenna að tilstuðlan Axels Eiríkssonar úrsmiðs og S tefaníu Sigurjónsdóttur hjúkrunarfræðings. Formaður hópsins er Axel Eiríksson úrsmiður, aðrir í hópnum eru: Birgir Ásgeirsson sjúkrahúsprestur, Borgarspítala, Helga Hannesdóttir barnageðlæknir, barna- og ungl- ingageðdeild Landspítala, Jón G. Stefánsson geðlæknir, geðdeild Landspítala og formaður Geðvernd- arfélags íslands, Lilja U. Óskarsdóttir hjúkrunarfræðingur ritstjóri, Hjúkr- unarfélagi íslands og Unnur Halldórs- dóttiruppeldisfræðingur,starfsmaður Rauða kross hússins og formaður SAMFOKS. Hópurinn setti sér eftirfarandi markmið með kynningu á bækl- ingnum: — að örva umhugsun og umræður um þau sálrænu, líkamlegu og félagslegu umbrot er verða á ungl- ingsárum mannsins — að auka meðvitund um áhrif þessara umbrota á líðan og tilfinningar sjálfs sín og annarra. — að leita leiða til að fá hjálp og hjálpa öðrum þegar tóm og tilgangsleysi, örvænting og uppgjöf sækja á. Hópurinn taldi mikilvægt aðfylgja bæklingnum úr hlaði með frekari fræðslu um tilfinningalega líðan Lilja Oskarsdóttir. ungmenna, þekkta áhrifaþætti á geðheilsu þeirra auk fræðslu um þunglyndi. Tekin var sú ákvörðun að dreifing á bæklingnum færi fram til að byrja með í framhaldsskólum að ósk nemendafélaga og honum fylgt úr hlaði með heilbrigðisfræðslu um fyrrgreinda þætti. Þegar hefur verið farið í nokkra skóla og hafa móttökur verið mjög góðar bæði hjá nemendum og kennurum. Af spurningum nemenda má ráða að þeir vi lja gjaman fræðslu og umræðu um þessi mál. Kennarar og námsráðgjafar hafa sýnt málinu mikinn áhuga og hafa verið þakklátir fyrir þennan möguleika á að fræðast og ræða tilfinningalega vanlíðan og þunglyndi ungmenna. Þeir finna fyrir ábyrgð sinni þar sem þeir umgangast nemendur daglega, þekkja vel eðlilegan ungling og eru í lykil- aðstöðu til að finna unglinga sem líður illa. I þeim tilvikum ætti að vera sjálfsagtað hafasamband við foreldra, einnig þyrftu þeir að hafa greiðan aðgang að fagfólki heilsugæslustöðva þegar svo ber undir. Sú staðreynd, að fræðsla um geðheilbrigði og tilfinn- ingar unglinga virðist verða útundan að mestu í allri fræðslu um heilbrigði og forvarnir, á sama tíma og það er vel þekkt að þunglyndi meðal unglinga er algengt, er óviðunandi. Skipulögðu eftirliti heilsugæslu lýkur við 5 ára Stefanía Sigurjónsdóttir. aldur, en unglingsárin eru tími mikilla breytinga bæði hvað varðar líkamlegan, sálrænan og tilfinn- ingalegan þroska. Ekkert tímabil æ vinnar krefst meiri aðlögunar en þetta æviskeið. að er umhugsunarvert hvort heilsugæslu beri ekki að sinna unglingum með skipulögðum hætti fram að u.þ.b. 18 ára aldri með sérstakri áherslu á forvamarstarf með tilliti til geðheilbrigðis. Langflestir sem fremja sjálfsvíg eru veikir, oftast þunglyndir. Það er auðvelt að lækna þunglyndi meðal unglinga. Með réttri meðferð batnar flestum á um 4 vikum. Þannig að með aðstoð hefði unglingurinn eftir stuttan tímagetað verið glaður, hress og notið þess að lifa. Miklir fordómar og þröngsýni virðast vera ríkjandi þegar geðheilbrigði á í hlut. Fólk er fljótt að álykta að helstu orsakir sjálfsvíga unglinga séu eingöngu ofnotkun vímu- efna eða slæmar félagslegar aðstæður. í annan stað hefur misfarist að halda uppi áróðri og kynna fyrir almenningi að það sé sjálfsagt að leita sér hjálpar þegar um geðræn vandamál er að ræða til að fyrirbyggjafrekari veikindi ekki síður en ef um líkamleg einkenni er að ræða, sbr. áróður tannlækna um tann- vernd. Fram að þessu hefur ekki mátt ræða sjálfsvíg opinberlega, þ.a.l. hefur

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.