Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Blaðsíða 19
almenningur ekki verið fræddur um
mögulegar orsakir, tíðni og afleið-
ingar, líkt og um sifjaspell fyrir ekki
svo löngu síðan.
Hópurinn er hins vegar á þeirri
skoðun að þekking og jákvæð og
tillitssöm umræða hjálpi.
Hann telur að sjálfsvíg unglinga
séu allt í senn, hryllileg, sorgleg og
gremjuleg slys. Og sem slík þurfi að
beita öllum tiltækum ráðum til að
fyrirbyggja þau ekki síður en önnur
slys. Ein leið til þess er fræðsla til
ungmenna, aðstandenda og kennara,
þannig að fólk sé meðvitað, þekki
hættueinkenni og viti hvar á að leita
sér hjálpar. Bent hefur verið á heimilis-
læknaog starfsfólk heilsugæslustöðva
í þ ví sambandi. Auk þess eru geðdei ldir
Landspítala og Borgarspítala með
geðlæknisþjónustu allan
sólarhringinn.
Vakin er athygli á símaþjónustu
Rauða kross hússins sem er opin allan
sólarhringinn.
Bæklinginn má nálgast þar og
einnig hjá Geðverndarfélagi íslands.
Reykjavík í apríl 1992
Lilja Óskarsdóttir og
Stefanía Sigurjónsdóttir.
Höfðingleg dánargjöf
heiðurskonu
Á liðnum vetri andaðist frú
Sigríður Jónsdóttir Melhaga 6
Reykjavík, ekkja á áttugasta og
fimmta aldursári.
Sigríður lét eftir sig erfðaskrá og
samkvæmt henni arfleiddi hún
Öryrkjabandalag íslands að íbúð
sinni að Melhaga 6 hér í borg.
Orðrétt segir í erfðaskránni:
Tilgangurinn með ráðstöfun þessari
er, að stofnaður verði námssjóður af
allri gjöfinni. Verði árlega eftir því,
sem efni sjóðsins leyfir, veittur úr
sjóðnum styrkur til eins eða fleiri
öryrkja til hagnýts náms, verklegs
eða bóklegs svo og til náms í hvers
konar listgreinum, þótt ekki teljist
það ábatasamt.
I erfðaskránni kemur einnig fram
eindreginn vilji til að þroskaheftir
megi njóta sjóðsins ekki síður en
aðrir öryrkjar og þá megi veita styrki
þeim sem sérhæfa sig til starfa í þágu
þroskaheftra.
í erfðaskránni er einnig að finna
fyrirmæli umstjómvæntanlegssjóðs
þar sem einn sé tilnefndur af
félagsmálaráðherra og tveir af stjórn
Öryrkjabandalags íslands.
Eftir nauðsynlegan undirbúning
var eignin að Melhaga 6 seld og
fékkst gott verð fyrir og verður
andvirðið nýtt til þess verkefnis sem
Sigríður mælti fyrir um. Frá því
verður greint síðar.
En ritstjóri átti örstutt spjall við
svilkonu og um leið nánustu vinkonu
Sigríðar Halldóru R. Guðmunds-
dóttur til að fá einhverja hugmynd
um Sigríði Jónsdóttur — lífshlaup
Sigríður Jónsdóttir.
hennar og ástæður þessarar
höfðinglegu gjafar hennar.
Því er Halldóra fyrst spurð:
Hver var Sigríður
Jónsdóttir?
Hún var ættuð úr Dölum, þaðan
voru foreldrar hennar, sem bæði voru
kennaramenntuð og fluttu til
Hafnarfjarðar þar sem Sigríður
fæddistog ólstupp. Foreldrarhennar
voru Valgerður Jensdóttir og Jón
Jónsson. Jón var skólastjóri í
Hafnarfirði, en lézt ungur og tók þá
Valgerður við skólastjórn. Sigríður
var elzt sinna systkina. Hún lauk svo
prófi frá Flensborgarskóla með
hinum prýðilegasta vitnisburði.
Hún giftist ung Helga
Magnússyni bankastjóra og síðar
starfsmanni Landsbanka íslands.
Helgi dó fyrir rúmum 30 árum og
eftir það var Sigríður afar mikið ein
og íraun einmana. Þau Helgi bjuggu
í Reykjavík allan sinn búskap. Engin
böm eignuðust þau og svo vill til að
allt náið skyldfólk Sigríðar er fallið
frá.
Og hvernig var hún svo?
Hún var sérstaklega vönduð og
vel gerð kona, hlédræg og hélt lítt
fram sínum mörgu, góðu hæfileikum.
Hún var geysilega listhneigð, tónlist
unni hún og samdi fjölmörg lög, sem
hún fór dult með, en eru afar falleg.
Hún skar út, hún batt bækur og gerði
í raun allt í höndunum sem nöfnum
tjáir að nefna.
Milli okkar Sigríðar myndaðist
mjög náið og gott samband og hjá
mér og börnum mínum átti hún alltaf
athvarf. Vinátta hennar varð öllum
mikils virði sem fengu að njóta.
Og hvað heldurðu svo að hafi
valdið því að hún arfleiddi
Ö.B.I. að svo góðri eign?
Hún var afar hlynnt málefnum
öryrkja og hennar einlægi vilji var að
listrænir hæfileikar þeirra fengj u sem
bezt notið sín. Annars segir
erfðaskráin allt um ætlan hennar og
hug.
Halldóru er þakkað spjallið um
hennar mætu vinkonu. Um leið eru
færðar miklar og hlýjar þakkir fyrir
þann hug til bandalagsins og þá
höfðingslund, semSigríður sýndi svo
ljóslega með sinni dýrmætu
dánargjöf.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS